Skessuhorn - 26.11.2014, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Fólk er hvatt til að kynna sér metn-
aðarfulla menningar- og afþrey-
ingardagskrár á Vesturlandi næstu
vikurnar. Eins og lesa má um í
blaðinu í dag er margt á döfinni í
menningarhúsum og kirkjum.
Heldur kólnandi er í kortunum frá
því sem verið hefur. Á fimmtudag
og föstudag er spáð fremur hægri
suðaustanátt með slyddu og síðar
rigningu, en úrkomulitlu norðan til
á landinu. Hlýnandi í bili. Þegar líð-
ur á helgina er síðan í framhaldspá
Veðurstofunnar gert ráð fyrir kóln-
andi veðri með slyddu og jafnvel
snjókomu einkum á vestanverðu
landinu. Þó er vakin athygli á því
að vegna vinnslutíma blaðsins er
hér stuðst við meiri langtímaspá
en venja er.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhors. „Mun fólk hafa meira
á milli handanna fyrir þessi jól en
síðustu?“ Stærstur hluti svarenda
telur að svo verði ekki. „Nei minna“
sögðu 38,82%, „já meira“ var svar
17,11% og „jafn mikið“ sögðu
17,43%. 26,64% treystu sér ekki til
að spá um það.
Í þessari viku er spurt:
Er óskað mjúkra eða harðra pakka?
Ungt fólk og athafnasamt eru Vest-
lendingar vikunnar að þessu sinni,
eins og lesa má um í blaðinu í dag.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Grundfirsk hönnun verðlaunuð
á Sjávarútvegsráðstefnunni
Sjávarútvegsráðstefnan 2014 var
haldin á Grand hóteli í Reykja-
vík síðustu helgi. Tilgangur ráð-
stefnunnar er að stuðla að faglegri
og fræðandi umfjöllun um sjávar-
útveg og að vera vettvangur fyrir
samskipti þeirra sem koma að sjáv-
arútvegi hér á landi. Á föstudag-
inn var tilkynnt að sporðskurðar-
vél sem Unnsteinn Guðmundsson í
Grundarfirði þróaði og kynnti fyrr
á þessu ári hefði hlotið fyrstu verð-
laun fyrir besta nýsköpun í tækni til
fiskvinnslu. Það var fyrirtækið 4fish
ehf. sem framleiðir sporðskurð-
arvélarnar. Slík vél hefur verið til
reynslu hjá G.Run í Grundarfirði í
ríflega hálft ár og reynst afar vel að
sögn Runólfs Guðmundssonar.
Að fenginni góðri reynslu var
ákveðið að markaðssetja vélina og
fjöldaframleiða. Fiskurinn fer í
sporðskurðarvélina áður en hann
fer í hausun og flökun. Vélin sker
blásporðinn af fiskinum og með því
vinnst margt. Meðal annars verð-
ur ísetningin inn í hausingarvél og
flökunarvél mun betri. Í frétt frá
því í haust hér í Skessuhorni um
nýju vélina sagði m.a.: „Fiskur-
inn kemur mun beinni inn í flök-
unina og því verður flakið hreinna
og minna þarf að snyrta. Þar með
fer minna í afskurð og minni vinna
er við snyrtingu. Þetta þýðir auð-
vitað að fiskurinn fer í meira mæli
í verðmætari pakkningar. Vélin
kostar heldur ekkert aukastarf því
maðurinn sem er á hausingarvél-
inni smellir fiskinum í sporðskurð-
inn áður en lengra er haldið. Flök-
unargallar heyra nánast sögunni til,
gallar í flökun verða minni og bit
í hnífum endist lengur. Svo þegar
hann kemur úr flökun í roðflett-
ingu gengur hún mun betur fyr-
ir sig vegna þess að flakið er allt
hreinna og betra. Þar af leiðandi er
minna um galla og meira fer í dýr-
ari pakkningar. Það eru fjölmargir
hlutir sem vinnast með sporðslurði.
Það koma betri og verðmætari af-
urðir, það þarf ekki eins mikinn af-
skurð. Þetta er líka sérstaklega gott
fyrir þá sem notast við nýja tækni
með vatnsskurðarvélum. Þar eru
flökin lesin áður en þau eru skorin
en með sporðskurði áður les vatns-
skurðarvélin flökin betur.“
mm
Sporðskurðarvélin.
Það var þétt setinn bekkurinn á Sjávarútvegsráðstefnunni.
