Læknablaðið - 15.04.2001, Blaðsíða 57
FRÆÐIGREINAR / ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA
Kynnt verður sjúkratilfelli þar sem 58 ára gömul kona, sem hafði
legið inni með briskirtilsbólgu, leitaði til húðsjúkdómalæknis
nokkru eftir útskrift vegna kláða og rauðra útbrota og sára á
ökklum, fótleggjum og lærum. Hún reyndist hafa panniculitis vegna
briskirtilsbólgu.
V 07 Sjúkratilfelli. GIST æxli í skeifugörn
Björn G.S. Björnsson1, Helgi J. ísaksson2, Páll Helgi Möller1
'Handlækningadeild Landspítala Hringbraut, 2Rannsóknastofa Háskólans í
meinafræði
Um er að ræða 54 ára konu sem veikist skyndilega með hrolli,
slappleika og síðan verkjum í kviði. Við skoðun var sjúklingur með
auma fyrirferð hægra megin í kviði. Ómskoðun og tölvusneiðmynd
sýndi 10x15 cm. stóra fyrirferð sem fyllti mestan hægri hluta kviðar.
Sjúklingur var tekinn til aðgerðar og var fyrirferðin frflögð frá
aðliggjandi vefi nema hvað hluta skeifugarnar þurfti að fjarlægja
þar sem æxlið virtist vera upprunið. Niðurstaða meinafræðings var
að æxlið væri gastrointestinal stromal tumor (GIST) með sár-
myndun í vegg skeifugarnar.
Flokkun og uppruni æxla frá stoðvef meltingarvegarins hefur verið
nokkuð á reiki en lagt hefur verið til að GIST sé notað sem samheiti
fyrir öll þessi æxli, þar með talin sléttvöðvaæxli (leiomyoma/-
leiomyosarcoma). Þau sýna mismikla sérhæfingu og erfitt getur
verið að meta illkynja eiginleika þeirra. Fyrstu einkenni GIST eru
oft blæðing eða önnur bráð einkenni og þau leiða yfirleitt til bráðrar
aðgerðar áður en full greining er komin.
V 08 Líffærahlutaflutningur á íslandi
Zoran Trifunovic, Bjarni Torfason
Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala Hringbraut
Inngangur: Flutningur líffærahluta er góður kostur sérstaklega við
ýmsa meðfædda hjartagalla. Þá er um að ræða djúpfrystan hluta
líffæris í fljótandi köfnunarefni sem eftir þiðnun er græddur í
sjúkling. Slíkur líffærahluti hefur þann kost að endast vel og starfa
afbragðsvel í líffæraþeganum. Möguleiki á slfkri meðferð var
nýjung á íslandi til skamms tíma. Lýst er einu af fyrstu sjúkra-
tilfellunum af þessu tagi á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala
Hringbraut.
Sjúkratilfelli: Tuttugu og fimm ára gömul kona sem fæddist með
þrengsli í lungnaslagæðarloku kom til aðgerðar á deildinni eftir að
hafa fyrr á ævinni gengist undir fjölmargar hjartaskurðaðgerðir
vegna sjúkdómsins. Lýst er ábendingu aðgerðar, aðgerðaráhættu,
hjartaskurðaðgerð og afdrifum sjúklingsins.
Ályktun: ígræðsla líffærahluta úr mönnum er nú gerð á Islandi.
Læknablaðið 2001/87 329