Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2001, Qupperneq 69

Læknablaðið - 15.07.2001, Qupperneq 69
UMRÆÐA & FRETTIR / TÆPITUNGULAUST en það að réttindi almennings séu skýr? Friðrik Vagn Guðjónsson talar skýrt. Hann ætlar ekki að láta upplýsingar unt sjúklinga sína í miðlægan gagna- grunn og leggur stöðu sína undir. Hversu margir læknar eru reiðubúnir til að gera slíkt hið sama og hvernig ætlar stjórn LÍ að taka á málum þeirra? Ráðstefna lækna og lögfræðinga var merkileg um margt, en ég ætla ekki að ræða hana fyrr en öll erindin hafa birst í blaðinu. Greinin hans Péturs um vanda heimilislækninga er skýr, eins og hans er von og vísa, en væri ekki ástæða til að hann og fleiri úr heimilislæknaþjónust- unni fengju frí frá störfum í svo sem eitt ár, til að reyna að grafa eftir rótum vandans? Mig langar að lokum að minnast á nýlegt sjónvarpsviðtal við lækningaforstjóra Landspítala háskólasjúkrahúss, þar sem hann lætur þá skoðun í ljós að flytja eigi ferliverk inn á sjúkrahúsin. Ég var hallur undir þessa skoðun áður fyrr, en tel nú að það yrði til þess að ríkisvaldið gæti endanlega bundið hendur lækna. En viðtalið segir mér að læknar eru fljótir til að samsamast embættisvaldinu og þar með glata skýrri hugsun. Og nú spyr ég: Er lækningaforstjórinn, sem sjálfur hefur starfað mestan sinn starfsaldur sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur, að gefa það í skyn að leggja beri niður starfsemi sjálfstætt starfandi sérfræðinga og koma þeim öllum fyrir á ríkisjötunni? Þarna vantar skýr skilaboð. Þetta skal látið nægja að sinni en af því að allt orkar tvímælis sem sagt er og gert, ætla ég að Ijúka þessu spjalli með annarri tilvitnun í Piet Hein sem hljóðar svo: Sá sem veit að rangt er rangt og jafnan rétt hið rétta hann á að vísu œrið langt í land að skilja þetta. Menningarheimar mætast Ólík menningar- og trúaráhrif móta líf og viðhorf einstaklinga. Þessi staðreynd er ástæða þess að landlæknisembættið og Landspítalinn- háskólasjúkrahús hafa gefið út ritið: Menningar- heimar mætast. með upplýsingum fyrir heilbrigðis- starfsfólk. Ólík viðhorf koma ekki síst í ljós þegar á reynir, við fæðingu, sjúkdóma, þjáningar eða dauða. í fréttatilkynningu frá Landspítalanum og landlæknisembættinu segir meðal annars að mark- mið útgáfunnar sé að auka skilning heilbrigðis- starfsfólks á þörfum einstaklinga, sem alist hafa upp við mismunandi menningu og trú. Það er gert í ritinu með því að varpa ljósi á þá trúarheimspeki, viðhorf og lífsgildi sem rekja má til arfleifðar sem sjúklingar af ýmsum trúarbrögðum og þjóðernum hafa, svo og viðhorf þeirra sem aðhyllast ákveðnar trúarskoðanir. Kveikjan að ritinu er sú staðreynd að á skömmum tíma hefur íslenskt samfélag orðið fjölþjóðlegt og við því þarf að bregðast. Sam- félagið þarf að koma til móts við mismunandi þarfir sem meðal annars skapast af margvíslegri arfleifð, lífsháttum og trúarhefð. Þá hefur aukinn straumur ferðamanna aukið þörf á því að heilbrigðisstarfsfólk sé upplýst um mismunandi menningu, trú og siði. I fréttatilkynningunni segir ennfremur: „Nokkuð álag getur fylgt því fyrir heilbrigðis- starfsfólk þegar ólfkir menningarheimar mætast, einkum þegar kemur að eftirliti, meðferð og umönnun veikra og deyjandi sjúklinga svo og í samskiptum við aðstandendur þeirra. Þekking heilbrigðisstarfsmanna á megingildum ólíkra þjóðfélagshópa sem leita til heilbrigðiskerfisins er líkleg til að auðvelda nálgun, eftirlit, meðferð og umönnun sjúklinga. Hún er til þess fallin að auka skiling, samvinnu og traust rnilli manna og stuðla að betri samskiptum og árangri. Á þessu byggir grundvallarhugmyndafræði heilbrigðis- þjónustunnar, það er að mæta einstaklingnum á hans forsendum og veita honum heildræna meðferð.“ Höfundar ritsins eru Þorbjörg Guðmunds- dóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum og Vilborg Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur við landlæknisembættið. Það er hið fyrsta sinnar tegundar sem gefið er út hér á landi. Við vinnslu bókarinnar var haft samband við öll trúfélög hér á landi með 100 eða fleiri meðlimi, sem skráð eru hjá Hagstofu Islands. Auk prentútgáfu ritsins er hægt að nálgast það á vefi Landspítalans (www.landspitali.is) og landlæknisembættisins (www.landlaeknir.is). Læknablaðið 2001/87 665
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.