Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Síða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Síða 64
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2014 USA Traveller Velkomin í Vodafone Byltingarkennd lækkun á farsímakostnaði í USA og Kanada Vafraðu um netið í Bandaríkjunum og Kanada fyrir 99% lægra gjald og hringdu eða sendu SMS á mun hagstæðara verði. Móttekin símtöl eru 0 kr. og einungis 990 kr. daggjald. Skráðu þig núna í Vodafone USA Traveller með því að senda sms-ið „USA“ í 1414. Vodafone Góð samskipti bæta lífið H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA „Ég er rosalega ánægð, eiginlega alveg í skýjunum. Nú verður útvarpstækið tekið út úr skápnum,“ segir Vagna Sólveig Vagnsdóttir, alþýðulistakona á Þingeyri, en baráttu hennar fyrir endurkomu Næturvaktarinnar á Rás 2 er lokið með sigri. Guðni Már Henningsson fer í loftið laugardaginn 7. júní. Þátturinn verður á dag- skrá öll laugardagskvöld frá klukkan 22 til 02 eftir mið- nætti, eins og hann var í áratugi áður en hann var lagður niður um síðustu áramót. Vagna Sólveig hét því að opna ekki fyrir Rík- isútvarpið, hvorki Rás 1 né Rás 2, fyrr en Næturvaktin yrði komin aftur á dagskrá og mun ekki gera það fyrr en klukkan 22 á laugardaginn eftir viku. „Ég vil þakka öllum sem lögðu baráttu minni lið en þeir voru fjöl- margir,“ segir hún, „og sérstaklega Frank Þóri Hall, nýjum dagskrárstjóra Rásar 2, fyrir að hlusta á okkur. Ég vil líka þakka dótturdóttur minni, Klöru Alexöndru Birgisdóttur, lögreglukonu á Ísafirði, fyrir að setja upp síðu fyrir mig á Facebook en sjálf er ég ekkert sér- staklega klár á tölvur. Án Klöru hefði þetta aldrei verið hægt.“ Aðspurð kveðst Vagna Sólveig hafa verið tilbúin að berjast áfram. „Ég hefði aldrei gefist upp.“ Frank Þórir Hall, dagskrárstjóri Rásar 2, segir sér hafa verið ljúft og skylt að setja Næturvaktina aftur á dagskrá. „Næturvaktin er huggulegur þáttur. Vinur á kvöldin og Guðni Már er útvarpsmaður af gamla skól- anum, með mjög þægilega nærveru. Ég skil vel að hlustendur hafi saknað hans.“ Á föstudagskvöldum milli klukkan 22 og 02 verður á dagskrá þátturinn MillJón í umsjá Millu Óskar Magnúsdóttur og Jóns Þórs Helgasonar. „Næturvakt fyrir yngra fólkið,“ segir Frank. Frank Þórir Hall, dagskrárstjóri Rásar 2. BARÁTTU VÖGNU SÓLVEIGAR LOKIÐ MEÐ SIGRI Næturvaktin aftur í loftið Vagna Sólveig Vagnsdóttir, alþýðulistakona. Guðni Már Henningsson, útvarpsmaður. Hið árlega Cooper’s Hill-ostahlaup fór fram á mánudag í brekkunni sem hlaupið er kennt við sem stendur við bæinn Brockworth í Englandi. Hlaupið dregur að sér hlaupara alls staðar að úr heiminum og áhorfendur skipta þúsundum. Síð- an árið 2010 hefur hlaupið verið skipulagt af sjálfskipuðum hlaup- urum því bæjaryfirvöld hættu stuðningi sínum því þeim fannst bærinn ekki geta borið ábyrgð á öllum þessum fjölda. Það var Josh Shepard sem hljóp niður brekkuna eins og raketta og sigraði í ár. „Ég ætlaði mér að standa á löppunum allan tímann. Það var eiginlega eina markmið mitt,“ sagði Shepard eftir hlaupið við AFP-fréttaveituna. Reglurnar í hlaupinu eru ein- faldar. Oststykki er fleygt niður brekkuna og keppendur reyna að ná því. Sá sem kemst fyrstur í mark vinnur. Keppt er fjórum sinnum og samanlagður árangur gildir. Shepard var eðlilega sáttur við sigurinn en ekkert sérstaklega við sigurlaunin. „Ég hef ekki hug- mynd um hvað ég á að gera við þetta oststykki því ég borða ekki ost nema ofan á ristað brauð.“ FURÐUR VERALDAR Elta ost niður brekku Síðan á 19. öld hefur osti verið hent niður Cooper-brekkuna og fólk elt fjögurra kílóa oststykki sem það fær í verðlaun komi það fyrst í mark. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Steingrímur Sævarr Ólafsson, almannatengill Valur Freyr Einarsson, leikari Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari í skák

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.