Hrund - 01.11.1967, Side 13

Hrund - 01.11.1967, Side 13
AUGLÝSING Fögur húð fæst með því að þekkja rétt fegrunarmeðul og á hvern hátt ber að nota þau. Núið ENDOCIL-fegrunarkremi í andlit yðar um háttumál. Jafnið ENDOCIL-dag- kremi um andlit yðar áður en þér notið andlitsfarða (make-up). Notið ENDOCIL- hreinsikrem, er þér viljið fjarlægja andlitsfarða og óhreinindi, sem kunna að setjast á húðina. Nuddið hendur yðar með ENDOCIL-handáburði, þegar þær eru þurrar og sárar. Þessi fjögur fegrunarmeðul hæfa allri húð og séu þau notuð reglulega endurnýja þau húð yðar svo hún fær aftur sinn æskuljóma. Það er ekkert auðveldara en fagurt útlit, ef þér vitið, hvað til þess þarf. Þér þurfið aðeins að fylgja þeim reglum, sem hér verða gefnar, og innan skamms verður húð yðar hrein, björt og fögur, ekki aðeins í dag, heldur alla daga. ENDOCIL FEGRUNARKREM (Beautv treatment cream) Endocil-fegrunarkrem er fitulaust og ljúflega ylmandi og notast fyrir nóttina. Það fegrar húð yðar meðan þér sofið. HVERJU LOFAR ENDOCIL? Hin stinna og fjaðurmagnaða lífsorka, sem geislaði af húð yðar í æsku, verður yðar á ný, það tekur ekki nema þrjár vikur, og þér sjáið og finnið breytinguna. Og með því að nota Endocil reglulega, helst þessi umbreyting til æsku og fegurðar. Læknavísindin tjá okkur, að húð kvenna fari dálítið að þorna upp úr þrítugs aldri. og þarfnast frá því svolítið meiri næringar með hverju ári, sem líður. Örlitlir og fín- gerðir drættir koma í ljós og hægt og hægt breytast þeir í hrukkur. Reyndar hjálpa ýmis olíu og fitukennd smyrsl til þess að draga úr þessum hægfara aldursmörkum, en aðeins Endocil, með sinni þrautreyndu og öruggu efnasamsetningu, getur endur- skapað og viðhaldið æskufagurri húð. FRUMATRIÐI ALLRAR FEGRUNAR Frægur fegrunarfræðingur sagði eitt sinn. „Hreint léreft er upphaf allra fagurra mál- verka.“ Nú á dögum er meiri þörf en nokkru sinni fyrir sérstaka gerð hreinsikrems, ef öll óhreinindi eiga að nást af húðinni, því að sápa og vatn duga hvergi nærri. Ef þér notið rétt hreinsikrem, þá er það upphaf og gerbreyting í andlitsfegrun. HVERSVEGNA ENDOCIL HREINSIKREM? Endocil hreinsikrem smýgur inn í allar svitaholur og fellingar í húðinni, leysir upp make-up og óhreinindi og skilar þeim á yfirborðið. Sápa og vatn getur það ekki. Efizt þér? Þvoið yður fyrst með vatni og sápu, þegar þér hafið gert það, skuluð þér bera á Endocil hreinsikrem, og þá sjáið þér hversu mikið kemur af andlitsfarða og óhreinindum til viðbótar. SÉRSTÖK GERÐ HREINSIKREMS Endocil hreinsikrem er frábært, ekki einungis til þess að hreinsa húð yðar, heldur einnig til þess að hressa hana og örva. Það inniheldur sérstök efni. sem valda þessu. Dagleg notkuri þess orsakar að hið þurra vfirborð húðar vðar endurnýjast af ferskum og safaríkum frumum. HVERNIG NOTA SKAL ENDOCIL HREINSIKREM Fyrst hreinsið þér af yður varalitinn með pappír (tissue) eða með bómull vættri í Endocil hreinsikremi, þvínæst berið þér Endocil hreinsikrem á andlit og háls og nuddið því upp og útávið. Takið hreinsikremið af með rakri bómull og endurnýið bómullina þar til engin óhreinindi koma í hana. Húð yðar verður fersk og hrein. Engin þörf er á að nota annan hressandi áburð fyrir húðina. Notið Endoci! hreinsi- krem á hverju kvöldi og að minnsta kosti einu sinni að degi til. HVAÐ GERIR ENDOCIL FYRIR HÚÐ YÐAR? Hafið hugfast, að engar tvær konur hafa nákvæmlega eins húð. Þannig munu sumar konur merkja mismuninn þegar í stað, en aðrar munu þurfa ailt að því þrjár vikur til þess. Um Ieið og Endocil gegnum-smýgur húð yðar og mettar húðfrumurnar með undra- efnum sínum, endurnýjar það hið þurra ytra húðlag með nýjum styrkum húðfrum- um, og þær koma innan frá. I sumum tilfellum getur þessi breyting orsakað þá til- finningu, að