Stígandi - 01.10.1943, Síða 72

Stígandi - 01.10.1943, Síða 72
134 UM BÆKUR STÍGANDI andanum finnst liann greina hjarta- slögin í hverju orði. En þetta er ekki stórbrotið skóldverk, eftir því sem venju- lega felst í því orði. Hinna hrikalegu andstæðna norsks landslags gætir hér lítið sem ekki, brim öskrar ekki á boð- um og hamfarir mannssálarinnar láta hér ltvergi lnig lcsandans leika á þræði. Hér er hlýlciki dalanna ríkjandi eigind og lygn og djúpur sjór innan skerja- garðsins, þó að gæti undiróma að utan. Málfar og stíll þýðandans fer bókinni mjög vel. Bragi Sigurjónsson. Halldór Kiljan Laxness: Islandsklukkan. Þessi nýja saga Laxness er að því leyti frábrugðin fyrri sögum hans, að hann sækir efni til hennar í löngu liðinn tíma. l>ví ruglast hann aldrei i þessari sögu af viðhorfi sjálfs sín til deilumála dagsins, til rnanna og mál- efna liðandi stundar (undantekning þó: Æfintýr með þýðverskum), „heldur lúta persónur“ sögunnar „einvörðungu lögmálum verksins sjálfs". Þetta er á- vinningur að tvennu leyti: höfundurinn hefir helgað sig óskiptur list sinni og íþrótt sem skáldsöguhöfundur og les- andinn þarf ekkert af því að truflast, að hann hefir önnur viðhorf á vettvangi dagsins en höfundurinn. Þessi skáldsaga er framast allra skáldsagna höfundar- ins helguð listinni sjálfrar hennar vegna, og hennar cr auðveldast að njóta sem listaverks allra skáldsagna hans. En hefir þá verið eins heitt í aflinum hjá höfundinum, er hann reit þessa sögu, og er hann samdi ýmsar hinar fyrri sögur sínar í heitri baráttu á „vett- vangi dagsins"? Því verður ekki svarað hiklaust hér, því að slíkur hiti cr eigi auðmældur. En í þessari sögu er furðu „djúpvarmur undirylur ástar sent að fátt um þylur" til þrautpíndrar þjóðar á neðstu tröppu niðurlægingar hennar, og þeirra fulllrúa hennar, sem hér eru leiddir franr á sjónarsviðið. Og mitt í þeirn öfgum sínum, sem höfundurinn getur aldrei losnað við, að draga upp hinar ömurlegustu myndir af lífi og menningu þjóðar sinnar, hefir hann aldrei veitt henni fyllri viðurkenningu fyrir þrek að lifa lífinu, þrátt fyrir allt sem á gengur, glúpna jafnvel sízt, þegar gengur verst. „Höfundur vill láta þcss getið, að hókin er ekki sagnfræðileg skáldsaga," segir á innanverðu titilblaðinu. Þetta er raunar tekið fram, af því að svo nærri er þrætt sögulegum dokumentum, og nefndir eru til sögunnar ýmist fullu eða hálfu nafni ýmsir þeir, sem lifðu á þeim tíma, er sagan gerðist, eða á ná- læguin tímum. Lesendurnir gátu því auðveldlega frcistazt til þess að skoða Jretta „sagnfræðilega skáldsögu". En það er hún raunar ekki. Hún er að því leyti ekki óáþekk sumum hinum betri Forn- aldarsögum Norðurlanda, enda svipar henni til þeirra meir en flest annars í fyrri bókmenntum þjóðarinnar. Hér kemur fram eins og þar innsær skiln- ingur á löngu liðnum tíma, sem er raunar glataður því þjóðlífi, sem höf- undur sögunnar lifir í, og er sá skiln- ingur þó umvafinn hinum furðulegustu skáldaýkjum. Þetla er öfgafull hetju- saga með ntargs háttar kynjafullum æf- intýrum eins og Fornaldarsögur Norð- urlanda. Aðal söguhetjan, Jón Hregg- viðsson, er eins konar Grírnur loðin- kinni, hamrammur maður, sem engin vopn bíta, kolbítur og hálftröll í senn. Hann glímir við tröllskessur uppi á reg- infjöllttm eins og lietjurnar í römm- ustii fornaldarsögunum, og skessunum verða sömu orð á munni, er þær falla, og í fornaldarsögunum. Flestir þeir menn, sem kallaðir eru til sögunnar, eru að vísu frá samtíð Jóns Hreggviðs- sonar. Þó er um slíkt ekki vandlega hirt, fremur en um þvílíka smámuni er hirt í Fornaldarsögum N.orðurlanda.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.