Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2001, Qupperneq 72

Læknablaðið - 15.07.2001, Qupperneq 72
VIOXX MSD 990068 TÖFLUR MOIAH Virkl innihaldsefni: 123 mg eða 25 mg rofekoxib. Töflumar inni- halda laktósu. Ábendingan Meðferð við cinkcnnum af völdum slitgigtar. Skammtar: Ráðlagður upphafsskammtur er 123 mg einu sinni á dag. Hámarksskammtur á dag er 25 mg. Aldraðir: Gæta skal varúðar þegar dagskammturinn er aukinn úr 123 mg í 25 mg hjá öldruðum. Skerl nýrnaslarfsemi: Skammta þarf ekki að aðlaga hjá sjúklingum með kreatínín klerans 30-80 ml/mín. Skerl lifrarslarfsemi: Sjúklingum með væga skerðingu á lifrarstarfscmi (Child-Pugh gildi 5-6) skal ekki gefa meira en minnsta ráðlagðan skammt, 123 mg cinu sinni á dag. Frábendingan Rófekoxíb er ekki ætlað: Sjúklingum sem hafa þekkt ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Sjúklingum með virkan sársjúkdóm í meltingarvegi eða blæðingu í meltingarvegi. Sjúklingum með miðlungsalvarlcga eða verulega skcrðingu á lifrarstarfsemi (Child-Pugh gildi í 7). Sjúklingum mcð áætlaðan kreatínín klerans < 30 ml/mín. Sjúklingum sem hafa haft einkenni astma, bólgu í nefslímhúð, sepa í nefslímhúð, ofsabjúg eða ofsakláða eftir inn- töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi verkjalyfja. Til notkunar á síðasta þriðjungi meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur. Sjúklingum með bólgusjúkdóm í þörmum. Sjúklingum með langt gengna hjartabilun. Varnaðarorð og varúðarreglun Þegar blóðflæði um nýru er minnkað getur rófekoxíb dregið úr myndun prostaglandína og með því minnkað blóðflæði um nýru enn meira og þannig valdið skerðingu á nýmastarfsemi. Þeir sem eru í mestri hættu m.t.t. þessa eru sjúklingar sem hafa verulega skerta nýmastarfsemi fyr- ir, hjartabilun sem Ifkaminn hefur ekki náö að bæta upp, og sjúk- lingar með skorpuiifur. Hafa skal eftirlit með nýmastarfsemi slíkra sjúklinga. Gæta skal varúðar þegar meðferð er hafin hjá sjúklingum með verulegan vökvaskort. Ráðlcgt er að bæta slíkan vökvaskort upp áður en meðferð með rófekoxíbi er hafin. Eins og á við um önnur lyf sem koma í veg fyrir myndun prostaglandína, hafa vökvasöfnun og bjúgur átt sér stað hjá sjúklingum á rófe- koxíb meðferð. Þar sem meðferð með rófekoxíbi getur leitt til vökvasöfnunar skal gæta varúðar hjá sjúklingum sem hafa fengið hjartabilun, truflanir á starfsemi vinstri slegils eða háan blóðþrýst- ing og einnig hjá sjúklingum sem hafa bjúg fyrir, af einhverjum öðrum orsökum. Eftirlit skal haft með öldruðum og sjúklingum með truflanir á nýma-, lifrar-, eða hjartastarfsemi, þegar þeir eru á rófekoxíb meðferð. 1 klínískum rannsóknum fengu sumir slitgigt- arsjúklinganna sem voru á rófekoxíbi meðferð rof, sár eða blæð- ingar í meltingarveg. Sjúklingar sem áður höfðu fengið rof, sár eða blæðingar og sjúklingar sem voru eldri en 65 ára virtust vera í meiri hættu á að fá fyrmefndar aukaverkanir. Þegar skammturinn fer yfir 25 mg á dag, eykst hættan á einkennum frá meltingarvegi, sem og hættan á bjúgi og háum blóðþrýstingi. Hækkanir á ALAT og/eða ASAT (u.þ.b. þreföld eðlileg efri mörk, eða meira) hafa veriö skráðar hjá u.