Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.7. 2014 B réfritari minnist þess að fyrir mörgum árum var hann mættur í samtal í fréttaskýringarþætti Ríkisútvarps- ins. Er hann svaraði einni spurning- unni vísaði hann í ummæli stjórn- málamanns, sem þá var í forystuhlutverki. Spyrjandinn greip þá snöggt fram í og benti á að sá stjórnmálamaður væri ekki við- staddur í þættinum og því ekki við hæfi að vitna til hans. Reglur gera mannamun Jafnvel reyndustu mönnum getur brugðið við slíkt í sekúndubrot og velt fyrir sér hvort þeir hafi óviljandi gerst sekir um eitthvað sem sé siðferðilega óverjandi. Þetta litla atvik geymdist því vel í minni. Kannski þess vegna var betur tekið eftir því að í þessum sama þætti, á öðrum tímum og í fréttum og umræðuþátt- um, var sífellt verið að minnast á bréfritara og taka orð hans úr samhengi, þótt hann væri jafnan víðs fjarri, klína á hann ávirðingum af margvíslegu tagi og sumum þeirra mjög alvarlegum. Sérstakur umræðu- stjóri „RÚV“ kom mönnum iðulega á skrið í sínum þáttum og stofnunarinnar til að fjalla um þann sama, mönnum sem hann vissi gerla að hefðu ekki aðeins horn í síðu umræðuefnisins, heldur höfðu sýnt fjand- skap sinn opinberlega margoft. Sá sami, sem er einkar undirdánugur útlendingum, átti löng samtöl við erlenda „fræðimenn“ sem létu dæluna ganga um bréfritara og fóru með margs kon- ar fleipur, sem sérhver Íslendingur sem eitthvað fylgdist með, mundi þekkja sem slíkt og ekki una róg- inum. En umræðustjórinn kinkaði jafnan kolli svo ákaft að hefur vísast reynt á hálsliðina og flissaði stundum eins og til undirstrikunar. Í þessi hundruð skipta var bréfritari aldrei til staðar og aldrei boðið að bera hönd fyrir höfuð sér. Kannski hefur það verið gert af óvæntri tillitssemi við hann, enda hefði stapp- að nærri að vera full vinna að sinna hinum hlutlausa ríkisfjölmiðli einum, hvað þessi atriði varðar. Ósjálfráðir kippir Því er stundum haldið fram, eins og til afsökunar, að þeir sem Ríkisútvarpið hefur á oddi fyrir sig skynji ekki hversu fráleit framganga þeirra sé og væri það jafnvel þótt þeir byggju ekki við ríkar skyldur um að forðast hlutdrægni. Sá sem hastaði á bréfritara forð- um fyrir að nefna virkan en fjarstaddan forystumann í Samfylkingu til sögu hefur sennilega talið það sjálf- sagt. En þegar hann sjálfur og félagarnir og valin- kunnir viðmælendur þeirra fjölluðu sjálfir í hundruð skipta um fjarstadda menn, oft með ósönnum og meiðandi hætti, þá hafa þeir ekki skynjað neitt. Þeim sé hlutdræg framganga ósjálfráð, sjá ekki rangindin og hversu illa þeir einatt bregðast sínu hlutverki og lagalegum skyldum. Sumir telja að mjög langt megi ganga að heiðri og æru stjórnmálamanna. Lög lands- ins gefa ekki beina vísbendingu um það. En þeir sem gefa sig að opinberri umræðu og sækjast eftir að fá umboð frá almenningi telja flestir eðlilegt að fastar sé um þá fjallað en aðra. En ekki hafa þeir þó verið sviptir allri friðhelgi að þessu leyti. Niðurstöður dóm- Ósjálfráða fréttatauga- kerfið tekur skrítna kippi * En þetta óvenjulega bréf virðistekki hafa fengið neina umræðu,af hvaða ástæðum sem það er, og það virðist hvergi hafa verið birt. Margt er þar þó athyglisvert. Til dæmis það, hvernig Umboðsmaður Alþingis tal- ar til forseta Íslands… Reykjavíkurbréf 11.07.14

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.