Morgunblaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 24
FRÉTTASKÝRING Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Úrslitin í skosku þjóðaratkvæða- greiðslunni hinn 18. september eru skýr: 55% vilja áfram vera innan Sameinaða konungdæmisins en 45% kusu aðskilnað við það. Kosninga- þátttakan var meiri en áður hefur þekkst í Bretlandi, 84,5%. Fyrra met- ið er frá árinu 1950 þegar 83,9% tóku þátt í þingkosningum í Bretlandi. Síðast þegar kosið var til skoska þingsins í Holyrood í Edinborg, árið 2011, komu aðeins 50% á kjörstað. Má því réttilega kalla þetta sigur fyrir lýðræðið. Vegna kosninganna tókst að virkja stærri hluta borg- aranna en áður til að nýta hinn lýð- ræðislega rétt og ákveða eigin fram- tíð. Að munurinn sé 10 stig ber með sér afdráttalausan vilja til að Skot- land verði áfram innan þeirrar um- gjarðar sem Sameinaða konung- dæmið (United Kingdom, UK) myndar og nær til Skotlands, Eng- lands, Wales og Norður-Írlands: Stóra Bretlands. Ef úrslitin hefðu orðið á hinn veg- inn, Skotar hefðu kosið sjálfstæði, stæðu ekki aðeins ráðamenn á Bret- landi frammi fyrir miklu og flóknu úrlausnarefni heldur einnig stjórn- völd í nágrannalöndunum við Norð- ur-Atlantshaf, samstarfsþjóðir innan Evrópusambandsins og Atlantshafs- bandalagsins. Viðfangsefnið eftir kosningarnar er ekki fjölþjóðlegt heldur snýr inn á við í Sameinaða konungdæminu sem breytir óhjá- kvæmilega um svip. Fyrirheit hafa verið gefin um breytingar á því. Hjarta já-baráttunnar Á kjördag sat ég á George-torgi í hjarta Glasgow og fylgdist með mannlífinu. Torginu hefur verið lýst sem hjarta já-baráttunnar og fram eftir kvöldi bjó fólkið sig undir sigur. Það hlaut hann í Glasgow, fjölmenn- asta kjördæmi Skotlands þar sem kjörsókn var þó ekki „nema“ 75%: 53,5% sögðu já og 46,5% nei. Næst- minnst var kosningaþátttakan í Dun- dee 78,8% en þar fengu já-menn bestu útkomuna: 57,3% en nei-menn fengu 42,7%. Já-menn hlutu meiri- hluta í aðeins fjórum af 32 kjör- dæmum Skotlands. Alls staðar utan Glasgow og Dundee var kjörsókn yfir 80%. Eftir að hafa heimsótt George-torg nokkrum sinnum fáa daga mína í Glasgow minnkaði áhugi minn á mál- stað já-manna. Þarna voru hópar sem kynntu öfgafull sjónarmið af ýmsu tagi en höfðu safnast saman undir merki já-baráttunnar. Þeir fengu tækifæri sem ekki hefði annars gefist til að nálgast almenning undir já- kvæðu merki en boðskapur þeirra var í eðli sínu of neikvæður fyrir mig. Einu sinni á mannsaldri Alex Salmond, forsætisráðherra Skotlands og leiðtogi skoskra þjóð- ernissinna, sagði í ræðum fyrir kjör- dag að atkvæðagreiðslan væri tæki- færi sem íbúar Skotlands fengju aðeins einu sinni á ævi sinni. Þeir yrðu að nýta rétt sinn því að enginn vissi hvort slíkt tækifæri gæfist að nýju. Það væri undir ráðamönnum í Westminster, breska þinginu, komið og allir vissu um hug þeirra í garð Skota. Að morgni föstudagsins 19. sept- ember sagði Salmond að meirihluti Skota hefði „at this stage“ – á þessu stigi – ákveðið að verða ekki sjálf- stætt ríki. Felst í þessum orðum að hann telji annað tækifæri í augsýn? Bent hefur verið á Quebec, fylki frönskumælandi manna í Kanada, sem fordæmi. Þar hefur sjálfstæði tvisvar verið hafnað í þjóðaratkvæða- greiðslu, 1980 og 1995. Í seinna skipt- ið var munurinn rétt um 1% nei- mönnum í vil. Salmond hefur þó um annað að hugsa en nýja þjóðaratkvæða- greiðslu