þ.b. 1% sjúklinga í klínískum rannsóknum á rófekoxibi. Ef sjúklingur fær einkenni sem benda til truflana á lifr- arstarfsemi, eða niðurstöður úr lifrarprófum eru óeðlilegar, skal hætta rófekoxíb meðferð ef óeðlileg lifrarpróf eru viðvarandi (þre- föld cðlileg efri mörk). Rófekoxíb getur dulið hækkaðan líkams- hita. Notkun rófekoxíbs, sem og allra annarra lyfja scm hamla COX-2, er ckki ráðlögð hjá konum sem eru að reyna að verða þungaðar. Böm: Rófekoxíb hefur ekki verið rannsakað hjá bömum og skal aðeins gefið fullorðnum. Magn laktósu í hverri töflu er lík- lega ekki nægilegt til þess að framkalla einkenni laktósuóþols. Milliverkanir Hjá sjúklingum sem náð höfðu jafnvægi á langvar- andi warfarín meðferð varð 8% lenging á prótrombíntíma í tengsl- um við daglega gjöf 25 mg af rófekoxíbi. Því skal hafa nákvæmt eftirlit með prótrombíntíma hjá sjúklingum sem eru á warfarín meðferð þegar rófekoxíb meðferð er hafin. Hjá sjúklingum með vægan eða miðlungsmikinn háþrýsting, varð örlítil minnkun á blóðþrýstingslækkandi áhrifum í tengslum við samhliða gjöf 25 mg af rófekoxfbi á dag og ACE-hemils f 4 vikur, miðað við áhrifin af ACE-hemlinum eingöngu. Hvað varðar önnur lyf sem hamla cýdóoxýgenasa, þá getur gjöf ACE-hemils samhliða rófekoxíbi, hjá sumum sjúklingum með skerta nýmastarfsemi, leitt til enn meiri skerðingar á nýmastarfsemi, sem þó gengur venjulega til baka. Þessar millivcrkanir ber að hafa í huga þegar sjúklingar fá rófckoxfb samhliða ACE-hemlum. Notkun bólgueyðandi verkja- lyfja samhliða rófekoxíbi gæti einnig dregið úr blóðþrýstingslækk- andi verkun beta-blokka og þvagræsilyfja sem og annarra verkana þvagræsilyfja. Forðast skal samhliða gjöf stærri skammta af acetýlsalicýlsýru eða bólgueyðandi verkjalyfja og rófekoxíbs. Samhliða gjöf cýklósporíns eða takrólímus og bólgueyðandi verkjalyfja getur aukið eiturverkanir cýklósporíns eða takrólímus á nýru. Eftirlit skal hafa með nýmastarfsemi þegar rófekoxfb er gefið samhliða öðru hvoru þessara lyfja. Áhrif rófekoxíbs á lyfja- hvörf annarra lyfja: Blóðþéttni litíums getur aukist af völdum bólgueyðandi verkjalyfja Hafa ber í huga þörf fyrir viðeigandi eft- irlit með eiturverkunum tengdum metótrexati þegar rófekoxíb er gefiö samhliða metótrexati. Engar milliverkanir við dígoxín hafa komið fram. Gæta skal varúðar þegar rófekoxíb er gefið samhliða lyfjum sem umbrotna fyrst og fremst fyrir tilstilli CYP1A2 (t.d. tcófyllíni, amitryptilini, tacríni og zileútoni).Gæta skal varúðar þegar lyfjum sem umbrotna fyrir tilstilli CYP3A4 er ávísað sam- hliða rófekoxibi. í rannsóknum á milliverkunum lyfja, hafði rófe- koxíb ekki klínfskt mikilvæg áhrif á lyfjahvörf prednisóns/predn- isólons eða getnaðarvamartaflna (etinýlöstradíóls/norethindróns 35/1). Áhrif annarra lyfja á lyfjahvörf rófekoxíbs: Þegar öflugir cýtókróm P450 innleiðarar eru ekki til staðar, er CYP-hvatt umbrot ekki meginumbrotslcið rófekoxibs. Engu að síður olli samhliða gjöf rófekoxíbs og rffampins, sem er öflugur innleiðari CYP ens- íma, u.