Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Qupperneq 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Qupperneq 34
Tíska *Árið 1914 kom á markað fyrsta förðunarvaran frá snyrti-vöruframleiðandanum Max Factor. Í tilefni þess að 100 ár erusíðan Max Factor-snyrtivörurnar komu á sjónarsviðið varleikkonan Gwyneth Paltrow sett í hlutverk nokkurra glæsi-legustu leik- og söngkvenna seinustu áratuga. Með hjálpförðunarfræðinga Max Factor má sjá hvernig Paltrowsvipar til klassískra stjarna á borð við Audrey Hepburn, Brigitte Bardot, Farrah Fawcett og Madonnu í nýju aug- lýsingaherferðinni, sem vakið hefur töluverða athygli. Gwyneth Paltrow í hlutverki klassískra stjarna Paltrow í hlutverki Madonnu. Paltrow sem Brigitte Bardot. Hvar kaupir þú helst föt? Það er óhætt að segja að ZARA eigi hug minn allan þegar kemur að því að versla hér á landi. Ég fer alltaf fyrst þangað. Áður en ég fór út í nám til Ítalíu var ég mikil eyðslukló þegar kom að innkaupum, öll launin fóru í föt og ég sá ekkert athugavert við það. En í dag er ég ekki eins hvatvís og næ að hemja mig. Ég vil frekar fjárfesta í góðum, tímalausum og fáum vörum sem endast mér lengur. Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Úff! Ég man eftir því, á mínum yngri árum, þegar maður fylgdi bara straumnum og tók til dæm- is þátt í neon-netatískunni. En annars hef ég verið frekar jarðbundin síðustu ár þegar kemur að tískubylgjum. Hvað hefur þú helst í huga þegar þú velur föt? Fyrst og fremst hugsa ég alltaf um notagildi, flíkin verður að vera „edgy“ en samt sem áður tímalaus. Ég spái líka mikið í þægindin og það er ástæðan fyrir því að ég á ekki marga þrönga og stutta kjóla. Svo reyni ég að vanda valið þegar kemur að mynstri, annars fæ ég fljótt leið. Á venjulegum degi klæði ég mig í háar aðsniðnar buxur, skyrtu, kápu og þægilega hæla. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Í fljótu bragði detta mér í hug Olsen-tvíeykið, bloggarinn Kenza, Blake Lively, Elle Ferguson og Jessica Alba og svo er Olivia Palermo í miklu uppáhaldi. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Nei, svo sem ekki, en auðvitað standa alltaf einhver nöfn upp úr. Ef ég ætti að velja draumaflík frá þekktum fatahönnuði yrði líklega guðdómlega fallegur brúðar- kjóll frá Veru Wang fyrir valinu. Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa þér? Ég myndi líklega fjárfesta í tösku frá Chanel eða Hermés Birkin. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert færirðu? Annaðhvort færi ég til Chicago í kringum 1920 í allt glysið eða til New York um 1960 í einfalda og fágaða klæðaburðinn sem Audrey Hepburn gerði frægan. Hvernig myndir þú lýsa fatastíl þínum? Ég myndi lýsa honum sem frekar kvenlegum, einföldum með smá snúningi. Fyrir mér geta flottar buxur og falleg yfirhöfn aldrei klikkað. Hver eru bestu fatakaupin þín? Mín allra bestu kaup eru líklega allar yfirhafnirnar sem ég er búin að safna á síðustu árum. Mér þykir fátt fallegra en flottir jakkar, síðar kápur og pelsar. Ég pæli mikið í þeim og er óhrædd að spyrja vegfarendur hvar þeir fengu yfir- hafnir sínar ef þær grípa augað. En þau verstu? Þau verstu eru líklega allir þessir stuttu magabolir sem ég ætlaði að nota síðasta sumar. Þeir áttu að vera innblástur til að koma mér í betra form, en núna sitja þeir aftast í fataskápnum og hafa gert lengi. Ég lærði að kaupa aldrei aftur flík sem ég ætla mér að passa í seinna, frekar að rokka það sem ég hef. Svo verð ég að nefna fallegu og óþægilegu hælana sem ég festi kaup á, þeir hafa aldrei séð dagsins ljós en tilheyra mikilvægu hlutverki í forstofu minni sem skraut. ÞÆGINDI SKIPTA MIKLU MÁLI Sara Dögg kýs að ganga í þægilegum fötum og fer því sjaldan í mjög háa hæla. Hælarnir notaðir sem stofustáss SARA DÖGG GUÐJÓNSDÓTTIR, EINN STOFNENDA FEMME.IS, ER MIKIL ÁHUGAKONA UM TÍSKU OG INNANHÖNNUN. SARA SEGIR STÍL SINN VERA KVENLEGAN OG EINKENNAST AF GLAMÚR OG ÞÆGINDUM. SARA KVEÐST HAFA VERIÐ HVATVÍS Á SÍNUM YNGRI ÁRUM ÞEGAR HÚN KEYPTI FÖT EN Í DAG VANDAR HÚN VALIÐ OG REYNIR EFTIR BESTU GETU AÐ FJÁRFESTA Í TÍMALAUSUM OG EIGULEGUM FLÍKUM. Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Audrey Hepburn var svo sannarlega fáguð í klæðaburði. Sara Dögg er hrifin af Chanel töskunum. Vera Wang gerir guð- dómlega brúðarkjóla að mati Söru. Olivia Palermo er alltaf smart. Sara Dögg er hrifin af fallegum kápum. Þessi kemur úr 2015 vor/sumarlínu Mango.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.