Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2001, Síða 62

Læknablaðið - 15.07.2001, Síða 62
UMRÆÐA & FRÉTTIR / PERSÓNUVERND OG FRIÐHELGI EINKALÍFS ákærður fyrir manndráp með því að hafa haft samræði við aðrar konur, vitandi að hann væri HIV- smitaður. í tengslum við þetta lét lögreglan ljósrita sjúkraskýrslu Z og voru ljósritin hluti málsgagna. Deilt var meðal annars um heimild til þess að dómskjölunum yrði aðeins haldið leyndum í 10 ár, en Z taldi leyndartímabilið vera alltof stutt. Dómstóllinn féllst á að þessi tímatakmörkun hefði verið ákveðin af yfirvöldum í því skyni að vemda refsivörslu ríkisins og félli því undir undan- tekningarákvæði 2. mgr. 8. gr. MSE, en hins vegar taldi dómurinn að gengið hefði verið of langt á rétt Z til friðhelgi í því skyni. I dóminum er eftirfarandi tekið fram: „In this connection, the Court will take into account that the protection of personal data, not least medical data, is of fundamental importance to a person's enjoyment of his or her right to respect for private and family life as guaranteed by Article 8 of the Convention (art. 8). Respecting the confidentiality of health data is a vital principle in the legal systems of all the Contracting Parties to the Convention. It is crucial not only to respect the sense of privacy of a patient but also to preserve his or her confidence in the medical profession and in the health services in general. Without such protection, those in need of medical assistance may be deterred from revealing such information of a personal and intimate nature as may be necessary in order to receive appropriate treatment and, even, from seeking such assistance, thereby endangering their own health and, in the case of transmissible diseases, that of the community." Margir læknar hafa lýst því að eftir setningu GRL séu sjúklingar þeirra uggandi um að upplýsingar úr sjúkraskrám þeirra muni verða afhentar til flutnings í hinn miðlæga gagnagrunn og eigi sumir sjúklinganna erfitt með að treysta því að upplýsingarnar verði ekki afhentar, þrátt fyrir skriflega úrsögn þeirra sjálfra (19). Hafa læknarnir lýst áhyggjum sínum af því að trúnaðarsambandi læknis og sjúklings kunni í sumum tilvikum að vera hætta búin vegna þessa, þar sem sumir sjúklingar vilji ekki tjá sig nægilega um vandamál sín vegna tortryggni. Að virtu því sem tekið var fram í dóminum, svo og greindum frásögnum læknanna, vaknar spurning um það hvort setning GRL yrði hugsanlega talin fara gegn stjskr., hvað sem liði álitaefnum um það hvort í gagnagrunninum væru geymdar persónuupplýsingar eður ei. Með öðrum orðum, hvort tilurð gagna- grunnsins eða heimild til starfrækslu hans væri nægilegt til að talið yrði að hinu nauðsynlega trúnaðarsambandi stæði það mikil ógn af, að bryti gegn friðhelgi einkalífs. Gilti þá einu hvorl upplýst samþykki sjúklinga þyrfti til að upplýsingar úr sjúkraskrám þeirra yrðu afhentar til flutnings í grunninn, ef sjúklingar geti ekki treyst því að skrifleg höfnun sé nægileg trygging gegn afhendingu, þá geti þeir heldur ekki treyst því að skriflegt samþykki sé það. Líklegast eru þetta æði langsóttar hugleiðingar, en engu að síður þykir vert að viðra þær. Sennilegast er að orð dómsins verði einfaldlega eitt af þeim atriðum sem íslenskir dómstólar muni taka mið af í mati sínu á því hvort tiltekin ákvæði GRL fari gegn 1. mgr. 71. gr. stjskr. og 1. mgr. 8. gr. MSE, með þeirri afleiðingu að upplýsts samþykkis sé krafist. 4.7. Skýring MSE Við skýringu einstakra ákvæða MSE hefur verið tilhneiging hjá Mannréttindadómstólnum að leggja til grundvallar markmið sáttmálans og tilgang. Eru meginmarkmið sáttmálans greind í inngangi hans og segir þar meðal annars, að samningsríkin hafi í huga hina almennu mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948, sem hafi það markmið, að tryggja almenna og raunhæfa viðurkenningu og vernd þeirra réttinda sem þar er lýst. Pá lýsa ríkin yfir sameiginlegri trú sinni á að mannfrelsi, sem sé undirstaða réttlætis og friðar í heiminum, sé best tryggt með virku lýðræðislegu stjórnarfari annars vegar og almennum skilningi og varðveislu þeirra mannréttinda sem eru grundvöllur frelsisins hins vegar (20). 4.8. Niðurstaða Ljóst er að veruleg óvissa ríkir um mikilvæg atriði er varða GRL. Þó svo greinarhöfundur treysti sér ekki til að fullyrða að ákvæði GRL séu ósam- rýmanleg 1. mgr. 71. gr. stjskr. og 1. mgr. 8. gr. MSE um friðhelgi einkalífs, þá þætti það ekki koma á óvart miðað við þau atriði sem greind eru í liðum 4.1.-4.7. hér að framan. Má ætla að af þessum sjónarmiðum hefðu dómstólar mið af við mat sitt á því hvort hinn almenni löggjafi hafi að þessu leyti farið út fyrir þau mörk sem grundvallarlög setja honum. 5. Lokaorð Fyrir og í kjölfar lögfestingar MSE árið 1994 og eftirfarandi breytinga á ákvæðum íslensku stjskr. árið 1995 sáttmálanum til samræmis, hefur túlkun þeirra mannréttinda sem sáttmálinn hefur að geyma, aukið vægi á íslandi. Er það þó of vægt til orða tekið, því með lögfestingu sáttmálans hafa ákvæði hans orðið hluti af íslenskum lögum og geta einstaklingar nú borið þau ákvæði fyrir sig sem gildandi réttarreglur að landsrétti. Af þessu hafa á almennum vettvangi vitaskuld sprottið auknar umræður um mannréttindi, og telja má að íslendingum séu mannréttindi frekar hugleikin nú en nokkru sinni áður. I samræmi við þetta hneig öll þróun fram til ársins 1998 í þá átt að auka vernd persónuupplýsinga. Segja má hins vegar að með lögum nr. 139/1998 um gagnagrunn á heilbrigðissviði, hafi ákveðin vatnaskil orðið í 658 Læknablaðið 2001/87 J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.