Hrund - 01.11.1967, Page 37

Hrund - 01.11.1967, Page 37
Borðmottuna og servíettuna saumaði Katrin Sverrisdóttir og kosta þær kr. 110,- í Verzluninni Dimmalimm. Þar fást einnig keramikbollinn og diskurinn, sem eru í senn kökudiskur og undirskál. Heidi Guðmundsson hefur gert hann og verðið er kr. 280,- Andersen & Lauth bjóða upp á gjafakassa á kr. 240,- ( þeim er vasaklútur og slipsi úr alsilki. .. GENGIÐ I BÚÐIR Það getur oft orðið mikið vandamál að velja hentugar gjafir, að maður tali nú ekki um fyrir jólin, og oft fer langur timi í að ganga búð úr búð í leit að einhverju, sem maður veit í rauninni ekki, hvað á að vera. Núna eru jólavörurnar sem óðast að berast á markaðinn, og fyrir skömmu brugðum við okkur i nokkrar búðir í miðbænum. Við sáum ýmsa fallega muni, sem væru hentugir til gjafa, bæði fyrir fullorðna og börn og við vonum, að þið, kæru lesendur, getið notfært ykkur þessar hugmyndir okkar. Þá er það blessað kvenfólkið. I verzluninni Kirkjumunum er ýmislegt girnilegt til sölu. Verzlunina á Sigrún Jónsdóttir og verzlar hún aðallega með muni úr batik, sem hún hefur sjálf búið til. „Gullbrá" kallar hún þennan kjól. Hann er batikunninn, Ijós- brúnn með næstum hvítu mynstri, silki- fóðraður og kostar kr. 3800,- Hattinn má nota með ef vill. Hann er einnig batikunn- inn og kostar kr. 450,- Hann hefur hlotið nafnið: „Perluregn". Að lokum börnin, ekki má nú gleyma þeim. Sportvöruverzlunin Hellas hefur á boðstólum ýmis leikföng sem sérstaklega eru ætluð til útileikja, svo sem golfsettið á myndinni og kostar það kr. 140- Þessi smekklegi tekkbakki fæst hjá Jóhannesi Norðfjörð h.f. úra- og skart- gripaverzlun. Á honum eru fjórar stálskálar og eru þær ætlaðar fyrir sultu, marmelaði, smjör eða jafnvel smákökur. Bakkin er frá danska fyrirtækinu Uniiine og kostar Hjá P & Ó fundum við forláta bar, eins konar ferðabar, í brúnni leðurtösku. Þetta er góður gripur og kostar kr. 1090 - kr. 410- „Vorboði" heitir lampinn og er sérlega skemmtilegur til gjafa. Hann kostar kr. 975,- og fæst I verzluninni Kirkjumunir. I Tóbaksverzluninni London fæst þessi öskupakki, sem ætlaður er pípureykinga- mönnum. Hann er úr valhnotu en skálin sjálf úr gleri. Hann kostar kr. 625,- Blómabúðin Hraun selur ýmislegt fleira en blóm og blómakörfur, meðal annars fallega kertalampa sem kosta kr. 210,-

x

Hrund

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.