Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.6. 2014 Matur og drykkir Þ etta er ákveðinn hópur sem tengist allur sjávarútveginum, Hildur Sif er forsprakki Félags kvenna í sjávarútvegi, sem var nýlega stofnað, og við erum allar í því félagi,“ segir Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ankra, en hún og Karen Kjart- ansdóttir, upplýsingafulltrúi LÍU, skipulögðu matarboð fyrir hópinn sem haldið var á heimili Hrannar. Raunar var þetta sjávarútvegsboð út í gegn. „Ég fékk skipstjóra til að elda fyrir okkur, svona eins og ég geri alltaf,“ segir Karen og hlær en að- alrétturinn var útbúinn af bræðrunum Aðalsteini Jónssyni Þorsteinssyni og Daða Þorsteinssyni en Aðalsteinn stýrir fiskvinnslu og Daði er skip- stjóri. Fordrykkur var í höndum matarbloggarans sem kennd er við Ljómandi.is en forréttur og eftirréttur var hins vegar í höndum Hrannar. Það vakti forvitni að kollagen unnið úr íslensku fiskroði var sett í for- drykkinn. „Ég set Amino Collagen í öll búst í dag, það er mjög gott fyrir liðina og ekki skemmir fyrir að það geti minnkað hrukkur og fínar línur í húð,“ segir Hrönn en fyrirtækið Ankra er að setja sína fyrstu vöru, Feel Iceland - Amino Collagen, á markað hérlendis. Boðið heppnaðist afar vel. „Þetta var alveg frábært. Rosalega góður matur og mikil stemning. Þótt það sé nokkuð af konum í þessum geira virðast þær vera í minnihluta og fer stundum lítið fyrir þeim. Því er gam- an að vera partur af félaginu og efla tengslin og það skemmir ekki að þetta eru einstaklega skemmtilegar konur.“ Hrönn segist vera nokkuð dugleg að halda matarboð en hún er ekkert að flækja hlutina þótt boðin séu mörg. Til dæmis sé afar vinsælt að halda pitsuboð og henda þá pitsunum á grillið. Skálað úti á palli í góðu veðri í Garðabæ. Daði matreiðir lúðuna fyrir hópinn. LAXAPATÉ, LÚÐA OG FLEIRA GOTT Matarboð með sjávarútvegsþema * „Ég fékk skip-stjóra til aðelda fyrir okkur, svona eins og ég geri alltaf“ Frá vinstri: Kristín Ýr Pétursdóttir, yfirhönn- uður Ankra, Ása María Þórhallsdóttir, sölu- stjóri Ankra, Hildur Sif Kristborgardóttir, fram- kvæmdastjóri Sjávarafls, Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ankra, Kar- en Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi LÍÚ, Biljana Ilievska, þróunar- og framleiðslu- stjóri Ankra, Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjón- ustu Marels, Eva Rún Michel- sen, framkvæmdastjóri Húss Sjávarklasans, og Eva Margrét Ævars- dóttir, fram- kvæmdastjóri Roadmap. KAREN KJARTANSDÓTTIR OG HRÖNN MARGRÉT MAGN- ÚSDÓTTIR SKIPULÖGÐU MATARBOÐ Í GARÐABÆ. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is 170 g lúða á mann smjör olía salt, hér var notað salt frá Norðursalti svartur pipar Skerið lúðuna í mátulega stóra bita. bræðið smjör á pönnu og bætið olíu við svo að smjörið brenni ekki við við steikinguna. Setjið lúðuna á rjúkandi heita pönnuna og saltið vel. Hér var notað salt frá Norð- ursalti sem kokkurinn er afar hrifinn af en honum finnst best að pipra eftir á svo pip- arinn brenni heldur ekki við á pönnunni. Lauksósa 1 laukur ½ chili-pipar 2 hvítlauksgeirar 1 meðalstór kartafla 1 meðalstór blaðlaukur 300 ml fiskisoð 15 g smjör Lúða með laukmauki Skerið laukinn í tvennt eftir endilöngu og svo í mjög fínar sneiðar. Skerið kartöfluna niður á sama hátt. Saxið hvítlaukinn og chili- piparinn fínt niður og steikið svo laukinn, kartöflu, hvítlauk og chili upp úr smjörinu í um það bil 7 mínútur. Bætið þá blaðlauk- num saman við en hann er skorinn eftir endilöngu og svo saxaður þvert í litla bita. Steikið þá allt saman þar til kartaflan er orð- in lin. Bætið þá fiskisoðinu saman við og sjóðið niður í ¾. Því næst er blandan tekin, sett í matvinnsluvél og maukuð í þykkt mauk. Sýrt grænmeti 1 dl vatn 1 dl sykur 1 dl rauðvínsedik gulrætur eftir smekk rófur eftir smekk nípur eftir smekk Setjið vatn, sykur og edikið saman í pott og hitið að suðu, eða þar til sykurinn hefur verið leystur upp. Kokkinum finnst gott að setja stundum aðeins meira af edikinu og minna af sykrinum en þetta er smekksatriði. Leyfið blöndunni að kólna vel. Rífið græn- metið niður með rifjárni. Hellið svo leg- inum, köldum, yfir grænmetið og látið standa í a.m.k. klukkustund áður en vatnið er síað frá og grænmetið sett í skál. Berist fram með lúðunni og lauksósunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.