Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Page 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.07.2014, Page 56
SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2014 „Nei, ég bjóst ekki við þessu. Mitt fyrsta markmið var að ná að safna 50.000 krónum en ég náði því strax fyrsta daginn svo ég ákvað að stefna á 100.000. Það tókst líka fljótt svo nú stefni ég á að safna 200.000,“ segir Aron Guðmundsson sem safnar áheitum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og hefur strax tek- ið forystu þar í söfnuninni og safnað mest allra hlaup- ara. Aron hleypur fyrir MND-félagið en móðir hans greindist með MND-taugasjúkdóminn á síðasta ári. Aron segist í kjölfarið hafa áttað sig á því að lífið er núna en það hafi á einu augabragði breyst; allt sem maður ætlaði að gera og upplifa seinna sé nokkuð sem megi ekki bíða. Hann vill gefa MND-félaginu eitthvað til baka, en félagið hafi reynst fjölskyldu hans afar vel. „Ég veit ekki af hverju þetta fór svona vel af stað, en við búum á Ísafirði, sem er lítið samfélag, og kannski hjálpar smæð samfélagins til. Fólkið hér er tilbúið til að styðja okkur og hjálpa og fólk þjappar sér saman,“ segir Aron og segir það afar góða tilfinningu. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram 23. ágúst en Aron ætlar að hlaupa 21 kílómetra. Hann segist ekki vanur hlaupari þótt hann hafi spilað fót- bolta og er hann strax byrjaður að æfa sig. Hægt er að styðja þá hlaupara sem hlaupa fyrir ýmis góð mál- efni á vefsíðunni hlaupastyrkur.is. UNDIRBÚNINGUR REYKJAVÍKURMARAÞONS Ísfirðingur með forystu Aron Guðmundsson safnar áheitum fyrir MND-félagið en móðir hans greindist með MND á síðasta ári. Hin árlega Nathan’s pylsukapp- átkeppni fór fram í New York á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, fjórða júlí. Hátíðin er ótrúlega vin- sæl og flykkjast þúsundir manna til að sjá keppendur troða í sig pylsum. Yfirskrift keppninnar er einföld. Komdu sem flestum pyls- um niður á 10 mínútum. Í kvennaflokki gerðust þau und- ur og stórmerki að Sonya Thomas, sem hefur unnið þessa keppni síð- an 2011, tapaði fyrir Miki Sudo frá Las Vegas. Thomas hafði unnið 11 kappátskeppnir í röð í Bandaríkj- unum og er af sérfræðingum vest- an hafs talin sú besta í kappáti kvenna. Sudo kom 34 pylsum niður og hrósaði sigri. Það voru engin óvænt tíðindi í karlaflokki þar sem Joey Chestnut fagnaði sigri með því að borða 61 pylsu á mínútunum tíu. Chestnut setti heimsmet í fyrra í þessari sömu keppni þegar hann át 69 pylsur. Um tíma var Chestnut að tapa fyrir Matt Stonie sem var bú- inn með 38 pylsur á fyrstu fimm mínútum. Meistarinn gaf þá í og vann titilinn áttunda árið í röð. Eftir keppnina fór hann á annað hné og bað unnustunnar sinnar Neslie Ricasa sem einnig keppir í kappáti. Hún sagði já. FURÐUR VERALDAR Sögulegt í kvenna- flokki Joey Chestnut og Miki Sudo með sigurbeltin sín sem sigurvegararnir fá. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR David Luiz Knattspyrnumaður. Villi Viðutan (e. Sideshow Bob) Karakter úr Simpson. Hrafnkell Örn Guðjónsson Trommari Agent Fresco. ÞÚ ÞARFT EKKERT ANNAÐ vodafone.is VODAFONE RED FRELSI ER KOMIÐ Í H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.