Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2001, Page 13

Læknablaðið - 15.07.2001, Page 13
FRÆÐIGREINAR / LIFRARMEINVÖRP Lifrarmeinvörp frá krabbameini í ristli og endaþarmi Yfirlitsgrein um skurðmeðferð Tómas Guðbjartsson1, Jónas Magnússon2’3 ‘Hjarta-og lungnaskurödeild Háskólasjúkrahússins í Lundi, 2handlækningadeild Landspítala Hringbraut, 'læknadeild Háskóla íslands. Bréfaskipti, fyrirspurnir: Tómas Guðbjartsson, Algskyttevágen 37, S 226 53 Lund, Sverige. Netfang: tomas.gudbjartsson@ lund.mail.telia.com Lykilorö: lifrarmeinvörp, lifrarúrnám, yfirlitsgrein. Ágrip Lifrarmeinvörp eru tíður fylgifiskur krabbameina í ristli og endaþarmi. í vissum tilvikum er hægt að lækna slík meinvörp með skurðaðgerð. í þessari yfir- litsgrein er greint frá bættum árangri lifrarskurðað- gerða og hvernig best er að velja sjúklinga sem hafa gagn af slíkri skurðaðgerð. Inngangur Krabbamein í ristli og endaþarmi var þriðja algengasta krabbameinið á íslandi á árunum 1995- 1999 hjá báðum kynjum. Árlega greinast um það bil 110 einstaklingar með sjúkdóminn og tæplega helmingur þeirra deyr af völdum hans (1). Við greiningu eru 10-25% sjúklinganna með meinvörp í lifur (synchronous metastases). Síðar bætast 30-40% sjúklinga í þennan hóp (metachronous metastases) (2-8) en án meðferðar lifa flestir þessara sjúklinga í kringum hálft ár og fáir lengur en tvö ár (2,9-11). Krabbameinslyfjameðferð lengir líf sjúklinga með lifrarmeinvörp, en þó aðeins upp að vissu marki og ekki er hægt að búast við lækningu nema í algerum undantekningartilvikum (12-16). Engu að síður hafa krabbameinslyf hlutverki að gegna sem líknandi meðferð og sama á við um geisla- og frystimeðferð (cryo-surgery) (19-23). Lifrarúrnám sem læknanadi meðferð Brottnám lifrarmeinvarpa með skurðaðgerð, eða svokallað lifrarúrnám (resection), er á hinn bóginn vel rannsökuð meðferð með talsverðum möguleika á lækningu. í dag eru skráðar í gagnabönkum líf- vísindagreina (Medline) 25 afturvirkar rannsóknir, með að minnsta kosti 100 sjúklingum hver, sem gengist hafa undir lifrarúrnám vegna meinvarpa í kjölfar ristil- og endaþarmskrabbameins. Samtals náðu rannsóknirnar til rúmlega 7000 sjúklinga og fimm ára lífshorfur þeirra voru 29% (miðtala, bil 22- 43%) og skurðdauði 3,3% (dauði innan 30 daga eftir aðgerð) (miðtala, bil 0-6%) (24-49). Ein rann- sóknanna tók til 24 bandarískra sjúkrahúsa og 859 sjúklinga sem gengust undir lifrarúrnám á árunum 1948-1984. Fimm ára lífshorfur reyndust 32% og sjúkdómsfrí fimm ára lifun 24% (25), en síðarnefnda talan er víða notuð sem mælikvarði á fjölda þeirra sem læknast eftir lifrarúrnám (50). Stærsta rann- sóknin er frá Memory Sloan-Kettering Cancer Center í New York. Par var framkvæmd 1001 aðgerð á 13 árum, með 37% fimm ára og 22% 10 ára ENGLISH SUMMARY Guðbjartsson T, Magnússon J Colorectal liver metastasis. An evidence based review on surgical treatment Læknablaðið 2001; 87: 609-12 Liver metastases are common in patients with colorectal cancer, liver resection being the only well documented curative treatment. In this evidence based review, improved results after liver resection are presented and stated how patients are best selected for surgery using specific selection criteria. Key words: colorectal liver metastasis, liver resection, review. Correspondence: Tómas Guðbjartsson. E-mail: tomas.gudbjartsson@lund.mail.telia.com lífshorfum (miðtölur) (46). í sænskri rannsókn með 111 sjúklingum voru fimm ára lífshorfur heldur lakari en í bandarísku rannsóknunum sem nefndar voru áður, eða 25% (48). Engin rannsóknanna 25 sem nefndar voru hér á undan voru slembaðar og vel skilgreindur viðmiðunarhópur því ekki til staðar. Engu að síður er ljóst að árangur eftir lifrarúrnám er miklu betri en þar sem engin meðferð eða eingöngu krabbameinslyfjameðferð er veitt (11,12,16,39). Lifrarúrnám er því fýsilegur kostur i völdum tilfellum en er þó ekki lækning fyrir alla sjúklinga sem hún er reynd á. Lifunartölurnar eftir skurð- aðgerð gefa til kynna að meirihluti sjúklinga deyi innan fárra ára frá aðgerð og alvarlegir fylgikvillar eins og sýkingar, blæðingar og lifrarbilun eru fylgi- fiskar aðgerðar. Ábending fyrir aðgerð er því ekki fyrir hendi nema ákveðnum ströngum skilmerkjum sé fullnægt. Ef þeim er ekki fylgt er lifrarúrnám ekki möguleg læknandi aðgerð. Val á sjúklingum fyrir lifrarúrnám Til þess að vanda sem best valið á sjúklingum fyrir lifrarúrnám er hægt að kanna forspárþætti lífshorfa. Á síðustu 20 árum hafa birst 29 rannsóknir þar sem litið er sérstaklega á forspárþætti lífshorfa í þessum hópi sjúklinga (28-32,34,35,40,41,43,46-49,51-65). Rannsóknirnar eru allar afturskyggnar en að öðru Læknablaðið 2001/87 609

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.