Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.6. 2014
Græjur og tækni
Barnakerra sem birtist í auglýsingu fyrir nýja Skoda VRS bíl-
inn hefur slegið í gegn og fyrirtækið íhugar nú hvort það
eigi að hefja framleiðslu á henni. Í skoðanakönnun sem fyr-
irtækið gerði á heimasíðu sinni í febrúar sögðust 30% til í
að ganga með barnið sitt í slíku farartæki. Kerran í aug-
lýsingunni er á loftpúðafjöðrun, með 20 tommu dekkj-
um, bremsuljósum, sterku ljósi fyrir kvöldgöngur og
ýmsu fleira sem bílaeigendur kannast við.
Skoda-kerra slær í gegn
HVAÐA TÆKNINÝJUNGAR
SÉRÐU FYRIR ÞÉR SEM
TENGJAST STARFINU ÞÍNU?
Fannar Sveinsson
Hraðfréttamaður
Árið 2034 verður Ríkisútvarpið
komið með 7-D myndavélar. Hljóð
verður tekið upp með laserum sem
vita hver er að tala og það er engin
þörf fyrir snúrur eða neinn óþarfa í
kringum útsendingar.
Marta Lárusdóttir
Lektor við Háskólann í Reykjavík
Fagið sem ég kenni, fjallar um
mikilvægi þess að hanna hugbúnað
út frá þörfum notendanna. Fjöl-
breytileiki hugbúnaðar hefur aukist
gríðarlega undanfarin 20 ár. Einnig
hafa tækin, sem við notum til að
nýta okkur hugbúnaðinn tekið
stökkbreytingum. Við erum til
dæmis flest með alls konar kerfi í
símanum okkar, myndavél, tölvu-
póstinn og netið, sem fyrir 20 árum
var í borðtölvunni og öðrum tækj-
um.
Atli Fannar Bjarkason
Fjölmiðlamaður
Vefsíður munu í meira mæli sér-
sníða fréttir að notandanum, eins og
er gert í dag, sem verður til þess að
fólk sér aðeins fréttir sem það hefur
áhuga á.
Dröfn Ösp Snorradóttir
Starfar við auglýsingar í Los Angeles
Varðandi vinnuna mína, þá von-
andi hef ég nú rangt fyrir mér, en ég
óttast að fólk láti í minni pokann fyr-
ir CGI eða tölvuímyndum.
HVAÐA TÆKNINÝJUNGAR
SÉRÐU FYRIR ÞÉR SEM
TENGJAST HEIMILINU?
Fannar
Að þvo þvott og strauja verður
komið í eina vél sem þurrkar líka og
græjar allt fyrir mann. Maður þarf
bara að setja í óhreina tauið og þessi
græja sér um allt frá a-ö.
Marta
Það gæti verið að við verðum með
vélmenni eða tæki sem eru forrituð
til að vinna verkin fyrir okkur. Til
sölu eru ryksugur, sem vinna á með-
an við erum annars staðar. Þetta
gæti aukist mikið.
Atli Fannar
Ísskápurinn tekur völdin á heim-
ilinu og stýrir neyslu okkar í einu
öllu. Ætlar þú að fá þér kókdós eftir
miðnætti á miðvikudegi? Ekki séns.
Þú færð í mesta lagi disk af erfða-
breyttu brokkolíi og öðru heilsufæði.
Dröfn Ösp
Ég sé fyrir mér fleiri græjur sem
nýta „grænni“ orku eins og ísskápa
og eldavélar sem mögulega fram-
leiða sína eigin orku og viðhalda sér
sjálfum.
HVAÐA TÆKNINÝJUNGAR
SÉRÐU FYRIR ÞÉR SEM TENGJ-
AST HEILSU OG LÍKAMA?
Fannar
Fólk getur tekið inn fæðibótarefni
sem hjálpar því að grennast og bæta
vöðvamassa þannig að allir verða í
góðu líkamlegu formi og það verður
komið í tísku að vera feitur. Fitu-
hlunkar erfa jörðina.
Marta
Ég held að þarna komi tölvutækn-
in mun meira í fötin okkar og fylgi-
hluti. Nýjustu græjurnar á mark-
aðnum í dag eru armbönd til að
fylgjast með hreyfingu, sem seljast
mjög vel þessa dagana. Eftir 20 ár
verðum við sjálfsagt með ýmislegt
eins og skartgripi eða föt, sem við
getum breytt að vild, eftir því
hvernig liggur á okkur eða hvernig
þetta passar okkur hverju sinni.
Atli Fannar
Árið 2034 nær meðalmaðurinn
100 árunum nokkuð auðveldlega og
gott ef hann verður ekki líka með
þrútna magavöðva, spilandi körfu-
bolta tvisvar í viku ásamt því að
lyfta lóðum annan hvern dag.
Dröfn Ösp
Heilsutækin og tæknin er eig-
inlega það sem ég er spenntust fyrir
og vonandi verður heilbrigðisþjón-
usta ódýrari/ókeypis fyrir alla um
allan heim og með einföldu tæki eins
og snjallsíma verður hægt að taka
röntgen, hjarta- og æðamælingar,
CT-skanna, óléttupróf og eftirlit og
öll helstu próf sem rándýr tæki
framkvæma núna.
