Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.7. 2014
Ég ætla að horfa á leikinn
en er ekki búinn að ákveða
hvar ég horfi. Ég held að
Þýskaland vinni HM.
Oddur Þórarinsson, 46 ára.
Egill: Ég ætla að horfa á leikinn
heima og held að Argentína vinni.
Eyþór: Ég verð líka heima en veðja
á Þýskaland.
Egill T. Ómarsson og Eyþór Reynisson, 21 árs.
Við erum frá Kanada en verðum í fjallgöngu á
sunnudaginn, þannig að við ætlum ekki að
horfa á leikinn. Hvaða lið eru aftur að spila?
Þýskaland og Argentína? Þá vinna Þjóðverjar.
Carmen Campbell og Trevor Narraway.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ég veit nú ekki enn hvort ég ætla að
horfa á leikinn en ef ég verð heima,
þá geri ég það. Ég held að Þjóð-
verjar verði heimsmeistarar.
Páll Ingi, 51 árs.
Morgunblaðið/Eggert
SPURNING DAGSINS HVAÐA LAND VINNUR HM Í FÓTBOLTA?
Fjórði ættliður bóksala
afgreiðir nú í Bóka-
búðinni á Flateyri.
Þar er gestum boðið
upp á brjóstsykur með-
an þeir versla og virða
fyrir sér bókakostinn. 10
Í BLAÐINU
Heimild: Hagstofan (grunnur frá 1988)
VÍSITALA NEYSLUVERÐS
í júní 2004-2014
450
400
350
300
250
200
2004 2014
235,7
422,8
Hvernig kanntu við þig í HM-stofunni? Bara
mjög vel, það er gaman að hafa tekið aðeins þátt í þessu
með þessum miklu knattspyrnugoðsögnum og sérfræð-
ingum Guðna Bergs, Gunnleifi Gunnleifs, Heimi Hallgríms
og Rikka Daða. Björn Bragi og Hilmar Björns eru síðan
snillingar í að stjórna þáttunum og halda stemningunni
góðri.
Fer umtal um HM sérfræðingana á samfélags-
miðlum í taugarnar á þér? Nei, umtalið hefur yfirleitt
verið skemmtilegt og það er gaman að fylgjast með skoðana-
skiptum allra HM-sérfræðinganna heima í stofu um leiki mótsins.
Fólk er hins vegar oft frakkara að láta hluti flakka um aðra á netinu en
það myndi gera í venjulegum samskiptum og skoðanir fólks eru jafn
misjafnar og þær eru margar. Það eina sem fer kannski í taugarnar á
mér eru ummæli sem bera vott um karlrembu eins og „ég get ekki
hlustað á konu tala um fótbolta“. En sem knattspyrnukona er ég vön
svoleiðis fordómum í gegnum tíðina.
Hverjir verða heimsmeistarar? Þjóðverjar
Þú vannst þó nokkra titla í fótbolta sem leikmaður.
Stendur einhver titill upp úr? Bandaríkjameistaratitillinn er lík-
lega sá stærsti og sætasti, þar sem við náðum því að verða í fyrsta sæti af
um 300 liðum sem eru í efstu deild NCAA. Annars er aldrei leiðinlegt að
vinna titla og allir titlarnir með KR eru eftirminnilegir.
Spriklar þú enn? Nei, ég hef ekki tekið áhættuna á því að byrja aftur
vegna höfuðmeiðsla sem ég varð fyrir 2009. Ég sprikla bara í staðinn hjá
Gunnari Nelson og félögum í Mjölni.
Bróðir þinn, Guðmundur, spilar með KR, semur tónlist
og var í landsliðinu í stærðfræði. Eru þið öll talnaglögg í
systkinahópnum? Við erum fjögur systkinin, en þessir „minnstu“ tveir,
Mummi og Einar Bjarki, eru þeir talnaglöggu. Einar er reyndar sá eini sem
er stærðfræðingur og Mummi er bara platstærðfræðingur því hann er hag-
fræðingur að mennt.
Þú hefur búið víða um heim vegna íþróttanna. Er gott að
ala upp barn á Íslandi? Já mér finnst það, en hef nú reyndar bara sam-
anburð við Svíþjóð. Ég er ánægð með leikskólana, frístundastarfið, barna-
spítalann o.s.frv. og það frjálsræði sem börn geta alist upp við hérna. Auðvit-
að er þó ekkert fullkomið og allt má bæta.
GUÐRÚN SÓLEY
GUNNARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Fólk er
frakkara
á netinu
Morgunblaðið/Ómar
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Frosta Logasyni var slétt sama um pólitík meðan
þungarokkið og hljómsveitin Mínus áttu hug hans all-
an. Eftir að hann tók sitt
fyrsta húsnæðislán fékk hann
áhuga á að nema stjórn-
málafræði og segir það eina
bestu ákvörðun lífs síns. 12
Brynja Þorgeirsdóttir les sumar bækur aftur og
aftur. Bækur Þórbergs Þórðarsonar hafa verið klettur í
hennar lífi, bækur sem hún grípur til sérstaklega ef
eitthvað bjátar á og vantar lit í tilveruna. 50
Sandalarnir frá Birken-
stock hafa náð miklum vin-
sældum að nýju, en þeir
voru geysivinsælir í Banda-
ríkjunum á hippatímabilinu.
Þessi eftirsótti og þægilegi
skóbúnaður á rætur sínar
að rekja til Þýskalands. 35
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hefur verið stofugestur landsmanna
í HM-stofunni á meðan heimsmeistarakeppnin fer fram. Guðrún
er fyrrverandi knattspyrnukona, lagði skóna á hilluna eftir höfuð-
högg í landsleik á EM kvenna 2009. Hún vinnur í Seðlabanka
Íslands en hún lærði hagfræði í Bandaríkjunum ásamt því að spila
fótbolta með Notre Dam-háskólanum í Bandaríkjunum.