Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Page 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Page 57
1.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Áhugaverðri sýningu Guð- rúnar Kristjánsdóttur mynd- listarkonu, Lestur, lýkur í Artóteki Borgarbókasafns á sunnudag. Í verkunum les listakonan á persónulegan hátt í náttúruna og menningararfleifð okkar. 2 Á laugardag klukkan 15 hefst vorsýning fyrsta árs nema í Ljósmyndaskólanum, í húsnæði skólans að Hólmaslóð 6. Þetta eru ætíð for- vitnilegar sýningar að skoða, með fjölbreytilegum myndverkum og sýna verk vaxtasprotanna í íslenskri ljós- myndun. 4 Fyrir kvikmyndaunnendur er óhætt að mæla með banda- rísku kvikmyndinni Short Term 12 sem tekin hefur verið til sýninga í Bíó Paradís. Hún hlaut Grand Jury-verðlaunin á SXSW-hátíðinni á dögunum. 5 Áhugafólk um myndlist ætti að skunda í Nýlistasafnið við Skúlagötu því í næstu viku lýkur starfsemi þar, um leið og sýningunni æ ofaní æ, með kvikmynd um Hrein Friðfinnsson og verkum eftir hann. Gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði kvikmyndina vel heppnaða tilraun og gaf sýning- unni fjórar stjörnur. 3 Leikhópurinn Lotta sýnir sprellfjöruga sýningu um Hróa hött og Þyrnirós í Bolungarvík og á Ísafirði í dag, laugardag. Þetta er sýning sem hægt er að mæla með fyrir alla fjölskylduna en sex leikarar fara með 12 hlutverk. MÆLT MEÐ 1 Ima Now“, eða „núna“, er heiti sýningarsem verður opnuð í Listasafni ASÍ í dag,laugardag klukkan 16, og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á sýningunni mæt- ast verk fjögurra listamanna, Sverris Guðjóns- sonar, Elínar Eddu Árnadóttur, Koho Mori- Newton frá Japan og Lauren Newton frá Bandaríkjunum. Sverrir segir Mori-Newton vinna verk á pappír og innsetningar úr silki og að Elín Edda hafi kynnst japanskri kalligrafíu þegar þau hjónin dvöldu þar í landi á sínum tíma og hún sýni verk unnin með bursta og bleiki. Sverrir og Lauren Newton eru bæði radd- listamenn og hafa sett saman hljóðheim sýn- ingarinnar, sem byggist á raddskúlptúrum, kyrjun, yfirtónum, söngdróni og náttúru- hljóðum í hinum ólíku rýmum safnsins, en hún teygir sig frá Gryfju upp á svalir bygg- ingarinnar við Freyjugötu. „Sýningin er hugs- uð út frá þessum hljóðinnsetningum sem eru unnar sérstaklega fyrir þann myndheim sem gefur að líta í hverju rými safnsins,“ segir Sverrir. „Í Gryfjunni hefur Mori-Newton skapað vegg úr silki, afskaplega fallegan. Þar fannst mér ástæða til að vera með hljóðmynd sem setti fram spurninguna: hvernig er hljóm- ur silkis? Ég var með það í huga að vinna myndbandsinnsetningu sjálfur fyrir Arinstof- una. Ég hef unnið með allskyns raddhljóð og langaði að búa til myndband þar sem vatn og rödd takast á og það varð ég að gera ofan í vatni. Ég fékk Brian Fitzgibbon til að vinna verkið með mér og það nefnist „Andi“ – er fimm varíasjónir um rödd í vatni. Í Ásmundarsal er Elín Edda með kalli- grafískar myndir, ólíkar seríur sem hún kallar „Sequences“. Mori-Newton hefur einnig sett þar upp myndir og er auk þess með borð með hlutum sem hann finnur á förnum vegi. Það hefur komið honum á óvart hve mikið er af ryðguðu járni á götum íslenskra bæja.“ Sverrir segir þau Lauren Newton vinna saman hljóðmynd Ásmundarsalar en hún sé í nokkrum köflum með mikilvægum þögnum á milli. „Svo förum við alla leið upp á þaksval- irnar en þær eru sjaldan nýttar á sýningum í Listasafni ASÍ. Grunnhugmyndin um sýn- inguna sprettur út frá íslensku vörðunni, sem vísar veginn í lífinu. Það má fara frá einni vörðu til annarrar. Við létum smíða þriggja metra háa málmstöng sem sveigist út og á henni er þriggja metra langur silkistrangi, sem tekur við náttúrunni; vindinum, regni og öðru sem gerist utan við safnið,“ segir Sverr- ir. efi@mbl.is FJÓRIR LISTAMENN SÝNA SAMAN Í LISTASAFNI ASÍ Raddskúlptúrar og myndverk „GRUNNHUGMYNDIN UM SÝNINGUNA SPRETTUR ÚT FRÁ ÍSLENSKU VÖRÐUNNI,“ SEGIR SVERRIR GUÐJÓNSSON, EINN LISTAMANNANNA. Listamenn í núinu: Koho Mori-Newton, Laur- en Newton, Elín Edda Árnadóttir og Sverrir Guðjónsson á svölum Listasafns ASÍ. Morgunblaðið/Golli oft eins og ég sé að reyna að grafa upp eitt- hvað sem er að hverfa. En svo eru þessir staðir fyrir austan dásamlega fallegir! Ég hef farið margar ferðir á söguslóðir sem eru venjulega tengdar frægum sögu- persónum eða einhverjum höfðingjum en mér fannst gaman að leggja mitt af mörkum við að gera sögu almúgafólks sýnilega.“ Datt Borghildi í hug, þegar faðir hennar fékk hana til að vélrita ættarskrá sína, að það yrði að þessu viðamikla verkefni? „Nei!“ segir hún ákveðið. „Alls ekki. En við eigum þessar rætur og það er gaman að grafa þær upp. Það er ríkidæmi að eiga sér rætur.“ „Það tekur fólk heilan dag að fara milli allra staðanna,“ segir Borghildur og bendir á rauða bletti í Landsveitinni þar sem hún kemur textaverkum fyrir. Á ljósmyndum við vegginn má sjá forfeður hennar og ætt- ingja, og tóftir Skarðssels við Þjórsá. Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.