HVAÐA TÆKNINÝJUNGAR
SÉRÐU FYRIR ÞÉR SEM TENGJ-
AST GRÆJUNUM Í LÍFI ÞÍNU?
Fannar
Símarnir verða með innbyggðan
skjávarpa og lyklaborði sem skýst
út úr símanum í formi ljóss.
Marta
Ég er viss um að það verða miklar
breytingar á græjunum í lífi mínu
næstu 20 árin. Ef þróunin næstu 20
ár verður eins hröð og hún var und-
anfarin 20 ár, þá er von á annarri
byltingu í notkun tölvutækninnar.
Ég vona að sú þróun verði not-
endum í hag
Atli Fannar
Fjölskyldubíllinn gengur fyrir
endurnýjanlegri orku og stýrir sér
sjálfur. Við horfum til baka og hlæj-
um að vitleysingunum sem treystu
mannfólkinu til að keyra bíla og
fljúga flugvélum.
Dröfn Ösp
Ég óska þess að flugtæknin og
það að ferðast milli heima og geima
verði bæði ódýrt og mun sneggra –
maður kæmist kannski frá LA til
Reykjavíkur á klukkutíma eða svo,
færi í mat heim til mömmu og pabba
og í afmæli hjá vinum og svo aftur til
LA í vinnuna – og út fyrir sólkerfið
okkar, þá erum við að tala saman.
Spólað fram
um 20 ár
HVERNIG VERÐUR TÆKNIN EFTIR 20 ÁR? FJÓRIR EIN-
STAKLINGAR VORU BEÐNIR UM AÐ KÍKJA Í KRISTALSKÚL-
UNA OG HORFA FRAM Í TÍMANN. HVAÐA TÆKNINÝJ-
UNGAR SJÁ ÞAU SEM TENGJAST STARFINU, HEIMILINU,
HEILSUNNI OG GRÆJUNUM Í LÍFI ÞEIRRA?
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Kvikmyndin Back to the future 2 var gerð árið 1989 og sendi þá Marty McFly og Doc fram í framtíðina til ársins 2015.
Marta Kristín
Lárusdóttir, lektor
Fannar Sveinsson,
hraðfréttamaður
Atli Fannar Bjarkason,
fjölmiðlamaður
Dröfn Ösp, starfar
í Los Angeles
Stýripinni úr geimnum
seldist á 70 milljónir
AFP
STÝRIPINNINN SEM DAVE SCOTT STÝRÐI LUNAR-GEIMFLAUGINNI MEÐ TIL
LENDINGAR Á TUNGLINU ÁRIÐ 1971 SELDIST FYRIR METFÉ Í VIKUNNI.
Stýripinni sem flugstjórinn Dave Scott notaði til að lenda geimflauginni
Lunar Module Falcon á tunglinu árið 1971 seldist fyrir metfé á þriðjudag.
Stýripinninn var sleginn á 610 þúsund dollara eða rúmlega 70 millj-
ónir króna sem er hæsta verð sem borgað hefur verið fyrir hlut frá
NASA á almennu uppboði.
Scott hafði stýrt Apollo 15 geimferjunni upp að tunglinu en þeir
Scott og aðstoðarflugstjórinn Jim Irwin fóru svo niður að tunglinu í
Lunar-vélinni. Skömmu fyrir lendingu á tunglinu uppgvötuðu þeir
Scott og Irwin að tölvan hafði reiknað vitlaust þar
sem þeir áttu að lenda og því tók Scott sjálfstýr-
inguna af og stýrði Lunar Module Falcon flauginni
með handafli og notaði þennan stýripinna til þess
að lenda á réttum stað.
Kaupandinn vildi ekki láta nafns síns getið.
Þegar Apollo 15 yfirgaf gufuhvolf jarðarinnar
var það í níunda sinn sem mannað geimfar fór til
tunglsins og í fjórða sinn sem Bandaríkjamenn
lentu þar.
Ódýrt: Gigabyte Force K3
Verð: 6.990
Fæst í: www.trs.is
Aðeins um: Sérstaklega varið fyrir
högg- og vatnsskemmdum. Mest
notuðu leikjatakkarnir sérmerktir,
hljóðlátur og hraður ásláttur,
ábrennt íslenskt letur og gullhúðað
USB-tengi.
Miðlungs: SteelSeries Apex
Verð: 18.900 krónur
Fæst í: Tölvulistanum
Aðeins um: Marglit LED-
baklýsing, 22 forritanlegir macro-
takkar, media-hnappar, SteelSeries
engine forritið fylgir með þar sem
hægt er að stilla nánast allt varðandi
lyklaborðið.
Dýrt: Logitech G19S
Verð: 39.900 krónur
Fæst í: Tölvutek
Aðeins um: Leikjalyklaborð með
stillanlegri baklýsingu í mörgum lit-
um, LCD-leikjaskjár til þess að
fylgjast með öllu mögulegu á meðan
leikur fer fram. 12 forritanlegir G-
hnappar og tvö USB-tengi.
ÓDÝRT, MIÐLUNGS, DÝRT
Leikjalyklaborð
Stýripinninn er enn í glæsilegu
ástandi og minnir um margt á tölvu-
leikjastýripinna nútímans.