Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Blaðsíða 51
13.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Áður en flóðið kemur er fyrsta
skáldsaga Helenu Thorfinn og
hefur fengið afar góða dóma.
Sófía er yfirmaður þróunar-
aðstoðar í sænska sendiráðinu í
Dhaka, höfuðborg Bangladesh,
en lífið í nýju landi kemur róti á
hana og erfitt reynist að halda í
gildismat sem virtist svo sjálf-
sagt við eldhúsborðið heima í
Svíþjóð. Á sama tíma breytist líf
systranna Nazrin og Minu sem
búa í þorpi úti á landi. Þær taka
ákvörðun um að segja skilið við
ömurleikann og hefja nýtt líf í
stórborginni. Það reynist sann-
arlega ekki auðvelt.
„Bók sem allir verða að
lesa,“ sagði gagnrýnandi Fem-
ina.
Flókin
vandamál
Í fyrra var Maður sem heitir Ove eftir
Fredrik Backman sumarsmellurinn á Ís-
landi. Nú hefur Amma biður að heilsa
eftir Backman tekið við keflinu. Hún hefur
verið fimm vikur samfleytt í efsta sæti met-
sölulistans í Eymundsson og er ekkert lát á
vinsældum bókarinnar.
Nokkrar umræður hafa verið á samfélags-
miðlunum um bókina og lét útvarpskonan
Sirrý, Sigríður Arnardóttir, svo um mælt
að bókin væri „dásamleg, mannbætandi og
skemmtileg – frábær sumarlesning“. Les-
endur virðast vera á sama máli. Þess má geta
að bókin, sem er önnur skáldsaga höfundar,
fékk mjög góða dóma í heimalandinu, Sví-
þjóð.
Aðalpersónan í Amma biður að heilsa er
Elsa, sem er sjö ára og býr með mömmu og
ömmu í fjölbýlishúsi. Elsa og amma hennar
eru nokkuð öðruvísi en flestir aðrir. Í ljós
kemur að íbúar hússins búa yfir mögnuðum
örlagasögum sem Elsa flækist inn í og um leið
fer óvenjuleg atburðarás af stað. Amma biður að heilsa er sumarsmellur ársins.
SÉRVITUR AMMA
SLÆR Í GEGN
Hinn 20. september næstkomandi verður
Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku í
Mjóafirði 100 ára. Af því tilefni kemur út
hjá Bókaútgáfunni Hólum vandað af-
mælisrit eftir afmælisbarnið sjálft, Örnefni
í Mjóafirði. Þar verður að finna á 320
blaðsíðum örnefnaskrá allra jarða við
Mjóafjörð, ásamt frásögnum tengdum ör-
nefnunum og öðrum fróðleik. Í bókinni
verða einnig kort, litmyndir sem örnefni
hafa verið merkt inn á og fjöldi annarra
mynda.
Vilhjálmur stundaði lengi kennslu og bú-
skap í heimabyggð sinni. Þekktastur er
hann þó fyrir hin pólitísku störf sín, en
hann var lengi alþingismaður fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Austurlandskjördæmi og menntamálaráðherra 1974-1978. Þá hefur hann
skrifað fjölda bóka um menn, málefni og heimabyggð sína. Sú bók sem nefnd er hér að ofan
verður síðasta ritverk hans. Hefur enginn á Íslandi staðið fyrir bókaútgáfu svo gamall og raun-
ar hefur Vilhjálmur á undanförnum árum sífellt bætt eigið Íslandsmet hvað þetta varðar.
Aftast í bókinni verður Tabula gratulatoria (heillaóskaskrá) og þar geta þeir sem vilja sýna
Vilhjálmi heiður á þessum tímamótum og óska honum til hamingju með áfangann skráð nafn
sitt og um leið gerst áskrifendur að bókinni, sem kostar kr. 6.480 með vsk. og sendingargjaldi.
Hægt er að panta bókina í netfanginu erna@holabok.is eða í síma: 587-2619.
VILHJÁLMUR Á BREKKU 100 ÁRA
Öðlingurinn Vilhjálmur Hjálmarsson fagnar 100 ára
afmæli sínu seinna á þessu ári með útgáfu bókar.
Bækur Dorothy Koomson hafa
notið vinsælda hér á landi og
komast á metsölulista. Saffron
tekst á við sorg og söknuð eftir
að eiginmaður hennar var
myrtur, en enginn veit hver
varð honum að bana eða hvers
vegna – nema ekkja hans. Svo
fer morðinginn að skrifa henni
bréf og við það bætist að dóttir
hennar er komin í ógöngur.
Saffron leitar athvarfs í matar-
gerð sem var yndi hins myrta
eiginmanns.
Sár söknuður
og athvarf í
matargerð
Fjölbreytilegar
bækur um
sterkar konur
NÝJAR BÆKUR
KONUR ERU ÁBERANDI Í BÓKUM SEM KYNNTAR
ERU ÞESSA VIKUNA. KONUR ERU AÐALPERSÓN-
UR SKÁLDSAGNANNA ÁÐUR EN FLÓÐIÐ KEMUR
OG BRAGÐ AF ÁST. KONUR ERU SÍÐAN Í LYKIL-
HLUTVERKI Í FRÁSÖGNUM AF MANNLÍFI Á
HORNSTRÖNDUM, SANNAR KJARNAKONUR ÞAR
Á FERÐ.
Óliver Máni og töfradrykkurinn er
barnabók eftir Sue Mongredien,
myndskreytt af Jan McCafferty og
ætluð sjö ára börnum og eldri.
Óliver Máni er einn af dugleg-
ustu nemendunum í Galdraskól-
anum. Svo kemur að því að hann á
að keppa í Galdrakeppni ársins í
yngri flokkum. Getur hann búið til
töfradrykkinn sem færir honum
fyrstu verðlaun?
Óliver og
galdrakeppnin
Hornstrandir og Jökulfirðir - Ýmsar frásagnir af
horfnu mannlífi er þriðja bókin þar sem rifjaðar
eru upp fráasagnir af Hornstrendingum. Í þessari
bók er haldið uppi merki kvenna í sögu Horn-
stranda og birtar ýmsar frásagnir þar sem þær eru
í aðalhlutverki. Einnig er þarna að finna ferðasögu
Þorvaldar Thoroddsen um Hornstrandir. Hall-
grímur Sveinsson tók saman efni bókarinnar.
Vaskar konur á
Hornströndum
* „Hvað er uppreisnarmaður? Maðursem segir nei.“ Albert Camus BÓKSALA 2.-8. JÚLÍ
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Amma biður að heilsaFredrik Backman
2 Frosinn Anna og Elsa eignastnýjan vin
Walt Disney
3 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
4 Vegahandbókin 2014Steindór Steindórsson
5 Stúlkan frá Púertó RíkóEsmeralda Santiago
6 NicelandKristján Ingi Einarsson
7 Frosinn - ÞrautirWalt Disney
8 Skrifað í stjörnurnarJohn Green
9 Bragð af ástDorothy Koomson
10 DægradvölBenedikt Gröndal
Kiljur
1 Amma biður að heilsaFredrik Backman
2 Stúlkan frá Púertó RíkóEsmeralda Santiago
3 Bragð af ástDorothy Koomson
4 DægradvölBenedikt Gröndal
5 Síðasta orðsending elskhugansJojo Moyes
6 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
7 SkuggasundArnaldur Indriðason
8 Sannleikurinn um mál Harrys QJoel Dicker
9 MeistarinnHjört & Rosenfeldt
10 Maður sem heitir OveFredrik Backman
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Neyðin kennir naktri
konu að spinna.