Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Blaðsíða 27
D
óttir þeirra Ástu og Sigurðar er tveggja ára
gömul og því lagði Ásta mikla áherslu á að
heimilið væri barnavænt. „Mér finnst
skipta mestu máli að öllum fjölskyldu-
meðlimum líði vel. Ég vil að litla skottan mín fái að
njóta sín inni á heimilinu án þess að ég sé alltaf hlaup-
andi á eftir henni að banna hitt og þetta,“ segir Ásta,
sem hefur gaman af því að breyta, bæta og fegra
heimilið og halda veislur og viðburði. „Heimilið mitt
þarf fyrst og fremst að vera hlýlegt og ég vil að öllum
sem koma í heimsókn líði vel hjá okkur,“ útskýrir
Ásta, sem kveðst ekki pæla mikið í merkjum þegar
hún verslar. „Stíllinn minn er mjög blandaður. Ég
kaupi hluti sem mér þykja fallegir en spái ekki endi-
lega í merkið. Mér þykir þó auðvitað gaman að kaupa
merkjavörur af og til.“ Á heimilinu er góð blanda af
nýjum og gömlum hlutum. KitchenAid-hrærivélin er til
að mynda frá árinu 1973, en hana fengu foreldrar Ástu
í brúðkaupsgjöf. „Ég fékk hrærivélina svo frá for-
eldrum mínum og lét sprauta hana appelsínugula og
núna er hún eins og ný,“ útskýrir Ásta. Ásta nýtur
þess að sitja við borðstofuborðið sitt með kaffibolla og
dagblöð eða tölvuna sína, sem hún notar meðal annars
til að sækja innblástur. „Pinterest er frábær síða, þar
get ég eytt endalausum tíma í að skoða fallegar hug-
myndir fyrir heimilið,“ segir Ásta.
Appelsínugula hrærivélin frá KitchenAid nýtur sín vel í eldhúsinu.
Veggur barnaherbergisins er skreyttur með límmiða sem Ásta keypti á Etsy.
Fjölskyldumyndunum hefur hér verið raðað í hjarta.
Hrærivélin frá árinu
1973 er eins og ný
FAGURKERINN ÁSTA SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR FLUTTI Í HÖFUÐBORGINA
FRÁ VESTMANNAEYJUM ÁRIÐ 2003. ÁSTA BÝR NÚ Í MIÐBÆNUM ÁSAMT
SAMBÝLISMANNI SÍNUM SIGURÐI ÁRNASYNI, DÓTTUR ÞEIRRA ÁSTHILDI EVU
OG HUNDUNUM DONNU OG UGLU Á HLÝLEGU OG BARNVÆNU HEIMILI.
Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Ásta Sigríður Guðjóns-
dóttir hefur gaman af því
að blanda saman gömlum
og nýjum munum.
NÝTT OG GAMALT Í BLAND
Morgunblaðið/Þórður
13.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Heimili og hönnun
R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I
G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0
FYRIR LIFANDI HEIMILI
IITALA TAIKA FAT.
Verð: 13.990
S&P MORTEL.
Verð: 8.990
S&P MORTEL.
Verð: 10.990
IITALA TAIKA DISKUR
Verð: 6.490
ALESSI ÁVAXTASKÁL
Tvær stærðir.
Verð: 21.990 / 26.990