Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 23

Hrund - 01.11.1967, Blaðsíða 23
HVERNIG LÝSA STJÖRNURNAR ÞÉR? VOGAR- MERKIÐ 23. september — 22. október Meginregla : Þaö er mannlegt að reiöast, en heimskuiegt að erfa. 'Heppileg störf: Lögfræði. gagnrýni. ritstörf, listir. Vinnutilhögun: Bezt kanntu við þig í samvinnu við aðra. Stöðuglyndi, rík réttlætis- kennd og jafnvægi. Örlátur, ástríkur og stoltur. Ástúöleg og skilningsrík. Nýru og mjóhryggur. Gimsteinar Vogarinnar eru ópal, demantur og kórall. Litir Vogarinnar eru hvítt, gult, fagurrautt. grænt og skyggðir litir. Tala Vogarinnar er 6. Föstudagur er sá vikudagur. sem oftast er tengdur Vogarmerkinu. Helztu einkenni: Bezti eiginmaður: Bezta eiginkona: Stjörnurnar ráða: JÁKVÆÐIR EIGINLEIKÁR : Óhlutdrægni þín og sterk réttlætiskennd ráða mestu um gerðir þínar. Þú ert þekkt að stjórn- kænsku og fólk á erfitt með að rífast við þig. Þú skilur annarra sjónarmið og sérð báðar hliðar hvers máls. Því ertu oft mikilvægur málamiðlari. Oft ertu of kurteis til að segja nei við fólk, en á bak við mildina býr ákveðinn vilji. NEIKVÆÐIR EIGINLEIKAR: Fólk af veikari gerð Vogarinnar er undanlátsamt og hlýðið og á oft bágt með að taka ákvörðun. Það hefur hvorki vilja né markmið að keppa að. Oft er þetta fólk þunglynt og þykir gaman að tala um eigin reynslu. Það getur verið sóðalegt og latt, þegar þannig liggur á því, og neitað að taka ábyrgð á gerðum sínum. Þetta fólk skyldi gæta sín á hóglífi. SKAPGERÐ: Höfuðþættir skapgerðar þinnar eru ást þín á sam- ræmi og réttlæti ag samúð þín með þeim, sem þjást. Jafnlyndi og jafnvægi eru áberandi I fari þinu. Þú vegur allt og metur og tekur að lokum ákvörðun, sem er sanngjörn á alla vegu. Réttlætiskennd þín kann jafnvel að skerða þinn eiginn hlut. Jafnvægi er rétta orðið til að lýsa skapgerð þinni. Þú gerir allt, sem þú getur, til að halda hlutum i jafn- vægi og hefur mikla hæfi- leika til að jafna deilur og koma á friði. Þú ert félagslynd, aðlað- andi og sjaldan einmana. Bezt kanntu við þig i félagsskap við annan aðila, t.d. i hjónabandi. Þú hefur hæfileika til að umgangst fólk, þú ert alúðleg, kurteis og særir aðra sjaldan. Þú ert jafnlynd og nærð þér fljótt, ef þú reiðist. Þú erfir sjaldan, ert alltaf reiðubúin að fyrirgefa og gleyma. Þú ferð þér hægt og getur haft áhrif á aðra, áður en þeir vita hvert þú ert að leiða þá. Þú hefur góð tök á fólki, og það er erfitt að svikja þig. Þú hefur mjög næmt fegurðarskyn og gott vit á list. Verst líður þér, þegar þú mætir grimmd og hörku, þú þolir ekkert lágt og óheflað. HEILSA: Venjulega ert þú heilsugóð þótt þú eigir það til að vera næmfyrirumgangspestum. Þú nærð þér mjög fljótt eftir hver veikindi. Bezt áttu að gæta nýrna þinna, mænu og lenda. Þú gætir þess yfirleitt vel að ofreyna þig ekki. Fólk i þessu merki er venjulega fíngert og þokka- fullt, hefur reglulega andlitsdrætti og smágerðar hendur og fætur. Þú hugsar mjög vel um útlit þitt. Konur Vogarmerkisins eru þær fegurstu i heimi. Þær eru fullar kynþokka, hafa hlýja framkomu og hljóm- þýða rödd. VINNA: Þú ert góður starfskraftur en ekki framkvæmdasöm. Öll samkeppni er þér á móti skapi. Þú vinnur bezt í rólegu og hreinlegu um- hverfi. Bezt er fyrir þig að vinna í félagi við annan. Fólk leitar til þín, þegar það þarf að taka ákvarðanir, þvi að réttsýni þín og innsæi bera af. Þú vilt ekki hætta á neitt I viðskiptum og hugsar þá jafn mikið um að vernda aðra og sjálfa Þig- Þú ert vel greind og fær um að skilja allt að flóknum heimspekilegum umræð- um. Þú getur rannsakað, útskýrt og dæmt um alls kyns vandamál. Þú lætur aldrei þínar eigin óskir og skoðanir trufla dómgreind þína. Það er listrænn þáttur I eðli þínu, margir frægustu listamenn heims eru fæddir í þessu merki. Þú ættir að vinna að öllum þeim þátt- um lista, sem vekja áhuga þinn: