Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2001, Síða 76

Læknablaðið - 15.07.2001, Síða 76
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR SIÐANEFNDAR Úrskurður Síðanefndar Læknafélags íslands ÁR 2001, FIMMTUDAGINN 5. APRÍL, KOM SlÐANEFND Læknafélags Islands saman á skrifstofu formanns í Dómhúsinu við Lækjartorg. Fyrir var tekið erindi Halldórs Jónssonar jr. og í nefndinni kveðinn upp svohljóðandi ÚRSKURÐUR Með bréfi Læknafélags íslands til Siðanefndar dagsettu 2. október síðastliðinn var nefndinni sent erindi Halldórs Jónssonar jr. dagsett 18. september síðastliðinn en bréfið er svohljóðandi: „Undirrituðum barst í hendur meðfylgjandi afrit af bréfi til sjúklings sem leitað hefur eftir aðstoð Boga Jónssonar bæklunarskurðlæknis vegna rifins fremra krossbands. Forsaga málsins (eins og hún er þekkt opinberlega) er að þrír bæklunarskurðlæknar (sjá undirskrift á meðfylgjandi bréfi) sem allir unnu á Sjúkrahúsi Reykjavíkur gerðu einnig krossbanda- aðgerðir á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Tveir þeirra (ÁK og SC) sögðu upp störfum á SHR og fluttu alla starfsemi sína í eigin lækningastofu í Álftamýri. Meiningin var að taka þar upp m.a. krossbanda- aðgerðir. Þar sem ekki tókst að ná samningum við T.R. var sjúklingum gert að bera allan kostnaðinn sjálfir, en það er í kringum 300.000 kr. Einstaklingar tengdir íþróttafélögum hefur tekist í einhverjum tilvikum að fá þau til að hlaupa undir bagga. Aðrir hafa leitað til annara lækna, þ.á.m. ofangreinds Boga Jónssonar og einnig Brynjólfs Y. Jónssonar, en báðir hafa reynslu af þessum aðgerðum frá Sjúkrahúsi Akraness, þar sem sjúklingar eru inniliggjandi í sambandi við aðgerðina. Þegar ekki tókst að ná samningum við Álfta- mýrarlækna, sendi heilbrigðisráðuneytið fyrirspurn til Jóhannesar Gunnarssonar lækningaforstjóra hvort mögulegt væri að aðstoða þá sjúklinga sem verst væru haldnir og hefðu ekki efni á að fara í aðgerð í Álftamýri. Að athuguðu máli hjá undirrituðum fannst ekkert því til fyrirstöðu að aðstoða sjúklingana á Landspítalanum við Hringbraut með aðstoð Boga Jónsssonar og Ríkarðs Sigfússonar ásamt tækjakosti frá St. Jósefsspítala í Hafnarfriði. Heilbrigðisráðu- neytið hefur síðan bent sjúklingum sem leitað hafa þangað á að fara til læknanna BJ og RS til hefðbundinnar skoðunar og mats áður en til aðgerðar kæmi. Ég tel það skyldu mína gagnvart læknum þeim sem ég óskaði aðstoðar frá svo og gagnvart deildinni og stofnunni að fara fram á álit landlæknis og siðanefndar læknafélagsins á innihaldi bréfsins. Ég sendi bréfið einnig sem afrit til heilbrigðsiráðuneytis og lækningaforstjóra sem báðum er málið skylt, ekki síst þar sem einn af undirriturum bréfsins (BJ) vinnur ennþá hjá stofnuninni og þar með undir þeirra valdsviði.“ Bréf læknanna Ágústs Kárasonar, Brynjólfs Jónssonar og Stefáns Carlssonar, hljóðar svo: „Til biðlistasjúklinga vegna krosabandaaðgerða, Reykjavík 23. ágúst: 2000 Við undirritaðir, bæklunarlæknar Stefán Carlsson, Ágúst Kárason og Brynjólfur Jónsson sem höfum sinnt krossbandsaðgerðum á undanförnum árum m.a. á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði höfum frétt af því að taka eigi upp krossbandsaðgerðir með lið- speglunartækni á Landspítala við Hringbraut. Okkur er ekki kunnugt um að reynsla sé til staðar að gera þessar aðgerðir á bæklunardeild Landspítala við Hringbraut því viljum við eindregið benda sjúklingum á kanna reynslu þeirra sem framkvæma eiga þessar aðgerðir þar ef sjúklingar velja þann kostinn. Samningar hafa enn ekki tekist við Heilbrigðis- ráðuneytið um krossbandaaðgerðir á St. Jósefs- spítala. Við gerum því þessar aðgerðir á okkar skurðstofum án þátttöku Heilbrigðisráðuneytis um greiðslu á þeim, þar til samningar takast. Bréf þetta er ekki skrifað til að vísa sjúklingum af okkar biðlistum, heldur til að upplýsa um aðra möguleika ef fólk vill kynna sér þá. Þess ber að geta að undirritaðir hafa framkvæmt um 300 krossbandaaðgerðir með liðspeglunartækni á síðastliðnum fimm árum.“ Þá hefur nefndinni borist bréf Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl., þar sem hann sendir afrit bréfa til landlæknis dagsett 24. október síðastliðinn og 7. nóvember síðastliðinn svo og bréf landlæknis til sín dagsett 29. október. í símtali við formann nefndarinnar lýsti lögmaður- inn því að hann teldi ekki þörf á að koma fyrir nefndina og gera grein fyrir sjónarmiðum umbjóð- enda sinna, það er læknanna Ágeirs Kárasonar, Brynjólfs Jónssonar og Stefáns Carlssonar enda væru sjónarmið þeirra reifuð í bréfi hans til landlæknis dagsettu 7. nóvember síðastliðinn. Þar kemur fram sú skoðun að í ummælum felist 672 Læknablaðið 2001/87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.