Læknablaðið - 15.04.2001, Qupperneq 55
FRÆÐIGREINAR / ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA
V 01 Sjálfkrafa hvarf á meinvörpum nýrnafrumukrabbameins í
fleiðruholi. Sjúkratilfelli
Ásgeir Thoroddsen’, Tómas Guðbjartsson2, Guðmundur Geirsson3, Bjarni
A. Agnarsson4, Gunnar H. Gunnlaugsson5, Kjartan Magnússon6
'Handlækningadeild Landspítala Hringbraut, :hjarta-og lungnaskurðdeild
Háskólasjúkrahússins í Lundi, 3þvagfæraskurðdeild Landspítala Fossvogi,
4Rannsóknastofa Háskólans í meinafræði, shandlækningadeild Landspítala
Fossvogi, "krabbameinslækningadeild Landspítala Hringbraut
Inngangur: Um þriðjungur sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein
hafa fjarmeinvörp (Robson stig IV) við greiningu. Algengustu
meinvörpin eru í lungum, beinum og lifur en mun sjaldnar í fleiðru-
holi (1%). Lífslíkur sjúklinga með meinvörp eru slæmar og flestir
látast innan sex mánaða. Pekkt er að í einstaka tilvikum geti
meinvörp minnkað eftir nýrnabrottnám og jafnvel horfið alveg. Hér
er lýst tilfelli þar sem fleiðrumeinvörp nýrnafrumukrabbameins
hurfu af sjálfu sér.
Sjúkratilfelli: Fjörutíu og sjö ára áður hraustur maður var lagður
inn á lyflækningadeild Borgarspítala vegna slappleika og kvefein-
kenna. Lungnamynd sýndi mikinn vökva í hægra fleiðruholi.
Lagður var keri í fleiðruhol og tæmdir yfir 2 lítrar af blóðlituðum
vökva. Rannsóknir sýndu hvít blóðkorn í vökvanum en engar
illkynja frumur og ræktun var neikvæð. Berkjuspeglun var eðlileg
en á tölvusneiðmyndum af brjóstholi sáust nokkrar hnöttóttar 2-
5cm. fyrirferðir neðarlega í hægri fleiðruholi sem líktust mein-
vörpum. Brjóstholsspeglun sýndi áðurnefndar skellur í vegghluta
fleiðru og vefjagreining leiddi í ljós kirtilfrumukrabbamein. í
framhaldi voru fengnar tölvusneiðmyndir af kviði sem sýndu stórt
æxli í vinstra nýra. Ekki fundust önnur meinvörp. Framkvæmt var
nýrnabrottnám, og í nýranu var 7x6 cm. kirtilfrumukrabbamein
með sams konar útliti og fleiðruæxlið. Því var ljóst að æxlið í
fleiðrunni var meinvarp frá nýmaæxlinu. Sjúklingi var vísað til
krabbameinslæknis og var ákveðið að bíða með frekari meðferð.
Fjórum mánuðum síðar sýndu tölvuneiðmyndir að fleiðrumein-
vörpin voru horfin. Þétt eftirlit og tölvusneiðmyndir á næstu árum
sýndu engin merki um meinvörp. I dag níu árum eftir greiningu er
sjúklingurinn einkennalaus og án teikna um meinvörp þrátt fyrir
ítarlega leit.
Ályktanir: Hér er lýst tilfelli þar sem meinvörp hafa klárlega horfið
níu árum eftir nýrnabrottnám og án annarrar meðferðar. Þetta
tilfelli. líkt og önnur sem lýst hafa verið og verða rædd, sýnir hversu
sérkennilega nýrnafrumukrabbamein getur hagað sér. Tilfelli á
borð við þetta mætti hafa í huga þegar tekin er ákvörðun um
meðferð sjúklinga með útbreitt nýrnafrumukrabbamein.
V 02 Ls-Si verkur í fæti reynist sarkmein. Tvö sjúkratilfelli
ÁsgeirThoroddsen', Snorri Björnsson', Helgi Sigurösson2,
Halldór Jónsson jr.'
'Bæklunarskurðdeild Landspítala Hringbraut, 'krabbameinslækningadeild
Landspítala Hringbraut
Inngangur: Orsök taugarótarverkja í fæti er oft hægt að rekja til
ertingar eða klemmu á úttaugum L», L; eða Si, til dæmis vegna
brjóskloss. Við blönduð eða óljós einkenni geta sjaldgæfari orsakir
gleymst. Vegna átakanlegrar sögu tveggja sjúklinga með blönduð
Ls-Si einkenni teljum við rétt að greina frá þeim og vekja athygli á
sarkmeinum sem orsök taugarótarverkja.
