Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Síða 18
Ferðalög
og flakk
Dagsferð í Hvalfjörð
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Morgunblaðið/ÞÖK
*Skemmtilegar dagsferðir innanlands í sumar,rétt út fyrir höfuðborgarsvæðið, bjóða upp áýmsa áfangastaði. Hvalfjörður er til að myndaafar falleg og róleg ferðamannaparadís ogfinna má sér ýmislegt þar til dundurs. Bæði erhægt að njóta náttúrunnar og þræða göngu-leiðir en einnig skoða merka staði svo sem
Hallgrímskirkju í Saurbæ sem reist var 1957 í
minningu skáldsins Hallgríms Péturssonar.
Ég er stödd í Brisbane, höfuðborg Queensland-fylkis í Ástralíu. Bris-
bane er fjölmenningarleg og skemmtileg borg sem rúmar allt í senn
skýjaklúfa, fallega almenningsgarða og vel skipulögð úthverfi auk þess
sem nokkrir stórir háskóla-campusar setja svip sinn á lífið í borginni.
Hér býr fólk alls staðar frá en með mér í tímum í skólanum eru t.d.
nemendur frá Úganda, Singapúr, Nígeríu, Kanada, Kína, Sádi-
Arabíu, Noregi og Bandaríkjunum. Þessa dagana er ég að leggja loka-
hönd á síðustu verkefni í meistaranáminu mínu í afbrotafræðum. Um
daginn heimsótti ég lögreglustöðina í hverfinu þar sem ég bý og fékk
að fylgjast með rannsóknarlögreglumanni að störfum. Það var kær-
komin truflun og góð afsökun til þess að líta upp úr vísindagreinum.
Erla María Tölgyes Erla María faðmandi styttu af kóaladýri í Brisbane. Erla við ritgerðarskrif.
Afbrotafræði í Brisbane
Brisbane í kvöldsól.
PÓSTKORT F
RÁ ÁSTRALÍ
U
V
insælasta ferðamannaborg síðasta árs var borg í Asíu – í fyrsta
skipti frá því MasterCard fór að halda utan um fjölda erlendra
ferðamanna í borgum heimsins árið 2010. Vinsælasta borgin var
höfuðborg og stærsta borg Taílands, Bangkok, en rétt á hæla
henni kom London í öðru sæti og París í því þriðja en ferðamönnum í
frönsku borginni hefur fækkað ár frá ári frá 2010.
Athygli vekur að það er ekki aðeins Bangkok sem er vinsæl heldur
hafa borgir í Asíu og Mið-Austurlöndum verið í stöðugri sókn sem ferða-
mannaborgir síðustu árin á kostnað borga í Evrópu. Flugfélög hafa þar
bæði bætt við nýjum áfangstöðum og þá eru tíðari flugferðir til þeirra
borga sem þegar var flogið til.
Samkvæmt skoðanakönnunum eru ferðalangar hrifnir af matarmenn-
ingu þessara svæða ásamt almennri gestrisni. Einnig er ánægja með
hversu margt nýtt er hægt að upplifa á ferðalögunum, í listum, afþrey-
ingu, söfnum og almennri dægurmenningu.
ASÍSKAR BORGIR SÆKJA Í SIG VEÐRIÐ
Bangkok
í toppsætinu
SAMKVÆMT TOPP 20 LISTA MASTERCARD HAFA
ÁFANGASTAÐIR Í ASÍU OG MIÐ-AUSTURLÖNDUM
ALDREI VERIÐ VINSÆLLI.
Mest heimsóttu borgir ársins 2013
Heimild: MasterCard Global Destination Cities Index.
Borg, land Milljónir erlendra gesta sem gista yfir nótt
London Bretlandi
Singapore Singapore
Istanbul Tyrklandi
Kuala Lumpur Malasíu
Barcelona Spáni
Bangkok Taílandi
París Frakklandi
New York BNA
Dubai Sameinuðu
arabísku furstadæmunum
Hong Kong Kína
15,98
15,96
13,92
11,75
11,52
10,37
9,89
9,2
8,72
8,41
Taílensk börn og ferðamenn fagna nýju ári í Taílandi. Nýtt ár hefst 13. apríl og er vatnsslagur ómissandi þennan dag.
AFP