Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2001, Page 18

Læknablaðið - 15.07.2001, Page 18
FRÆÐIGREINAR / LIFRARMEINVÖRP / SJÚKRATILFELLI Lifrarmeinvörp eftir ristilkrabbamein Tuttugu og átta ára gömul kona læknuð með endurteknu lifrarúrnámi Sjúkratilfelli Ágrip Tómas Guðbjartsson', Nick Cariglia2, Shreekrishna Datye2, Lífshorfur sjúklinga sem greinast með lifrarmeinvörp frá ristilkrabbameini eru slæmar og án meðferðar eru flestir dánir innan árs (1,2). Lifrarúrnám er eina læknandi meðferðin (3). Aðgerðinni má beita við endurtekin meinvörp (4,5). Lýst er tilfelli af endurteknu lifrarhöggi hér á landi. Sjúkratilfelli ENGLISH SUMMflRY Guðbjartsson T, Cariglia N, Datye S, Magnússon J Cure after re-resection of colorectal liver metastases in a 28 year old woman. A case report Læknablaðið 2001; 87: 614-7 Jónas Magntásson3'4 ' Hjarta- og lungnaskurödeild Háskólasjúkrahússins í Lundi, 2Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri, ’handlækningadeild Landspítala Hringbraut, iæknadeild Háskóla Islands. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Tómas Guðbjartsson, Algskyttevágen 37, S 226 53 Lund, Sverige. Netfang: tomas.gudbjartsson@lund. mail.telia.com Lykilorö: rístilkrabbamein, lifrarúrnám, sjúkratilfelli. Tuttugu og átta ára áður hraust kona var lögð inn á handlækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri (FSA) í júní 1990 vegna kviðverkja sem höfðu ágerst á tæpu ári. Þremur vikum fyrir innlögn fæddi hún sitt annað barn og gekk fæðingin vel. Eftir fæðinguna ágerðust verkirnir og hægðir urðu tregar. Vegna versnandi kviðverkja leitaði hún á bráða- móttöku FSA. Þar var hún illa haldin af verkjum en hitalaus og með eðlileg lífsmörk. Kviður var þaninn og eymsli við þreifingu í hægri mjaðmargróf. Ekki fundust merki um lífhimnubólgu og garnahljóð voru lífleg. Þreifing á lifur var eðlileg og engar hægðir í endaþarmi. Blóðhagur og sökk voru eðlileg við komu. Figure 1. Plain abdominal x-ray showing obstruction in the descending colon with dilatation ofthe cecum. Liver resection is the only well documented curative treatment for colorectal liver metastases but without surgery survival is dismal. Liver resections can be done for re-metastatic colorectal cancers if the tumors are localized in the liver. The first case of re-resection of colorectal liver metastases in lceland is presented. Key words: colorectal metastases, liver resection, case report. Correspondence: Tómas Guðbjartsson. E mail: tomas.gudbjartsson@lund.mail.telia.com Vegna gruns um garnastíflu var fengið kviðar- holsyfirlit sem sýndi stíflu í vinstri hluta ristils (colon descendens) með þenslu á digurgörn (coecum) og þverristli (mynd 1). Magasondu var komið fyrir og sjúklingnum gefinn vökvi og sýklalyf í æð. Ristilspeglun daginn eftir sýndi þrengingu í efri hluta vinstri ristils og neðan við hann stóran ristilsepa. Einnig var fengin tölvusneiðmynd af kviði sem sýndi fyrirferð við áðurnefnda þrengingu auk tveggja þéttra fyrir- ferða hvora í sínu lifrarblaði (mynd 2). Síðar sama dag versnuðu kviðverkirnir og var því gerð bráðaaðgerð þar sem kom í ljós fimm cm stórt ristilæxli rétt fyrir neðan miltissveigju. Framkvæmt var vinstra ristilbrottnám með teng- ingu milli þver- og bugðuristils. Auk þess voru tekin nálarsýni úr báðum lifraræxlunum en aðrar fyrirferðir þreifuðust ekki í lifur. Gangur eftir aðgerð var góður. Æxlið sem var 5,5 x 2,5 cm stórt reyndist miðlungi vel þroskað slímfrumumyndandi kirtilkrabbamein (adenocar- cinoma coli) og óx í gegnum öll vefjalög ristils og út í hengisfitu. Krabbameinsvöxtur greindist í stærsta af fjórum hengiseitlum. í námunda við æxlið fundust auk þess sex separ, fimm þeirra um 0,5 cm

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.