Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Side 10
*Hljóp í Akureyrarhlaupinu og kom rúmumfjórum mínútum á undan Kára Steini í mark.Geir Kristinsson Aðalsteinsson, fv. forseti bæjarstjórnar Akureyrar á Facebook. Hann fór 5 km en Ólympíufarinn Kári Steinn Karlsson 10 km! Landið og miðin SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is UM ALLT LAND HORN Vegag rhef 1 t HAUKADALUR Sex frönsk ungmenni eru komin til Þingeyrar til tveg vikna dvalar til að taka þá í verkefni um endurreisn franska grafreitsins í Haukadal. Frá þessu er gr vef Bæjarins besta. Ungme eru á aldrinum 18-25 ára og vonast þeir sem standa að komu þeirra til þess að heimamenn á svipuðum a taki þátt í verkefninu. Von r til að svipuð ferð til Frakk standi þeim til boða. SKÁLHOLT Efnt verður til pílagrímagö og endað á Skálholtshátíð Rifjuð verður upp saga Da og Ragnheiðar Brynjólfsdóttu i er það sr. Halldór Reyniss Hruna sem leiðir gönguna í Stóra-Núpskirkju föstud spölur dagana þrjá og víða lýkur í Skálholti og tekið þ FLJÓTSDALUR Kanadísk-íslenski ljósmyndarinn Arni Haraldsson hefur opnað ljósm á Skriðuklaustri í Fljó ber heitið Litbrigð henni eru 12 ljós Lagarfljóti árið 2001 Myndirnar eru tekna ekki síst á björtum s nýja sýn á Fljótið. Í tilkyn hafi heillast af áhrifum mismuna miðnætursólarinnar. Sýningin stend J JEY AF ARÐARSVEIT Fimmtíu og sex sóttu um starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit, 44 karlar og 12 konur. „Þessi mikli fjöldi umsókna kom ánægjulega á óvart en staðfestir að í Eyjafjarðarsveit er eftirsóknarvert að búa og starfa,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur rann út á mánudaginn var og verður listi með nöfnum umsækjenda birtur strax eftir helgi. Þ egar ég var til sjós fyrir nokkrum misserum las ég léttmelta krimma og fannst það góð af- þreying. Í landi hef ég aftur legið í Þrautgóðum á rauna- stund, bókum sem eru heill hilluf- aðmur af sjóslysum. En kannski ætti ég að snúa þessu við; lesa glæpasögur á þurru landi en um sjóslys þegar komið er út á græn- an sjó,“ segir Eyþór Jóvinsson, bóksali á Flateyri. Ættarsilfur í eina öld Það var í síðasta mánuði sem Ey- þór opnaði Bókabúðina á Flateyri, en hún er eins konar ættarsilfur í fjölskyldu hans. Fólk utan hennar hefur reyndar haft verslunar- reksturinn með höndum síðustu ár- in en nú er starfsemin aftur komin í réttar hendur ef svo má segja. Sögu þessa má rekja aftur um tæplega eina öld, allt aftur til árs- ins 1915. Þá opnaði Jens Eyjólfs- son búðina og árið eftir kom Jón, bróðir Jens og langafi Eyþórs, að rekstrinum. Það var svo árið 1918 sem búðin fékk hið formlega nafn Verslun Bræðurnir Eyjólfsson, eins og stendur á skilti yfir útidyrunum. „Langafi og bræður hans tveir, Kristinn og Jens, stóðu saman að þessu fyrirtæki og lengi framan af var þessi verslun altæk þjónustu- stofnun í byggðarlaginu. Hér fékkst allt milli himins og jarðar, þótt bóksalan tæki annað yfir á seinni stigum. Langafi lést 1950 og þá tók langamma mín, Guðrún Arnbjarnardóttir, við. Svona hefur þetta nú rúllað frá einni kynslóð til annarrar og sjálfur segist ég upp- alinn hér,“ segir Eyþór. Þrátt fyrir að Flateyri sé lítið og fámennt þorp ber staðurinn á margan hátt svip fjölmennra bæja, sem vitnar um að eitt sinn var þorp þetta á sinn hátt stórveldi. Sem götunafn er Hafnarstræti sannarlega nokkuð stórt orð, borið saman við til dæmis Reykjavík, og bókabúðin er í húsi númer 3. Og þegar inn er komið stendur Eyþór, klæddur í fínu fötin, við skenkinn. Leiðbeinir fólki sem kannar úrvalið í bókahillunum þar sem kennir ým- issa grasa. Og bækurnar eru seld- ar eftir vigt; kílóið kostar 1.000 kr. og sé vel valið fæst talsvert fyrir peninginn. „Það má lýsa þessu bókasafni með ýmsum orðum – og við getum til dæmis sagt að hér séu metsölubækur jólanna langt aftur í tímann,“ segir Eyþór og heldur áfram: „Annars er merkilegt hvað karlabækur eru áberandi, til dæm- is ævisögur stjórnmálamanna. Þá er hér líka safnið komplett af Betri helmingnum; bókum sem komu út fyrir um 20 árum þar sem konur karla sem þá voru áberandi sögðu af sér, sínu og eiginmanninum. Eitthvað segir mér að svona bækur væru aldrei gefnar út í dag, svo mikið hafa sjónarmið um jafnrétti kynjanna breyst. Og svo er hér líka, eins og þú sérð, skáldsagna- dót, þýddar bækur, margs konar fróðleikur og innansveitarbækur og Andrésblöð alveg í bunkum,“ segir Eyþór, sem kveðst njóta sín vel í hlutverki bóksalans. Hann stefndi þó á aðrar brautir, en margvíslegra aðstæðna vegna féllu vötnin vestur. „Já, ég var kominn suður og var í blússandi góðæri byrjaður að læra arkitektúrinn í Listaháskóla Ís- lands. Þá gilti að byggja glæsihýsi og byggingarefnin voru gjarnan gler og stál. Svo hrundi allt og inn- takið í náminu breyttist. Kennar- arnir fóru í ríkari mæli að fjalla um hvernig hanna skyldi hús byggð úr vistvænum og endurvinn- anlegum efnum eins og timbri og torfi,“ segir Eyþór, sem kaus að gera hlé á námi sínu þegar BA- gráðan var í höfn. Að skapa sér vinnu „Kannski er bóksalan ekki svo ólík arkitektúrnum; hér renna út gaml- ar bækur og á sinn hátt er þetta endurvinnsla. Svo snérist þetta líka að hluta til um að skapa sér vinnu á heimaslóðum,“ segir Eyþór, sem til viðbótar við bóksöluna á Flat- eyri rekur Vestfirsku búðina við Aðalstræti á Ísafirði. Þar fást minjagripir, bækur og fleira slíkt tengt Vestfjörðum sem rennur út eins og heitar lummur þegar ferða- vertíðin er í hámarki. FLATEYRI Ævisögur og Andrésblöð HAFNARSTRÆTI ER STÓRT ORÐ EN SVO HEITIR AÐALGATAN Á FLATEYRI. HUNDRAÐ ÁR OG FJÓRÐI ÆTTLIÐURINN STENDUR NÚ VAKTINA Í BÓKABÚÐINNI. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Margra grasa kennir í bókabúðinni. Eyþór Jóasavinsson selur bækur og býður fólki brjóstsykur. Það er góð blanda. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjóðarfuglinn, rjúpa frá Guðmundi frá Miðdal, er í öndvegi í búðinni. 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.7. 2014

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.