Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Side 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Side 38
Fjármál heimilanna Miklir flutningamánuðir Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Eyþór Margir flytja í lok sumars. *Leigjendur sem hyggja á flutninga ættu að verasérstaklega vakandi fyrir húsnæðismöguleikum íágúst og september, en þessa tvo mánuði ársinsvirðist fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúð-arhúsnæði ná hámarki. Ætti því að eiga von ábæði fleiri lausum íbúðum á þessum tíma, þegarleigjendur færa sig milli staða, en líka meiri sam- keppni um íbúðirnar enda margir að leita. Þriðji umfangsmesti mánuðirinn er svo janúar. Sumarið er annatími hjá GuðbrandiBenediktssyni, sagnfræðingi ogsafnafræðingi, en hann er nýskip-aður safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur, sem sameinar Árbæjarsafn, Landnámssýninguna í Aðalstræti, Ljós- myndasafn Reykjavíkur, Sjóminjasafnið og Viðeyjarsafn. Hvað eruð þið mörg í heimili? Við erum fimm í fjölskyldunni og búum í hinu frábæra hverfi Ártúnsholti. Rakel Reynisdóttir hjúkrunarfræðingur er eigin- kona mín, svo eru það börnin Arnheiður Erla, verðandi menntskælingur, Benedikt sem er í Árbæjarskóla og Brynja Kristín í Ártúnsskóla. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Það er að sjálfsögðu alltaf til lýsi, mjólk, ostur og ávaxtasafi. Já, og haframjöl. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Ætlir það séu ekki um 40-50 þúsund að jafnaði. Hvar kaupirðu helst inn? Helst fer ég í Krónuna. Það er svo langt að fara suður í Fjarðarkaup, þó að ég haldi mikið upp á þá búð frá því að ég bjó í Garðabæ í fyrndinni. Hvað freistar helst í matvörubúðinni? Maxi popp, sælkeraólífur og svo sushi, en maður getur fengið alveg prýðilegt sushi í Krónunni. Hvernig sparar þú í heimilishaldinu? Fjölskylda mín er mjög samheldin og íhalds- söm á hefðir. Við förum alltaf til foreldra minna í sunnudagssteik. Fyrir utan gleði og ánægju sem það veitir hefur það reynst afar ekónómískt. Hvað vantar helst á heimilið? Það er fátt sem mér dettur í hug. Vissulega mætti vera meiri sól í garðinum svona al- mennt þetta sumarið en við því er fátt að gera. Eyðir þú í sparnað? Já, ég reyni að leggja eitthvað fyrir og svo að eyða sem mestu í eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt, sem sparar áhyggjur, svekk- elsi og leiðindi. Skothelt sparnaðarráð? Það er auðvitað afar gagnlegt og hverjum manni hollt að koma í heimsókn á Árbæj- arsafn og kynnast lífi og kjörum fólks á ár- um áður, m.a. neyslu og húsakosti. Þannig geta menn sett eigin tilveru í ákveðið sam- hengi. Fyrir utan gagnsemina er heimsókn á safnið ákaflega skemmtileg. Og svo má auð- vitað spara sér stórfé með því að kaupa Menningarkort og vera fastagestur á söfn- um borgarinnnar. GUÐBRANDUR BENEDIKTSSON SAFNSTJÓRI Steik hjá foreldrunum alla sunnudaga Úti í verslun er það Maxi-poppið sem Guðbrandur þarf að varast. Morgunblaðið/Styrmir Kári Að mati Aurapúkans eru Íslend- ingar of feimnir við að prútta og semja um sín reglulegu útgjöld. Eitt besta sparnaðarráðið sem Púkinn getur veitt er einmitt að taka upp símann og hringja í bankann, greiðslukortafyrirtækið, trygginga- félagið eða símafyrirtækið og biðja um betri kjör, tilboð eða afslætti. Aurapúkinn skoðaði