Jólasamkeppni Skessuhorns meðal grunnskólanema
Skessuhorn gengst nú tíunda árið í
röð fyrir samkeppni meðal grunn-
skólabarna á Vesturlandi í gerð jóla-
mynda og jólasagna. Líkt og á síð-
asta ári verður keppnin í þremur
flokkum. Í fyrsta lagi býðst öllum
börnum á aldrinum 6-9 ára (1.-4.
bekkur) að senda inn teiknaðar og
litaðar myndir (A4) þar sem þem-
að á að vera jólin. Í öðru lagi býðst
krökkum á aldrinum 10-12 ára (5.-7.
bekkur) að senda inn myndir og er
þemað það sama. Teikningakeppn-
inni er því tvískipt eftir aldri.
Loks býðst elstu grunnskóla-
krökkunum, á aldrinum 13-16 ára
(8.-10. bekkur), að senda inn jóla-
sögur. Lengd jólasagnanna má að
hámarki vera hálf til ein A4 síða með
12 punkta letri.
Valin verður besta myndin í hvor-
um flokki teikninga og besta jóla-
sagan að mati dómnefndar. Verða
verðalaunamyndirnar og verðlauna-
sagan birt í Jólablaði Skessuhorns
sem kemur út miðvikudaginn 17.
desember nk. Veitt verða ein verð-
laun í hverjum flokki og eru þau ekki
af verri endanum; glæsilegt símtæki
frá versluninni Omnis.
Skilafrestur á sögum og mynd-
um í samkeppnina er til og með há-
degis fimmtudaginn 11. desemb-
er. Myndir skulu sendar í pósti á
heimilisfangið: Skessuhorn ehf.,
Kirkjubraut 56, 300 Akranes. Mun-
ið að merkja vel myndirnar á bak-
hlið þeirra (nafn, aldur, símanúmer,
heimili og skóli).
Jólasögurnar skulu sendar á raf-
rænu formi í tölvupósti á netfang-
ið: skessuhorn@skessuhorn.is í síð-
asta lagi í hádeginu 11. desember
nk. Þar þarf einnig að koma fram
nafn höfundar, aldur, símanúmer,
heimili og skóli, og skulu þær upp-
lýsingar vera í sama skjali neðan við
söguna.
Skessuhorn hvetur alla krakka á
grunnskólaaldri á Vesturlandi til
að taka þátt í þessum skemmtilega
leik, senda okkur myndir og sögur.
Gangi ykkur vel!
Jólasögur og jólamyndir óskast!
Omnis á Vesturlandi styrkir keppnina
með glæsilegum símtækjum.
Glæsileg símtæki verða í verðlaun.
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
Ú
lf
ar
Ö
rn
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n | Sk ipholt 50a S ími 581 4020 | www.gal ler i l i s t . i s
Ragnar Már í
aðalhlutverki hjá
Brighton
AKRANES: Skagamaðurinn
ungi Ragnar Már Lárusson var
á skotskónum þegar U18 ára
lið Brighton gerði 2:2 jafnt-
efli gegn Fulham um helgina.
Ragnar og félagar eru eins og
er í þriðja sæti í U18 ára deild-
inni og félagið frá baðstrand-
arbænum breska hefur átt vel-
gengni að fagna á tímabilinu.
Vefurinn fotbolti.net skýrir frá
því að hinn 17 ára gamli Ragn-
ar Már hafi skorað þrjú mörk
í síðustu þremur leikjum Brig-
hton og lagt upp tvö að auki,
þannig að Skagamaðurinn
er greinilega í aðalhlutverki í
sínu liði. Ragnar kom til Brig-
hton frá ÍA um mitt síðasta ár
en hann á að baki fjölda leikja
með yngri landsliðum Íslands.
-þá
Enn ein tilnefn
ingin vegna
Norðursalts
REYKHÓLAR: Auglýsinga-
stofan Jónsson & Le’macks
hefur verið tilnefnd til alþjóð-
legu hönnunarverðlaunanna
Epica vegna hönnunar um-
búða fyrir Norðursalt á Reyk-
hólum. Með tilnefningunni
hafa umbúðirnar nú verið til-
nefndar til þrennra eftir-
sóttustu hönnunarverðlauna
heims. Epica-verðlaunin hafa
verið veitt í tæpa þrjá ára-
tugi. Þau eru einu alþjóðlegu
hönnunarverðlaunin sem veitt
eru af fjölmiðlum og eiga full-
trúar rúmlega fjörutíu tíma-
rita, blaða og vefmiðla sæti í
dómnefnd. Frá þessu er skírt
á vef Reykhólasveitar. Norð-
ursalt var í sumar tilnefnt til
Cannes Lions-hönnunarverð-
launanna, sem eru þau virt-
ustu sem veitt eru fyrir hönn-
un í heiminum. Umbúðirnar
fengu einnig Red Dot-verð-
laun fyrr á þessu ári, sem þykja
þau eftirsóttustu sem veitt eru
á sviði vöruhönnunar. Einn-
ig hafa umbúðirnar fengið
nokkrar viðurkenningar hér
heima svo sem í FÍT-keppn-
inni og Lúðrinum.
–þá