á næstunni. Hann hefur eins og við var að búast boðað afsögn sína i nóvember. Úrslitin voru honum sér- staklega óhagstæð í eigin kjördæmi, Aberdeenshire: 60,3% nei, 39,6% já. Lét hann hjá líða að sýna sig þegar úrslitin voru kynnt þar heldur flaug beint til Edinborgar. Hvert verður höfuðmarkmið Skoska þjóðern- issinnaflokksins eftir að sjálfstæði Skotlands hefur verið hafnað? Léttir í London Ráðamenn stóru flokkanna í Bret- landi létu aðeins að sér kveða svo um munaði síðustu 10 daga kosningabar- áttunnar. Þeir fjarlægðu flokksmúra og tóku höndum saman til að bjarga konungdæminu. Sérstökum tíðindum sætti að flokksbræðurnir Gordon Brown og Alistair Darling stóðu hlið við hlið en vinátta þeirra rofnaði við sameigin- lega setu í ríkisstjórn Verkamanna- flokksins. Er talið að drottningin heiðri þá sérstaklega fyrir framlag þeirra í þágu þjóðareiningar. David Cameron forsætisráðherra sendi Darling hjartnæma þakkar- kveðju en ráðherrann sagðist hafa misst svefn af áhyggjum yfir framtíð ríkisins. Cameron mátti sín hins veg- ar lítils á Skotlandi vegna fylgisleysis íhaldsmanna þar. Hann gerði þó sitt til að virkja Gordon Brown til barátt- unnar og voru þeir að sögn í stöðugu símasambandi. Stjórnskipunarbreytingar Snemma morguns föstudaginn 19. september gaf David Cameron yf- irlýsingu fyrir framan svörtu úti- dyrnar á Downing-stræti 10: Stjórnskipun Sameinaða kon- ungdæmisins verður breytt. Meira vald verður flutt til skoska þingsins. Sérstaklega verður hugað að leiðum til að tryggja sérréttindi Englands innan ríkisins. Í lok október 2014 verða fyrstu til- lögur um nýja stjórnskipun birtar. Í lok nóvember 2014 verður grein- argerð um málið lögð fyrir neðri deild breska þingsins. 25. janúar 2015 verður frumvarp að nýjum lögum um stjórnskipunina tilbúið og lagt fyrir þing til af- greiðslu. 7. maí 2015 kosningar til breska þingsins. Ný lög um heimastjórn Skota taka gildi þegar nýtt þing kem- ur saman. 5. maí 2016 kosið til þings Skot- lands með nýjum völdum. Úrslitin í Skotlandi breyta stjórnskipun Bretlands  Meira vald verður flutt til skoska þingsins  Mikil kosningaþátttaka sigur fyrir lýðræðið AFP Fögnuður Mikill fögnuður braust út á kosningavöku sambandssinna í Glasgow þegar úrslitin voru tilkynnt. Vonbrigði Tár féllu á kosningafundi sjálfstæðissinna í Edinborg í fyrrinótt. Skotland kýs um sjálfstæði24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2014 Hollar vörur úr náttúrunni í hæsta gæðaflokki Hamp fræ Kinoa fræ Chia fræ Möndlumjöl H-Berg efh | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is FRÁBÆR T VERÐ Skoska þjóðaratkvæða- greiðslan hefur víðtæk áhrif. Vaxandi fjarlægð milli kjósenda og stjórnmálamanna verður að brúa. Tekst að gera það með breytingu á stjórnskipun í Bretlandi? Með því að færa meira vald nær fólkinu? Ætl- unin er að gera tilraun til þess á nokkrum mánuðum. Þetta er meginárangur af sjálfstæðis- baráttu Skota. Misheppnist til- raunin magnast óánægja al- mennings. Utan Bretlands hafa Skotar ýtt við sjálfstæðishreyfingum víða í Evrópu og um heim all- an. Skotinn Adam Smith mark- aði tímamót með riti sínu Auð- legð þjóðanna árið 1776 þegar hann rökstuddi gildi frjálsra viðskipta. Nú hafa Skotar skapað nýtt fordæmi um frelsi þjóða til að ákveða sjálfar eig- in framtíð. Víðtæk áhrif ATKVÆÐAGREIÐSLAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.