þ.b. 50% lækkun á blóðþéttni rófekoxíbs. Því skal íhuga að gefa 25 mg skammt af rófekoxíbi þegar það er gefið samhliða lyfj- um sem eru öflugir innleiðarar umbrots í lifur. Gjöf ketókónazóls (öflugur CYP3A4 hemill) hafði ekki áhrif á lyfjahvörf rófekoxíbs f blóði. Címetidin og sýruhamlandi lyf hafa ekki klínískt þýðingar- mikil áhrif á lyfjahvörf rófekoxibs. Meðganga og brjóstagjöf: Notkun rófekoxíbs, sem og allra annarra lyfja sem hamla COX-2, er ekki ráðlögð hjá konum sem eru að reyna að verða þungaðar. Rófekoxíb á ekki að nota á síðasta þriðjungi meðgöngu þar sem þaö gæti, eins og önnur lyf sem hamla myndun prostaglandína, dregið úr samdrætti legs í faíðingu og valdið ótfmabærri lokun á slagæðarás. Notkun rófekoxíbs hefur ekki verið rannsökuð hjá þunguðum konum í fullnægjandi samanburðarrannsóknum og skal því ekki nota lyfið á fyrstu tveimur þriðjungum meðgöngu nema væntanlegt gagn af meðferðinni réttlæti mögulega áhættu fyrir fóstrið. Ekki er vitað hvort rófekoxíb skilst út í brjóstamjólk, en það skilst út í mjólk tilraunadýra. Konur sem eru á rófekoxib meðferð ættu ekki að hafa böm á brjósti. Aukaverkanin Eftirfar- andi lyfjatengdar aukavcrkanir voru skráðar, af hærri tföni en þeg- ar um lyfleysu var að ra?ða, í klínískum rannsóknum hjá sjúkling- um sem fengu 123 mg eða 25 mg af rófekoxíbi í allt að sex mán- uði. Algengar (>1 %): Almennar: Bjúgur.vökvasöfnun, kviðverkir, svimi. Hjarta- og æðakerfi: Hár blóðþrýstingur. Meltingarfæri: Brjóstsviði, óþægindi í efri hluta kviðar, niðurgangur, ógleði, melt- ingartmflanir. Taugakcrfi: Höfuðverkur. Húð: Kláði. Sjaldgæfar (0,1-1 %): Almennar: Þreyta/máttleysi, uppþemba, brjóstverkur. Meltingarfæri: Hægðatregða, sár í munni, uppköst, vindgangur, nábítur. Augu, eym, nef og kok: Eymasuð. Efnaskipti og næring: Þyngdaraukning. Stoðkerfi: Sinadráttur. Taugakerfi: Svefnleysi, svefnhöfgi, svimi.Geðræn einkenni: Geðdeyfð, minnkuð andlcg skerpa. öndunarfæri: Andþyngsli. Húð: Útbrot, atópískt eksem. Að auki hafa væg ofnæmisviðbrögð verið skráð í sjaldgæfum til- vikum í klínfskum rannsóknum.Aukaverkanir vom svipaðar hjá sjúklingum sem fengu rófekoxíb í eitt ár eða lengur. Breytingar á niðurstöðum blóö- og þvagrannsókna: Algengar (>1 %): Hækk- un á ALAT, lækkun á hematókrít, hækkun á ASAT. Sjaldgæfar (0,1-1 %): hækkun á þvagefni, lækkun á hemóglóbfni, hækkun á kreatfnfni, Hækkun á alkalískum fosfatasa, prótein í þvagi, fækk- un rauðra og hvítra blóðkoma. Eftirtaldar alvarlegar aukaverkan- ir hafa verið skráðar í tengslum við notkun bólgueyðandi verkja- lyfja og ekki er hægt að útiloka þær í tengslum við rófekoxíb: Eit- urverkanir á ným, þ.á m. millivefs nýmabólga nýrungaheilkenni (nephrotic syndrome) og nýmabilun; eiturverkanir á lifur, þ.á m. lifrarbilun og lifrarbólga; eiturverkanir á meltingarfæri, þ.á m. rof, sár og blæöingar; eitur\erkanir vegna of mikils blóðrúmmáls, þ.á m. hjartabilun og bilun í vinstri slegli; aukaverkanir á húð og slím- húðir og alvarleg viðbrögð í húð. Eins og á við um bólgueyðandi verkjalyf geta alvarlegri ofnæmisviðbrögð átt sér stað þ.á m. bráðaofnæmi án þess að viðkomandi hafi áður fengið rófekoxfb. Pakkningar og verð (desember, 2000): Töflur 123 mg og 25 mg: 14 stk. 2756 kr. 28 stk. 4888 kr. 98 stk. 14555 kr Afgreiðsla: Lyfscð- ilsskylda, Grciðsluþátttaka: E. Handhafi markaðsleyfis: Merck Sharp & Dohme B.V., Haarlcm, Holland. Umboðsaðili á íslandi: Farmasía ehf, Sfðumúla 32,108 Reykjavík. . á VIOXX (ROFEKOXIB, MSD) *ÉO\XÍB" á íslancli ri & MERCK SHARP& DOHME FARMAS/A ehf. EINÁDAG (rófekoxíb. MSD) Sértækt - Áhrifaríkt - Einfalt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.