t.d. trygg- ingamálin sín nýverið og sá að ann- að félag var að bjóða betri kjör. Púkinn tók upp símann og næsta dag var gamla tryggingafélagið hans búið að jafna kjörin og gott betur. Einnig átti Púkinn í vandræðum með að borga inn á greiðslukort fyrr á árinu. Hann hringdi inn, mætti þar miklum skilningi og fékk að sleppa við sektir og gjöld sem ella hefðu bæst við skuldina. Það sakar ekki að reyna og tíma- kaupið getur verið heldur betur gott fyrir stutt símtalið. púkinn Aura- Sparað með einu símtali H vað gæti verið meira virði en peningar? Samkvæmt nýlegri breskri könnun eru það góð samskipti við vinnufélaga og yfirmann og viðráðanlegt ferðalag milli heimilis og vinnustaðar. Bresku endurskoðendasamtökin AAT framkvæmdu rannsókn þar sem rýnt var í þá þætti sem helst eru taldir líklegir til að hafa áhrif á starfsánægju fólks og ákvarðanir þeirra á framabrautinni. Spyrj- endur ræddu við tvö þúsund manna úrtak og komust m.a. að því að upphæðin á launaseðlinum ræður ekki öllu um hversu ham- ingjusamt fólk er í starfi. Leiddi könnunin í ljós að átta af hverjum tíu svarendum sögðust myndu segja nei við ríflegri launa- hækkun ef betri launum fylgdi að þurfa að vinna með óviðkunnan- legu fólki eða í óskemmtilegu um- hverfi. Reyndist samstarfsfólkið mikilvægasti áhrifaþátturinn fyrir starfsánægju. Settu svarendur líka eðli starfsins og jákvætt samband við yfirmanninn ofar launum. Sömuleiðis var svarendum mikil- vægt að þurfa ekki að eyða of miklum tíma í að komast til og frá vinnu. Álag og umbun Fjallar Daily Mail um niðurstöður rannsóknarinnar og bendir m.a. á að í ljós kom að margir svarenda höfðu hafnað betur launuðu starfi sem skert hefði frítíma og sam- verustundir með fjölskyldu- meðlimum. Þriðjungur svarenda sagðist hafa sagt vel borguðu starfi lausu, ýmist því þeim þótti kjörin ekki bæta upp fyrir aukið álag, yfirmenn sýndu ekki að störf þeirra væru vel metin, eða vinnan hætti að verða skemmtilega krefj- andi. Þá sögðust aðeins 15% svarenda óánægð í starfi, aðallega vegna eðlis vinnunnar eða vegna þess að þeim þætti yfirmaðurinn ekki meta þá að verðleikum. Aðrar áherslur vestanhafs Áhugavert er að bera þessa nið- urstöðu könnunarinnar saman við rannsókn sem gerð var í Banda- ríkjunum fyrr á þessu ári, af rannsóknafyrirtækinu Vision Criti- cal. Þar kom í ljós að fimmtungur svarenda var óhamingjusamur í starfi. Svarendur vestanhafs sögðu starfsumhverfið og jafnvægi einka- lífs og vinnu skipta mestu fyrir starfsánægjuna en launin komu í þriðja sæti. Þar á eftir fylgdi að fá að vinna við það sem maður hefur yndi af, starfsöryggi og staðsetning vinnustaðarins. Spurðir hvers vegna þeir myndu íhuga að skipta um starf sagðist 51% bandarískra svarenda ekki fá nógu vel greitt en ríflega 30% sögðust tilbúin að hugsa sér til hreyfings því starfið byði ekki upp á að færast upp og áfram. ÁHUGAVERÐAR NIÐURSTÖÐUR BRESKRAR KÖNNUNAR Taka starfsánægju fram yfir hærri laun BRETAR VILJA GÓÐA VINNUFÉLAGA OG ÞÆGILEGAR SAMGÖNGUR TIL VINNU. Á MEÐAN VIRÐAST BANDARÍSKIR LAUNAMENN LEGGJA MEIRI ÁHERSLU Á LAUNIN OG VERA ÓHAMINGJUSAMARI Í STARFI. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Að finna rétta starfið snýst ekki bara um launin. Mynd úr safni frá bifvélaverkstæði. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.