Fréttablaðið - 20.09.2014, Síða 76
KYNNING − AUGLÝSING LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 20144
Við leggjum mikla áherslu á að öll þjónusta okkar sé á persónulegum nótum,“
segja þeir Hermann Jónasson og
Svafar Magnússon hjá Kveðju, Út-
fararstofu Svafars og Hermanns.
Ásamt þeim starfar hjá Kveðju
Ingibjörg Halldórsdóttir sem ný-
lega gekk til liðs við stofuna.
„Fólk hittir okkur í aðdraganda
útfararinnar og við sjáum einnig
um útförina sjálfa. Fólk getur því
gengið að því sem vísu að eiga
í samskiptum við sama fólkið í
gegnum allt ferlið,“ útskýrir Her-
mann.
Stofan sjálf er ekki gömul en
innan hennar rúmast áratuga
reynsla af útfararþjónustu. Svaf-
ar vann hjá Útfararstofu kirkju-
garðanna í 17 ár en Hermann við
útfararþjónustu á Siglufirði í 30
ár. „Þar er nálægðin mikil milli
fólks og reynslan hefur sýnt mér
að persónuleg þjónusta skiptir fólk
miklu,“ segir Svafar.
Heiðarleiki og gagnsæi
„Hægt er að ná í okkur allan sólar-
hringinn. Við komum og sækjum
hinn látna þangað sem hann lést,
í heimahúsi eða á sjúkrastofnun.
Eftir það hefst ferlið í samvinnu
við aðstandendur og þá sem fram-
kvæma útförina,“ lýsir Hermann
og Svafar bætir við að Kveðja sé
með aðstöðu til að taka á móti
fólki til að ræða málin en þeir
komi einnig heim til fólks ef þess
sé óskað.
„Við leggjum mikla áherslu á
að öll atriði séu skýr áður en til at-
hafnarinnar kemur og ekkert komi
fólki á óvart, til dæmis hvað varðar
kostnað. Við viljum vera heiðarleg-
ir og gagnsæir,“ árétta þeir.
Ýmsir möguleikar í boði
Hermann segir Íslendinga halda
í hefðirnar þegar kemur að útför
ástvina. Hlutirnir séu þó að breyt-
ast og hafa til að mynda bálfarir
aukist. Ferlið sé það sama nema
ekki sé farið í kirkjugarð eftir at-
höfn. „Margir halda að það sé
skylda að fara í gegnum ákveð-
ið staðlað form en það er alls ekki
tilfellið. Við leggjum áherslu á að
fólk hafi samband við okkur og
leiti sér upplýsinga. Við sjáum um
hvers konar útfarir og leggjum að-
aláherslu á að allir séu samstiga.“
Hermann og Svafar benda einn-
ig á að Kveðja bjóði kistur á breiðu
verðbili og reynt sé að koma til
móts við alla.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni www.kvedja.is.
Traust og persónuleg þjónusta
Kveðja, Útfararstofa Svafars & Hermanns, er persónuleg útfararstofa sem byggir á trausti og virðingu. Útfararstjórarnir hafa áratuga
reynslu af þjónustu við aðstandendur og sinna skyldum sínum af natni, hlýju, trúnaði og virðingu sem fráfall ástvinar verðskuldar.
Hægt er að ná
í starfsmenn
Kveðju allan
sólarhringinn.
Svafar, Ingibjörg og Hermann hafa langa reynslu af útfararþjónustu. MYND/ERNIR
Það sem ég hef séð í gegn-um starf mitt er að þau börn sem fá að taka virkan
þátt í veikindum ástvina, andláti
þeirra og jarðarför standa yfirleitt
betur þegar frá líður,“ segir Guð-
rún Oddsdóttir sálfræðingur. „Það
er þeim mjög mikilvægt að fá að
kveðja og að þau séu þátttakend-
ur í ferlinu.“
Guðrún segir það ríkjandi hegð-
un hjá fullorðnu fólki að reyna að
koma í veg fyrir að börn upplifi
vondar tilfinningar. „Þegar hlífa
á börnum við að upplifa jarðar-
farir eða að fá að taka þátt í veik-
indum og andláti ástvina er verið
að klippa börnin út úr eðlilegu
samhengi lífs og dauða. Áður
fyrr dó fólk bara heima hjá sér
og líkið stóð uppi í stofunni, allir
voru með í jarðarförinni og börn-
in voru hluti af því ferli. Nú ger-
ist allt á spítala, í líkhúsi og út-
fararstofu og það er jafnvel verið
að halda börnunum frá jarðarför.
