Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.7. 2014
Matur og drykkir
V
ið buðum heim hluta af hjólahópnum hans Ella en við vorum að
fagna því að þeir brilleruðu í WOW-cyclothoninu um daginn
undir nafninu Workforce B,“ segir Sólveig Eiríksdóttir, eða
Solla eins og hún er jafnan kölluð en þau Elías Guðmundsson,
eða Elli, eru þekkt fyrir hráfæðisstaðinn sinn Gló og að sjálfsögðu var
orkumikið hráfæði á borðum fyrir hjólreiðakappana.
„Þegar ég setti saman matseðilinn hafði ég í huga að þetta eru allt
matmenn og miklir íþróttagarpar. Því vildi ég hafa þetta bragðgott og
mettandi svo þeir sætu ekki eftir með gaulandi garnir,“ segir Solla og
hlær.
Hún bætir við að sig hafi líka langað til að kynna kelpnúðlurnar fyrir
hópnum, en það eru eins konar þörunganúðlur sem hún er afar hrifin af.
„Kvöldið heppnaðist frábærlega, það var hlegið út í eitt enda mikið og
skemmtilegt sögufólk og húmoristar,“ segir Solla en hópnum þótti gott að
láta líða úr sér og snæða dýrindis ljúffenga og holla rétti eftir þrekvirkið.
Solla notar gjarnan léttari uppskriftir á sumrin en á veturna og segir
þessar frekar auðveldar að útbúa. „Ég notaði ekki þurrkofninn í þetta
skiptið – hann nota ég mest á sumrin. Þá er hráefnið líka miklu sætara á
bragðið og það þarf minna umstang í kringum þetta allt.“
Elli hefur verið að fikra sig áfram í hjólreiðunum síðustu tvö árin. „Ég
var alltaf að reyna að hlaupa en eftir að kílóunum fór að fjölga urðu
hlaupin erfiðari svo að hjólreiðarnar urðu ofan á. Hjólreiðar eru frábært
sport, þú reynir á allan líkamann og ekki eins líkamlega erfiðar og hlaup,
það er auðveldara að stjórna álaginu. Svo er fátt betra eftir góðan hjól-
reiðatúr en að fá sér að borða.“
Solla eldar yfirleitt léttari rétti á þessum árstíma.
Í salatið voru þessi fagurlituðu
hindber meðal annars notuð.
HJÓLREIÐAKAPPAR SNÆDDU LJÚFFENGT HRÁFÆÐI
Uppskeruhá-
tíð kappanna
* „Þegar ég setti saman mat-seðilinn hafði ég í huga aðþetta eru allt matmenn og miklir
íþróttagarpar. Því vildi ég hafa
þetta bragðgott og mettandi.“
Gestir frá vinstri: Gunn-
hildur Guðnadóttir, Pétur
Hannesson, Ævar Østerby
Christensen, Guðbjörg
Friðriksdóttir, Elli og Solla,
Gunnar Svanbergsson, Sól-
veig Ása Árnadóttir, Róbert
Lee Tómasson og Agnes
Helga Bjarnadóttir.
HJÓNIN Á GLÓ, SÓLVEIG EIRÍKSDÓTTIR OG
ELÍAS GUÐMUNDSSON, BUÐU HJÓLAHÓPI
ELÍASAR Í DÁSAMLEGT SUMARBOÐ.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
4 portobellosveppir
2 dl pekanhnetur
1 msk. límónusafi
1 msk. ólífuolía
1 msk. tamarisósa
1 stórt hvítlauksrif eða 2
minni
1 tsk. timian
½–1 tsk. sjávarsaltflögur
smá nýmalaður svartur pipar
Allt sett í matvinnsluvél og maukað. Setjið inn í ísskáp og leyfið að
stífna í 10-15 mínútur áður en þið setjið á disk og berið fram.
Portobello-
paté
2 avókadó, afhýdd og skorin í litla teninga
1 mangó, afhýtt og skorið í litla bita
1 granatepli, kjarnarnir pillaðir úr hýðinu
¼ rauðlaukur, smátt saxaður
½ dl smátt saxaður ferskur kóríander
1 rauður chili, steinhreinsaður og smátt sax-
aður
Sjávarsaltflögur eftir smekk
Allt sett í skál og blandað saman.
Avókadósalsa
Húsbóndinn sker niður girnilegt grænmetið.