Tílfelli 1: Sautján ára áður hraust kona leitaði til læknis á meðgöngu
vegna verkja í hægri ganglimi. Talið var að verkirnir tengdust
þunguninni, en þeir löguðust ekki eftir fæðinguna. Á næstu þremur
árum leitaði hún endurtekið til lækna með versnandi verki án þess
að skýring fengist. Að lokum fór hún til taugasjúkdómalæknis þar
sem skoðun og rannsókn leiddu í ljós blönduð L5-S1 einkenni.
Tölvusneiðmynd (TS) af lendhrygg var eðlileg en tölvusneiðmynd
og segulómskoðun af neðri hluta kviðarhols sýndu æxli í hægri
iliacus og piriformis vöðvum og teygði sig út um setbeinsgat
(foramen ischiadicum). Æxlið klemmdi iskíastaugina og skýrði þar
með blönduð L5-S1 einkennin. Rannsóknir leiddu í ljós Ewings
sarkmein án fjarmeinvarpa. Æxlið var fjarlægt (wide excision). í
kjölfarið var gefin fyrirbyggjandi háskammta krabbameinslyfja-
meðferð og geislameðferð. Konan er í dag, átta árum eftir
greiningu, í fullri vinnu og án merkja um útbreiðslu sjúkdóms.
Tilfelli 2: Fjörutíu ára kona með sögu um kvíða og þunglyndi leitaði
til læknis vegna vaxandi verkja í öllum hægri ganglimi. Einkennin
voru túlkuð sem „taugaspenna". Þegar verkir löguðust ekki eftir
tvo mánuði fór hún í skoðun og rannóknir, meðal annars
taugaleiðnipróf sem sýndu blönduð Ls-Si einkenni. Með brjósklos í
huga var tölvusneiðmynd tekin af lendhrygg sem sýndi
liðþófaútbungun á L<-5 bili, einnig var framkvæmd skugga-
efnisrannsókn (myelografia) af lendhrygg sem sýndi ekki merki um
brjósklos. Grunur vaknaði um að orsökin væri heilkenni ristarganga
(tarsal tunnel syndrome). Nokkrum mánuðum síðar var fram-
kvæmd aðgerð vegna þess, en einkenni löguðust ekki. Á næstu
mánuðum leitaði sjúklingur margoft til lækna vegna vaxandi verkja
án árangurs. Einu ári eftir byrjun einkenna var sjúklingur orðinn
ósjálfbjarga vegna verkja og máttleysis í fætinum. Aðstandandi
konunnar tók þá eftir því að hægra lærið hafði gildnað. Var konan
þá send í segulómskoðun af lærinu sem sýndi mjög stórt æxli í aftara
vöðvahólfinu. Æxlið klemmdi á iskíastaugina og skýrði þannig
einkennin. Æxlið var fjarlægt (radical excision) og vefjagreining
leiddi í ljós Ewings sarkmein. ítarlegri rannsóknir sýndu að
sjúkdómurinn var útbreiddur með meinvörpum í lendhrygg.
Ályktun: Hafa ber í huga að blönduð eða illskýranleg
taugarótareinkenni geta haft aðrar orsakir en meinsemd í baki.
Leið úttauga frá hryggsúlu, gegnum mjaðmagrind og læri er ekki
svo sjaldgæf staðsetning sarkmeina, en fellur gjaman utan við
rannsóknarvídd hefðbundinna myndgreininga.
V 03 Llfrarmelnvörp eftir ristilkrabbamein. Tuttugu og átta ára gömul
kona læknuð með endurteknu lifrarúrnámi. Sjúkratilfelli
Tómas Guðbjartsson', Nick Cariglia2, Shreekrishna Datye2, Jónas
Magnússon3'4
‘Hjarta- og lungnaskurðdeild Háskólasjúkrahússins í Lundi, -'Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri, "handlækningadeild Landspítala Hringbraut, ‘læknadeild HI
Inngangur: Lífshorfur sjúklinga sem greinast með lifrarmeinvörp
frá ristilkrabbameini eru slæmar og án meðferðar eru flestir dánir
innan árs. Lifrarúrnám er eina læknandi meðferðin. Aðgerðinni má
beita við endurtekin meinvörp. Lýst er tilfelli af endurteknu lifrar-
höggi hér á landi. Einnig er getið nýjustu rannsókna í meðferð
lifrarmeinvarpa frá ristilkrabbameinum.
Sjúkratifelli: Tuttugu og átta ára gömul áður hraust kona greindist
Læknablaðið 2001/87 327