Morgunblaðið - 20.09.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.09.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2014 Bakkaðu upp veisluna EÐA NÆSTA FUND. 565 6000 / somi.is Við bjóðum upp á ferska og ljúffenga veislubakka og bjóðum ókeypis heim- sending á höfuðborgarsvæðinu ef pantaðir eru fjórir bakkar eða fleiri. Pantaðu í síma 565 6000 eða á somi.is. Touring Cars is seeking new partners Touring Cars is the market leader in motorhome rental business since 1982. Do you want to be part of our success story and gain access to hundreds of travel agencies around the world selling your motorhome rental product? Contact us today to learn more! touringcars.eu info@touringcars.eu +354 7830722 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta var hörkufín vika,“ segir Jó- hannes Hinriksson, staðarhaldari við Ytri-Rangá, en áin er komin á topp- inn yfir aflahæstu laxveiðiárnar. 380 laxar veiddust í vikunni. „Föstudaginn fyrir viku veiddist mjög vel, yfir 70 laxar á flugu. Þar á meðal voru mjög vanir veiðimenn með tvær stangir og þeir fengu 38 laxa. Þeir voru í moki og stunduðu veiðina líka stíft. Á sunnudaginn var byrjað að veiða með blönduðu agni og það gaf vel. Fyrstu tvær vaktirnar gáfu 102 laxa, á miðvikudag veiddust síðan 48 og 26 á fimmtudag, það er góð veiði. Þetta fæst á góða blöndu af maðki, spún og flugu,“ segir Jóhannes. Hann bætir við að ekki veiðist lengur ný- renningar en inn á milli séu „nýlegir fiskar í bland við eldgamla svarta“. Þá veiðist enn talsvert af stór- laxi. Ekki er enn búið að taka saman hve hátt hlutfallið af stórlaxi er í sum- ar en það er óvenjuhátt, eins og ann- ars staðar í laxveiðiám landsins. „Stórlaxinn hélt veiðinni uppi framan af en svo kom smálaxinn, sem betur fer. Við fengum ekki mikið af mjög litlum laxi, einhverja sem voru 1,1 til 1,2 kíló, en annars var smálaxinn venjulegur.“ Þegar Jóhannes er spurður hvort hann sé reiðubúinn að spá í veiðina næsta sumar segist hann viss um að hún verði miklu betri en nú. „Það var hlýrra vor en í fyrra og við sjáum betur en víðast hvar að seiðin gengu betur út en í fyrra. Vitaskuld er alltaf óvissa hvernig laxinum reiðir af í hafinu en ég er jákvæður,“ segir hann. Veitt er í Ytri-Rangá til 19. október. Jákvæðari tónn Laxveiðinni lýkur þessa dagana í hverri ánni á fætur annarri, en lengst er veitt í þeim sem voru opn- aðar síðast, fyrir norðan, og í hafbeit- aránum. Norðurá er ein ánna þar sem veiðimenn hafa tekið síðustu köstin í ár. Þar voru 924 laxar færðir til bókar og telst lélegt en meðalveiði í ánni er 1.570 laxar. „Þetta var svo sannarlega ekki eitt af betri sumrunum í Norðurá,“ segir Einar Sigfússon, sölustjóri ár- innar. „Það vantaði smálaxa. Hins vegar var mikið af stórlaxi og ég velti fyrir mér hvort það sé að skila sér á Vesturlandi að sleppingar á stórlaxi hafa aukist. Stórlaxinn bjargaði því sem bjargað varð.“ Einar vonast eftir góðu sumri næst og vísar einnig til þess hvað síð- asta vor var gott, og þá hagstætt seiðunum er þau gengu út. „Maður verður alltaf að hafa trú!“ segir hann og brosir. „En það veit enginn hvað gerist hjá seiðunum, litlir peningar eru settir í þessar rannsóknir og vís- indi.“ Einar tók við sölu leyfa í Norð- urá nú fyrir sumarið, í samstarfi við veiðifélagið, eftir að Stangaveiðifélag Reykjavíkur hætti að leigja veiðirétt- inn, og segir hann reksturinn hafa gengið vel. „Það vantaði vissulega meira af laxi en veiðimenn skiluðu sér í hús og það var ánægja með allan að- búnað.“ Eru veiðileyfasalar áhyggju- fullir eftir lélegt veiðisumar? „Jú, ekki er hægt að neita því,“ segir Einar. „Samt sem áður finnst mér mun jákvæðari tónn í mönnum nú en eftir sumarið 2012. Sala leyfa er hafin, undirtektir eru ágætar og mikið um fyrirspurnir að utan.“ Einar er annar eigenda Haf- fjarðarár og veiði lauk einnig þar í vikunni. „Við enduðum í 821 laxi og erum ánægð með það, miðað við allt og allt,“ segir hann en síðustu ár hafa veiðst á bilinu 1.500 til 2.000 laxar á sumri. Meðal síðustu laxanna sem veiddust nú var 105 cm hængur sem Anna Kristín Sigþórsdóttir, eig- inkona Einars, landaði og var það stærsti lax sumarsins í ánni, „svaka fiskur, rosalega sver“, segir Einar. „Við vorum áður búin að fá 103 og 102 cm laxa en þessi tók við gaflinn á veiðihúsinu og leiddi Önnu niður fyrir brú. Það var skemmtilegt. Það var hjá okkur eins og víða á Vesturlandi mikið af stórum löxum í sumar.“ Svo sannarlega ekki eitt af betri sumrum Morgunblaðið/Einar Falur Glíma Veiðimaður togast á við lax í Neðri-Johnson í Kjarrá. Veiði er lokið í Þverá og Kjarrá og veiddust 1.195 laxar.  Margar laxveiðiárnar langt undir meðalveiði Aflahæstu árnar Ytri-Rangá & Hólsá (20) Eystri-Rangá (18) Blanda (14) Miðfjarðará (10) Þverá / Kjarrá (14) Selá í Vopnafirði (7) Laxá á Ásum (2) Norðurá (15) Haffjarðará (6) Laxá í Aðaldal (18) Vatnsdalsá (7) Víðidalsá (8) Hofsá og Sunnudalsá (8) Langá (12) Stóra-Laxá (10) Laxá í Kjós (10) Grímsá og Tunguá (8) Elliðaárnar (4) Ormarsá (4) Svalbarðsá (3) Hítará (6) Laxá í Leirársveit (7) Affall í Landeyjum (4) Flókadalsá (3) Straumfjarðará (4) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Á sama tíma Staðan 17. september 2014 2013 2012 4.821 4.176 2.610 3.554 3.356 1.640 1.029 3.309 2.158 989 1.054 836 836 2.605 1.350 1.129 1.486 1.112 ** ** ** 920 570 885 785 3.887 2.740 832 1.545 738 1.444 192 953 1.146 426 305 291 291 1.010 450 494 434 830 ** 274 529 467 428 292 238 Heimild: www.angling.is*Lokatölur **Tölur liggja ekki fyrir. 2.453 2.373 1.903 1.602 1.195* 987 974 924* 821 819 716 625 602 557 530 482 458 440 436 395 391 351 342 332 315

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.