Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 32
KVÖLDVERÐARBOÐ
HJÁ HERRA JUSTITSRÁÐI
OG JUSTITIARII,
MAGNÚSI STEPHENSEN
Árið 1800 kom út í Leirárgörðum nýstárleg bók, sem bar heitið: „Einfalt matreiðslu vasakver fyrir heldri
manna húsfreyjur.” Höfundur var skráður Marta María Stephensen, eiginkona Stefáns Stephensens og mágkona
Magnúsar Stephensens, landshöfðingja.
Seinna skráði Magnús ævisögu sína og segist þar hafa sjálfur samið þessa bók eftir forsögn frú Fjeldsteds, og
voru nánari atvik þessi: Árið 1783 var Magnús við nám í lögfræði við Hafnarháskóla, en var um haustið sendur
út til íslands til að semja sögu um Skaftárelda, kanna landspjöll og gera tillögur til bjargráða. Þeir félagar fengu
vont í sjóinn og fór svo, að þá hrakti til Noregs, og hafði Magnús þar vetursetu hjá Þorkeli Fjeldsted. Veturinn
leið í dýrlegum fagnaði, en milli hátíðahaldanna sat Magnús í eldhúsinu hjá frúnni og skrifaði upp.
Víst er, að oft hefur verið glatt á hjalla á landshöfðingjasetrinu í Viðey. Jafnvel gæti matseðillinn einhvern
tíma hafa litið út eins og við höfum sett hann upp.
32