Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Blaðsíða 35
brýtur í bága við eina helstu
„tískureglu“ sem okkur öllum er
kennd: ekki klæðast sokkum við
sandala. Þá er fyrirsætan Heidi
Klum einnig yfir sig hrifin af
Birkenstocksandölunum og á ótal
mismunandi tegundir af þeim.
Umhverfisvæn þægindi
Sólar Birkenstock-skónna eru
mótaðir vandlega að fætinum og
eru búnir til úr korki og mjúku
gúmmíi meðal annars. Sú stað-
reynd að skórnir eru einstaklega
þægilegir er aðeins ein ástæða
þess að þeir eru eins vinsælir og
raun ber vitni; þeir eru líka unnir
á umhverfisvænan máta úr efni
sem auðvelt er að endurvinna.
Endurkoma Birkenstock-
sandalanna er eflaust gleði-
tíðindi fyrir þær sem eru
komnar með leið á him-
inháum hælum, því að
Birkenstock-sandalar
tryggja bæði þægindi og
flottheit, í það minnsta
að mati sumra. Það getur
þó reynst torvelt að nálg-
ast par af Birkenstock-
sandölum því að al-
gengt er að þeir séu
uppseldir í þeim versl-
unum sem selja þá.
Birkenstock-sandalarnirkomu fyrst fram á sjónar-sviðið eins og við þekkj-um þá árið 1964 þegar
þýskum manni að nafni Karl
Birkenstock datt í hug að þróa
innlegg sem forfeður hans höfðu
hannað og setja það inn í skósóla.
Í dag, fimmtíu árum seinna, er
hönnunin geysivinsæl á meðal
fólks sem vill tolla í tískunni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þessi þýski skóbúnaður nær mikl-
um vinsældum, en í Bandaríkj-
unum á hippatímabilinu þótti afar
smart að ganga um berfættur í
Birkenstock-sandölum með blóm
í hárinu. Eflaust tengja líka margir
Birkenstock-sandalana klassísku
við fólk í heilbrigðis-
geiranum, en skórnir þykja
afar þægilegir og ruddu
þeir sér því til rúms hjá
þeim hópi á tíunda ára-
tugnum. Í dag virðist
allt vera gjaldgengt í
Birkenstock--
sandalatískunni. Tísku-
dívur eins og Ashley og
Mary-Kate Olsen
hafa til að mynda
látið sjá sig í sokk-
um og Birkenstock-
sandölum, en það
Birkenstock skórnir
voru notaðir á 2014
vor/sumar sýningu
Edun.
KLASSÍSK HÖNNUN
Endurkoma
Birkenstock-
sandalanna
SANDALARNIR ÞÆGILEGU FRÁ BIRKENSTOCK HAFA TRÖLL-
RIÐIÐ TÍSKUHEIMINUM Á UNDANFÖRNUM MÁNUÐUM EN
FÓLK VIRÐIST VERA ÓSAMMÁLA UM FEGURÐ ÞEIRRA.
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Í dag eru ótal tegundir af
Birkenstock söndulunum
komnar á markað.
AFP
Birkenstock sandalarnir
eru úr umhverfisvænu efni.
13.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
MÚSIKEGGIÐ
tryggir að þú fáir eggið þitt
soðið eins og þú vilt hafa það.
Þú setur það með eggjunum
í pottinn við suðu, og þegar
eggin eru linsoðin heyrist:
„Killing me softly“
og harðsoðin:
„Final Countdown“
Skólavörðustíg 12 • www.minja.is • facebook: minja
Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin.
Músikeggin (EggStream) er samstarfsverkefni þýska hönnunarteymisins „Brain Stream“
Verð aðeins 5.500 kr.
Se
nd
um
íp
ós
tk
rö
fu
·
s.
52
88
20
0
Grimmur þorsti?
Brúsi sem bítur frá sér
Þú getur stungið drykkjarbrúsanum í rassvasann eða hengt hann í
beltið þegar hann er tómur. Skrímslabrúsi með karabínuhanka 300 kr.