ritstörfum, tónlist, listmálun eða teikningu. Tóneyra hefur þú gott, sem gæti leitt til hæfileika I dansi. Sölumennska ætti líka vel við þig. PENINGAR: Þú ert ekki af þeirri mann- gerð, sem hefur allan hug- ann við að safna auði. Þú hefur meiri áhuga á að eyða peningum til að full- nægja þörf þinni í munað og fallega hluti. Miklir peningar munu fara um hendur þínar, en þú átt þá ekki lengi. Þín skoðun á þvi, hvað telst til nauð- synja, kann að vera frá- brugðin skoðunum annarra. Þótt þú sért örlát og jafnvel kærulaus varðandi pen- inga, geturðu líka verið afar kæn I viðskiptum, og það er ekki auðvelt að blekkja Þig- HEIMILI: Heimili þitt verður fallegt og fjölskyldulifið gott. Þú hefur góðan smekk á öllum húsbúnaði. En þú hefur ekki jafn djúprætta ást á heimili þínu og fólk I öðrum merkjum, þótt fjöl- skyldurof séu mjög sjald- gæf. VINÁTTA: Þú ert mikið með fólki og átt marga vini. Kurteisi þin, heiðarleiki og réttsýni gera þig að eftirsóknarverðum vini, en þó áttu til að vera óáreíðanleg. Þú ert félags- lynd og vilt síður fara einförum. Þú ert afar vinsæl enda kanntu vel þá list að halda uppi samræðum. Þú ert alltaf róleg á yfirborðinn, þótt rót sé á huganum. Þú forðast að segja það, sem kemur fólki f uppnám. ÁSTIR: Fólk í þessu merki hefur afar ríka ástarhneigð. Þú ert sérfræðingur á sviði ásta og ert mjög ástríðu- full. Á bak við fágað yfir- borð býr heit og lifandi sál. Þú átt mörg ástarævintýri og ert óstöðug I ásta- málum. Tilfinningar þínar blossa upp, en deyja út jafn skyndilega. Þú hefur mjög gaman af samvistum við hitt kynið. HJÓNABAND: Hjónabandið hæfir þér mjög vel og þú giftist venjulega snemma. Skiln- aðir eru sjaldgæfir hjá fólki í þessu merki, en þó hefur þú gaman af tilbreytingu. Maki þinn á stundum erfitt með að gera þér til hæfis, þvi að þú stefnir að full- komnun í einu og öllu. Eiginmaðurinn, fæddur i þessu merki, er maður, sem ekki er auðvelt að búa með. Hann er ekki heima- kær I eðli sínu, en virðir reglur þjóðfélagsins og kvænist oftast þess vegna. Hann er gamansamur og ástríkur og sér afar vel um heimili sitt og fjolskyldu. Hann er mjög ástríðufullur maður og verður fvrir miklum vonbrigðum, ef hann finnur ekki sam- svörun að þessu leyti hjá eiginkonu sinni. Eiginkonan, fædd í þessu merki, er góður félagi og sérstakur snillingur í að halda heimilisllfinu frið- samlegu. Hún kann að umgangast fólk og tekur virkan þátt í félagsllfi, en vanrækir þó aldrei heimili sitt. Hún er góð eiginkona, ástrik og greind. Að mörgu leyti er hún eftirsóknar- verðust allra eiginkvenna, I persónulegustu merkingu þess orðs. Bæði eru einna bezt til þess fallin af öllum að vera foreldrar. Þau skilja börn vel og sýna þeim réttlæti og ástúð. Þau dekra ekki við þau úr hófi, en styðja þau með ráðum og dáð. Börn, fædd I þessu merki, hafa tilhneigingu til leti, ef þau eru ekki hvött til dáða. Það þarf að kenna þeim að nota viljastyrk sinn og hjálpa þeim að finna markmið í llfinu, Það á að ýta undir sköpunarhæfi- leika þeirra og leyfa þeim að fá útrás fyrir sköpunar- þörf sína. Með alúð og festu er unnt að koma þeim á réttu braut i lífinu. (nordííIende) Sjónvarp dagsins- nytt f orm, nýír djarf ír litir Allflestir þekkja hin rómuðu Nordmende sjónvarpstæki og vita um hið fjölbreytta úrval og hagstæða verð. Nú eru komin á markaðinn ákaflega falleg tæki, SPECTRA ELECTRONIC, árgerð 1967, sem skera sig úr öðrum sjónvarpstækjum vegna stílfeg- urðar og djarfra lita. Þér getið valið um tæki í rauðum, hvítum, bláum, grænum og grásvörtum lit, eða í fimm mismunandi við- arlitum. Tækjunum er hægt að snúa í heil- hring. Komið í Radíóbúðina og skoðið tækin, eða skrifið eftir litprentuðum bæklingi. Það er ánægjulegast að verzla þar sem úrvalið er fyrir hendi. Sérfræðingur frá verksmiðjunum sér um 23

x

Hrund

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.