Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 49

Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 49
LEIKBRÚÐURN7TR Frh. afbls. 45. hrópaði: „Eg á að verða leikari. Loks- ins hefur heimurinn komið auga á hæfileika mína. Ha, ha, það var ég, sem gaf þér hugmyndina, var það ekki, Bosquet, gamli vinur? Mouche, heyr- irðu hvað hann sagði? Við eigum að koma fram í leikhúsi.“ Þetta var hrein eldraun fyrir hr. Bosquet. Dr. Duclos heimtaði, að hann legði fram skilríki sín, frú Muscat ræddi við hann langa stund um sið- gæði leikhússins, hr. Nicholas og Rauð- toppur ræddu fram og aftur um samn- inginn — og að lokum var hann orð- inn svo ringlaður, að hann lofaði þeim mun hærri launum en hann hafði ætlað sér. Hann fékk ekki að hitta kaftein Coq. Þegar samningurinn var fullgerður, fór Rauðtoppur með hann undir sviðið og kom með hann aftur undirritaðan. Hr. Bosquet reyndi þá að vinna sig í álit með því að bjóða Mouche til kvöld- verðar. Horaður, örlítið álappalegur líkami hennar, stóri munnurinn og fögru augun undir dökku hárinu vöktu allt í einu athygli hans. En hr. Reynardo setti hann alveg út af laginu. Refurinn studdi hönd undir kjamma, horfði hæðnislega á hann og hreytti út úr sér: „Þú andstyggilegi, andstvggilegi gamli karl. A þínum aldri! Skammastu þín ekki, með allan þennan hárvcxt í eyrunum, að eltast við unglingsstúlku? Eg veit hverju þú sækist eftir." Hinum megin á sviðinu stóð frú Muscat með hendur á síðum og fnæsti. „Ég hafði illan bifur á þér frá fyrstu sýn. Það sagði ég dr. Duclos. Hvað ætlarðu að gefa henni, ef hún fer með þér, demanta, loðfeldi, bíl kannski, ha? Ekki þú gamli nirfill... Hlustaðu ekki á hann, elskan. Ég þekki manngerð- ina . . .“ Hr. Bosquet flúði, en Reynardo engdist af hlátri. Mouche leið ekki vel þær þrjár vikur, sem þau voru að undirbúa leikþátt fyrir leikhúsið. Dr. Duclos og Rauðtoppur sáu um æfingarnar eins og venjulega, en velgengni leikflokksins virtist hafa gert kaftein Coq bitrari og andstyggi- Iegri en nokkru sinni fyrr. Hann vissi, að samningurinn var eingöngu Mouche að þakka og reiddist því að þurfa að þakka henni ríkidæmi og aðstöðu, sem hann hafði aldrei áður þekkt. Af einhverjum ástæðum ákvað hann að hætta við frjálslegu samtölin, sem höfðu gefizt svo vel, og taka aftur upp brúðuleikina frá fyrri dögum. Jafnvel brúðurnar virtust áhugalausar, og and- svör þeirra voru vélræn. Hann fann að öllu við Mouche, þeg- ar þau hittust, málfari hennar, útliti og uppruna; minnti hana stöðugt á, að hann hefði hirt hana úr göturæsinu, og spurði hana, hvenær hún ætiaði að temja sér betri siði. Hann gagnrýndi göngulag hennar, klæðaburð og rödd. Hann virtist ákveðinn í, að láta frum- sýningu þeirra á sviði mistakast al- gerlega. En ef hann hafði gert sér vonir um mistök, hlaut hann að verða fyrir von- brigðum. Hann hafði gleymt að gera ráð fyrir sjálfstæðum vilja brúðanna og sambandsins einkennilega milli þeirra og stúlkunnar. Fyrsta sviðsýning kafteins Coqs og fjölskyldu var á laugardagskvöldi fyrir troðfullu húsi og hófst með háværum hrifningarhrópum áhorfenda. Líkt og þegar Mouche kom til þeirra í fyrsta sinn, fleygðu allar brúðurnar handrit- inu, eins og einn maður. í tuttugu mínútur héldu þau áhorfendum ýmist í hláturskasti, þegar Reynardo gerði tilraun til að leika Hamlet, eða komu þeim til að vatna músum, eins og þegar Alifanfaron fékk sviðsskrekk. Frh. í næsta blaði. BINDINDI SIGRAR ! íþróttamaðurinn veit það: meiri afkastageta án á- fengis! Bílstjórinn veit það: minni slysahætta án áfengis! Við vitum það öll: skemmtilegra og tryggara, bæði heima og á vinnustað, án áfengis! Bindindi sigrar einnig, þegar um tryggingar er að ræða! Að tryggja hjá Ábyrgð kostar minna þar sem bind- indisfólk tekur minni áhættur! Sigrið með því að vera bindindismenn — tryggið hjá Ábyrgð! ÁBYRGÐP TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN Skúlagötu 63 — Reykjavík — Símar 17455 — 17947 Þörf gjöf, sem vekur fögnuð hjá barni og móður Niveakarfan geymir allt, sem snyrting barnsins krefst: NIVEA-babyfein barnasápa, mild og freyðandi. NIVEA-babyfein hörundsolía, hreinsar, mýkir og styrkir við- kvæmt hörund. NIVEA-babyfein græðikrem, öruggt smyrsl gegn afrifum og fleiðrum. NIVEA-babyfein púður, leggst mjúkt og samfellt i allar hörundsfellingar og myndar þar voðfellt, kælandi varnar- lag gegn roða og óþægindum. NIVEA-babyfein eyrnapinnar, léttir og sveigjanlegir, vafðir á báðum endum mjúkum hnoðrum, sem hreinsa hlustir og nef. HIV E A .• 49

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.