Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2001, Page 60

Læknablaðið - 15.07.2001, Page 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / PERSÓNUVERND OG FRIÐHELGI E I N K A L [ F S við að samtengingarheimildin hafi í för með sér að verja þurfi mun minni tíma og mannafla til að persónugreina þá einstaklinga sem upplýsingarnar varða. I fjórða lagi má velta því fyrir sér hversu vel til- skipunin frá 1995 nr. 95/46/EC sé í takt við þann tæknilega raunveruleika sem við lýði er nú, sex árum síðar. Eins og tilskipunin er upp byggð, tekur hún einkum mið af hinum svokölluðu móðurtölvum (mainframes). Pegar slíkar vélar voru og hétu, voru tölvur fáar og tölvukerfið þrepaskipt (hierarchical) með einn aðila, ábyrgðaraðila, sem öllu réð. Vegna tækniþróunarinnar er veruleikinn nú hins vegar sá, að milljónir lítilla einkatölva tengjast í gegnum alls kyns net, innri net fyrirtækja, háskólanet og svo internetið. Þar er engin tölva öðrum æðri og enginn einn aðili getur haft stjórn á öllu því flæði upplýsinga sem þar á sér stað (16). 4.2. Eftirlit með framkvæmd GRL Til þess að friðhelgi einstaklinganna sé tryggð með sem órækustum hætti, svo og önnur þau réttindi þeirra sem vernduð eru í lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, er eftirlit með fram- kvæmd laganna í höndum sjálfstæðrar, óháðrar nefndar, Persónuverndar. Með því móti er talið að sem best verði tryggt að hvorki stjórnvöldum, einstaklingum né lögaðilum verði heimiluð vinnsla persónuupplýsinga í bága við lögin. I 6. gr. GRL er gert ráð fyrir sérstakri nefnd um gerð og starfrækslu gagnagrunns á heilbrigðissviði, og er það meðal annars hlutverk nefndarinnar að sjá um að gerð og starfræksla gagnagrunnsins sé í samræmi við ákvæði GRL og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra og skilyrði sem sett eru í rekstrarleyfi, „að því leyti sem ekki er um að ræða lögbundið hlutverk Persónu- verndar“. Af hinum ýmsu ákvæðum laganna og reglugerðar nr. 32/2000 má sjá að auðveldlega getur komið til skörunar á valdsviði nefndanna, og ekki verður í fljótu bragði séð í höndum hvorrar nefndarinnar ákvörðunarvaldið liggi. Ef til vill mætti hafa hliðsjón af 37. gr. PVL um verkefni Persónu- verndar, en þar segir í 2. mgr., að Persónuvernd úrskurði í ágreiningsmálum sem upp kunni að koma um vinnslu persónuupplýsinga. Ekki er það þó vafalaus niðurstaða. Einnig kann að vera ástæða til að velta því fyrir sér hvort hlutleysi starfrækslunefndar sé nægilega tryggt með þeirri skipan nefndarmanna sem kveðið er á um í 6. gr. GRL og 15. gr. rg. nr. 32/2000, það er að þeir skuli skipaðir af heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra, án tilnefningar. Þannig sé sá möguleiki fyrir hendi að ráðherra, sem hefur fyrir hönd ríkisins fjárhagslegra hagsmuna að gæta af starfrækslu gagnagrunnsins, skipi í starfrækslunefnd þá nefndar- menn sem hann sé fyrirfram búinn að ganga úr skugga um að vinni í þágu hagsntuna ríkisins. Þegar tillit er tekið til framangreindra atriða, vaknar óhjákvæmilega sú spurning, hvort eftirlit með framkvæmd GRL sé nægilegt. 4.3. Undanþágur í 3. mgr. 71. gr. stjskr. og 2. mgr. 8. gr. MSE í 7. gr. GRL felst rýmkun á aðgangi að sjúkra- skrám og heimild til vinnslu upplýsinga úr þeim til flutnings í miðlægan gagnagrunn, án upplýsts sam- þykkis sjúklings. Spurning er, hvort þetta ákvæði laganna samrýmist 71. gr. stjskr. og 8. gr. MSE um friðhelgi einkalífs. 8. gr. MSE hljóðar svo: 1. „Sérhver inaður á rétt til friðhelgi einkalífs síns, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. 2. Opinber stjórnvöld skulu eigi ganga á rétt þennan nema samkvœmt því sem lög mœla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðrœðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar far- sœldar þjóðarinnar, til þess að firra glundroða eða glœpum, til verndar heilsu manna eða siðgœði eða réttindum ogfrelsiannarra." Eins og að framan er greint, var mannréttinda- ákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar breytt með stjórnskipunarlögum nr. 97/1995, MSE til samræmis. Eftir þá breytingu er ákvæðið um friðhelgi einkalífs nú að finna í 71. gr. stjskr. og sbr. 9. gr. laganna, er 71. gr. stjskr. nú svohljóðandi: 1. „Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. 2. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambœrilega skerðingu á einkalífi manns. 3. Þrátt fyrir ákvœði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu efbrýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra. “ Fyrir breytinguna 1995 var ákvæðið um friðhelgi einkalífs að finna í 66. gr. stjskr. og hljóðaði það svo: „Heimilið er friðheilagt. Ekki má gera húsleit né kyrrsetja bréf og önnur skjöl og rannsaka þau nema eftir dómsúrskurði eða eftir sérstakri lagaheimild. “ 4.4. Hrd. (1989):28 I þessu sambandi verður að geta dóms Hæsta- réttar frá árinu 1989, í dómasafni réttarins á bls. 28. í dómi þessum reyndi á það hvort ákvæði í lögum um Ríkisendurskoðun, sem heimilaði stofnuninni skoðun á frumgögnum eða skýrslum sem færðar væru samhliða reikningsgerð á hendur ríkinu (það er að segja sjúkraskrá í þessu tilviki), stæðist einka- lífsvernd sjúklinga og leyndarskyldu lækna. Var á því 656 Læknablaðib 2001/87

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.