Læknablaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 20
FRÆÐIGREINAR / LIFRARMEINVÖRP / SJÚKRATILFELLI
Figure 5. Computed
tomography of tlte liver
with metastasis low in the
riglit liverlobe,
corresponding to segment
VI before the first liver
resection.
slagæðamyndataka af lifur gaf til kynna að hægt
væri að komast að meinvarpinu með skurðaðgerð.
Níu mánuðum eftir fyrri aðgerðina var nýja
fyrirferðin í hægra lifrarblaði numin á brott með
fleygskurði. Æxlið var staðsett í toppnum þar sem
geiri VI var áður. Aðgerðin gekk áfallalaust og
gangur eftir aðgerð var góður. Vefjarannsókn
sýndi 3 x 3 cm stórt kirtilkrabbamein með 1-2 mm
fríum skurðbrúnum víðast hvar nema á einum stað
þar sem æxlisvöxturinn náði út að skurðbrún. Eftir
aðgerðina var ekki veitt frekari meðferð með
frumueyðandi lyfjum.
í dag eru 10 ár liðin frá síðari lifraraðgerðinni og
sjúklingurinn er við góða heilsu. Konan hefur verið
reglulega í eftirliti á FSA og lifrarpróf og albúmín
hafa haldist eðlileg. Ekki hafa greinst ný ristilæxli
við ristilspeglun. CEA lækkaði eftir seinni
lifraraðgerðina og hefur haldist eðlilegt síðan
(innan við 3 ug/L). Lifur hefur einnig verið rann-
sökuð reglulega með ómskoðun og tölvusneið-
myndum og hafa ekki greinst ný meinvörp, hvorki
í lifur né annars staðar í kviðarholi.
Umræða
Allt að helmingur sjúklinga með ristilkrabbamein
greinist einhvern tímann með meinvörp í lifur (1,2).
Flestir þessara sjúklinga eru dánir innan árs en auk
lifrarmeinvarpa hafa margir meinvörp í öðrum
líffærum og eru því ólæknandi. Krabbameins-
lyfjameðferð kemur til greina í slíkum tilvikum, bæði
til að lengja líf og bæta líðan sjúklinganna (3).
Lækning er þó ekki möguleg í tilfellum sem þessum
og skurðaðgerð kemur aðeins til greina í undantekn-
ingartilvikum.
Lifrarúrnám er á hinn bóginn yfirburðar-
meðferð þegar meinvörp eru bundin við lifur og
má reikna með að í kringum 25-30% sjúklinganna
séu á lífi fimm árum eftir greiningu og skurðdauði
sé innan við 4% (4,5).
Sama á við um endurtekin lifrarmeinvörp líkt
og í tilfellinu sem lýst er að ofan. Forsenda
lækningar er að meinvörpin séu bundin við lifur en
það á við hjá 20-30% sjúklinganna (6-8). í 24
rannsóknum á Medline með samtals 191 sjúklingi
voru fimm ára lífshorfur 26% eftir endurtekið
lifrarúrnám. Athyglisvert er að skurðdauði var
lægri, eða 1,2%, en hafa verður í huga að um
valinn efnivið er að ræða (8-10). Einnig hefur
verið lýst rúmum tugi þrítekinna lifrarúr-
námsaðgerða við meinvörpum frá ristil- og enda-
þarmskrabbameinum (8). Vegna þess hversu
tilellin eru fá er erfitt að leggja mat á árangur
aðgerðanna.
Árangur eftir lifrarúrnám er vænlegastur ef
lifrarmeinvörp eru fá (færri en þrjú), minni en 5
cm og einskorðuð við minna en hálfa lifrina
(4,6,11-13). Auk þess eru horfur betri ef CEA
mælist undir 200 ng/ml (4). Tilfellið sem hér er lýst
uppfyllir þessi skilyrði. Hins vegar fannst
krabbameinsvöxtur í hengiseitlum ristils (meso-
colon) sem rýrir lífshorfur eftir lifrarhögg (4,12).
Einnig skerðast lífshorfur ef lifrarmeinvörp gera
vart við sig innan 12 mánaða frá greiningu
lifrarmeinvarpa og frumæxlis í ristli, en í þessu
tilfelli liðu fjórir mánuðir (4).
Loks má nefna að krabbameinsfríar skurð-
brúnir eru á meðal mikilvægustu forspárþáttanna
(4,12,13). Eftir seinni lifraraðgerðina sáust
krabbameinsfrumur í skurðbrúnum við smá-
sjárskoðun á skurðsýninu á einum stað. Engu að
síður læknaðist sjúklingurinn. I þessu sambandi er
rétt að hafa í huga að með CUSA ómhníf er vefi
sundrað með hljóðbylgjum og nokkuð breiður
kantur af vefi sogast upp með tækinu. Þannig má
gera að því skóna að krabbameinsfrumur hafi í
raun ekki náð að skurðbrúninni eins og
vefjaskoðun benti til.
Lokaorð
Hér er lýst árangursríkri meðferð á lifrarmein-
vörpum. Bent er á að möguleiki sé á lækningu í
völdum tilfellum þrátt fyrir að meinvörp séu í lifur frá
ristilkrabbameini.
Þakkir
Halldóri K. Valdimarssyni ljósmyndara er þökkuð
aðstoð við gerð mynda. Einnig starfsfólki bókasafns
Landspítalans fyrir aðstoð við leit að heimildum.
Helmildir
1. Bengmark S, Hafström L. The natural history of primary and
secondary malignant tumors of the liver. I. The prognosis for
patients with hepatic metastases from colonic and rectal
carcinoma by laparotomy. Cancer 1969; 23: 198-202.
2. Bengtsson G, Carlsson G, Hafström L, Jonsson PE. Natural
history of patients with untreated liver metastases from
colorectal cancer. Am J Surg 1981; 141: 586-9.
3. Levi F, Zidani R, Misset JL. Randomized multicenter trial of
616 Læknablaðið 2001/87