Þannig eru þau aðskilin frá þessu
sorgar- og heilunarferli sem það er
að kveðja ástvin. Með því að úti-
loka þau er verið að senda börnun-
um þau skilaboð að þau séu ekki
nógu sterk eða að þeirra tilfinn-
ingar skipti ekki máli og koma í
veg fyrir að þeirra sorgarferli ger-
ist á eðlilegan hátt og með stuðn-
ingi og þátttöku þeirra nánustu.“
Flest börn vilja taka þátt
Það ætti ekki að neyða börn til
þess að vera við jarðarfarir en
samt sem áður ætti að ganga út
frá þátttöku þeirra.
„Mér finnst að almennt eigi
öll börn að vera við jarðarfar-
ir. Svo lengi sem útför er útskýrð
fyrir börnum munu þau flest vilja
taka þátt í henni. Það þarf þó að
undirbúa þau áður og gera það
vandlega,“ segir Guðrún. Hún
bætir því við að það sé mikil-
vægt fyrir þau börn sem ekki taka
þátt í útför, hvort sem það er val
eða vegna ungs aldurs, að þau fái
samt sem áður sína kveðjustund.
„Mjög ung börn muna sjaldnast
eftir jarðarför en þegar þau vaxa
úr grasi er mikilvægt fyrir þau að
vita að þau hafi fengið að kveðja
á sinn hátt. Það er hægt að fá að
hafa stund fyrir þá nánustu fyrir
eða eftir kistulagningu, að hafa
opna kistu þar sem barnið fær að
leggja bangsa, ljósmynd af sér eða
teikningu í kistuna. Þetta mættu
öll börn eiga kost á að gera, ekki
bara ung börn.“
Nauðsynlegt að útskýra allt
Áður en börn fara í kistulagningu
og útför þarf að útskýra fyrir þeim
hvernig þessar athafnir fara fram
og á hverju þau geti átt von. „Þau
þurfa að fá að vita hvernig þetta
verður, að í kistulagningu verði
bara þeirra nánustu, að þau muni
hitta þann sem er látinn en að lík-
ami hans sé hættur að virka, hjart-
að hætt að slá og að hann sé kaldur
viðkomu. Að það verði mikið grát-
ið og að það sé allt í lagi.
Þegar farið er í jarðarför þarf
líka að fara í gegnum ferlið, að at-
höfnin taki tíma, það verði marg-
ir og þau eigi að labba á eftir kist-
unni og að fólk segi „samhrygg-
ist“ og þá sé nóg að segja „takk“
og þá megi þau fara í burtu. Það
er oft gott að einhver sem barn-
ið þekkir og treystir sé til taks í
athöfn eða erfisdrykkju og sinni
barninu ef það þarf til dæmis
að komast úr aðstæðum en þess
nánustu eru uppteknir,” segir
Guðrún.
Hún nefnir einnig að mikilvægt
sé að tala ekki undir rós við börn
eða að ljúga að þeim. „Það ætti til
dæmis ekki að segja við börn „nú
er amma sofnuð“ eða „pabbi er
farinn í ferðalag“ þá geta þau orðið
hrædd við að gera þessa hluti. Það
þarf að segja þeim satt og rétt frá,
á þann hátt sem þau skilja og þola
miðað við þroska. Ekki er heldur
gott að hrósa börnum fyrir að vera
„dugleg“ í sambandi við veikindi
eða andlát. „Dugleg“-skilaboðin
kenna að það megi ekki vera leið-
ur og gráta.“
Verst að fá ekki að taka þátt í sorginni
Guðrún Oddsdóttir sálfræðingur segir að almennt eigi að bjóða öllum börnum að fara í útfarir og kveðja þegar einhver nákominn
deyr. Það geti verið erfitt fyrir þau að upplifa það seinna að þau hafi verið útilokuð frá ferlinu og séu þá lengur að vinna úr sorginni.
Guðrúnu Oddsdóttur sálfræðingi finnst að almennt ættu öll börn að vera við jarðarfarir
en að alls ekki eigi að neyða þau til þess. MYND/ERNIR
Útfararþjónustur
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann