Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 11

Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 11
IVIAnlA THELMA Gert eingöngu fyrir Hrund. Lesmál og myndir eftir GUNNAR LARSEN María Guðmundsdóttir kemur nú æ sjaldnar til Parísar. Hún kýs heldur New York, þar sem hún er meðal fremstu sýningarstúlkna Eileen Fords. María var á hraðferð í París, þegar tízkusýningarnar stóðu yfir. Við brugðum okkur út fyrir París til vinalegrar kráar til þess að mynda nýju prjónakjólana frá Lil í París, þegar hún átti frí í nokkra tíma. Thelma Ingvarsdóttir kýs París. Henni finnst París vera borgin, þar sem unnt er að merkja hringiðu lífsins og njóta hennar samtímis yfir vínglasi. Thelma býr með unnusta sínum, Ole Björk, í París. Þau eiga íbúð í hinu glæsilega 17. hverfi. Thelma var mynduð í nýjum loðkápum frá Rottenberg bræðrunum. Allar loðkápurnar eru úr ódýrum skinnum, og verðið er ekki yfir 12.500.00 kr. íslenzkar. Tíð minkakápunnar er liðin, og það sama er einnig að segja um persnesku lambskinns- kápuna. Þessar tvær loðkápur sjást ekki lengur hjá þessu unga og nýtízkulega tízkuhúsi. I dag eru bæði kattar og kanínuskinn talin klæðileg, og þavperu einnig ódýr.

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.