húðin herpist eða strekkist, en þessi tilfinning líður fljótlega hjá, og í stað hennar kemur fersk og hressandi vellíðan samfara blómstrandi fegurð. HVERNIG BER AÐ NOTA ENDOCIL? Aður en þér farið að sofa, hreinsið vandlega og hressið andlits- og hálshúð yðar með Endocil-hreinsikremi (Endocil Cleance-care). Berið síðan Endocil-fegrunarkrem á andlit og háls gerið það með fingurgómunum, hægt og mjúklega. Berið kremið sérlega vandlega á undir höku og augu, einnig kringum munn og gleymið ekki enni og hálsi. Og einmitt meðan þér eruð að ganga frá öllu áður en þér farið að sofa, drekkur húðin Endocil i sig. Um það bil tíu mín- útum eftir að þér hafið borið það á, er hið eina, sem þér finnið, létt og ilmandi iag á húð yðar, og þar sem það er fitulaust, er koddaverið yðar eins hreint að morgni sem kvöldi. Þar að auki, þótt ótrúlegt sé, er óhætt að nota Endocil eins mikið og þér viljið, og sömuleiðis eins oft. ENDOCIL DAGKREM (Endocil Day-care) Er silkimjúkt og nærandi rakakrem og notast sem undirlag fyrir andlitsfarða (make- up), og það eðlilegasta sem þér eigið völ á, þar eð það fær húðina til þess að mynda sinn eigin safa. TÍZKAN I NOTKUN RAKAKREMS UNDIR ANDLITSFARÐA: Fegrunarfræðingar vita, að nauðsynlegt er að nota rakakrem undir andlitsfarða, til þess að vernda húð yðar. Reyndar er þessari aðferð beitt af öllum konum, sem láta sig nokkru varða útlit sitt. HVAÐ GERIR ENDOCIL DAGKREM? Húðraki gerir húðina ekki alltaf mjúka, en Endocil dagkrem gerir hana mjúka. Ekkert rakakrem virkar á sambærilegan hátt og Endocil, það endurnýjar húð yðar og gerir hana ferskari. HVERNIG NOTA SKAL ENDOCIL DAGKREM: Aður en andlitsfarði er notaður, berið Endocil dagkrem á andlit og háls, þessi silki- mjúki og fitulausi áburður hverfur á örskammri stund og skilur eftir þunna verndar- himnu. Síðan berið þér andlitsfarðann á og takið eftir hversu mjúk og jöfn förðunin verður. Ennfremur er Endocil dagkrem frábært sem undirlag fyrir andlitspúður. Það er mjög æskilegt að nota Endocil dagkrem á hverjum degi. Munið að nota það alltaf, er þér þurfið að endurnýja andlitsförðun yðar. ENDOCIL HREINSIKREM (Endocil Clcance-care) Er ný gerð hreinsikrems fyrir húðina. það djúphreinsar húðina og hressir. Yður finnst húð yðar ung, fersk og lifandi. ENDOCIL HANDÁBURÐUR Ný tegund handáburðar. Hann er fitulaus og fáanlegur af O-gerð og S-gerð. O- gerð er fyrir konur með venjulega húð, sem hættir til að þorna. S-gerð er fyrir konur með viðkvæma húð eða mjög þurra. HVAÐ GERIR ENDOCIL HANDÁBURÐUR FYRIR YÐUR? Endocil handáburður gengur djúpt inn í húð yðar, en hendur yðar verða hvorki fit- ugar né smitugar. Því næst fer Endocil efnið að verka. Það gerir gamlar og þreyttar frumur mjúkar og ungar. Það endurnýjar húðolíur þær, sem tapast í heitu vatni. Sprungur og herpingur í húðinni hverfa á augabragði. Hrjúfar hendur verða mjúk- ar. Hendur yðar öðlast næringu, endurnýjun og vernd. HVERNIG NOTA SKAL ENDOCIL HANDÁBURÐ Nuddið hendurnar rækilega með Endocil handáburði og berið hann sérlega vel á við neglurnar. Til þess að koma í veg fyrir að neglurnar bogni, lyftið þeim upp aftur um leið og þær mýkjast af áburðinum. Endocil handáburður verkar bezt ef hann er notaður eftir bað eða handþvott. hins vegar skuluð þér ávallt nota hann, ef hendurnar eru sárar eða hrjúfar. Ennfremur er mjög gott að nota Endocil handáburð fyrir svefn. Hvora gerð Endocil handáburðar sem þér notið, er öruggt, að yður mun finnast hann frábær og þægilegur. Húðin drekkur hann í sig á augabragði og hendur yðar eru ekki fitugar né kámugar. Endocil handáburður er jafn dásamlegur hvort heldur þér notið hann heima eða í vinnunni. Endocil m Endoal Umboð: AKTA Box 21 Sími: 24522

x

Hrund

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.