Skessuhorn - 26.11.2014, Qupperneq 67
67MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Sími 554 6088 / www.hreint . is
Þú sérð árangur 30 ára þjónustu við atvinnulífið. Þú finnur að áhersla á fagmennsku, gæði og gagnkvæmt
traust eru grunnur að farsælu orðspori. Þú upplifir svansvottaða þjónustu öflugs fyrirtækis.
GERUM BETUR
Í VERÐI OG VERKI
HAFÐU SAMBA
ND OG
FYRIR FYRIRT
ÆKIÐ ÞITT
LEITAÐU TILBO
ÐA
Sími 554 608
8 / www.hrein
t . is
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2014
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Mánudaginn 1. desember
Þriðjudaginn 2. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
SKE
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
vel haft samband við mig síðar hér
heima á Íslandi og spurt hvað þau
geti gert til að fá mig aftur. Skýr-
ingin á því að þetta fór svona var
hins vegar sú að árið 2013 voru svo
margir umsækendur um landvist-
arleyfi að fjöldi umsókna sprengdi
þann heildarfjölda sem búið var að
ákveða fyrirfram að skyldu fá lands-
vistarleyfi. Þá var brugðið á það ráð
að búa hreinlega til happadrætti. Í
staðinn fyrir að meta hverja um-
sókn fyrir sig var einfaldlega dregið
úr hópnum þar til kvótinn var fyllt-
ur. Þau sem voru dregin út fengu
starfsleyfi en hin ekki. Ég var ein
af þeim sem höfðu ekki heppnina
með sér. Ég fékk ekki dvalarleyfi.
Því varð ég að hætta í vinnunni og
fara úr landi. Ég hélt heim til Ís-
lands. Þetta var í júní í fyrra þann-
ig að það er liðið um eitt og hálft ár
frá heimkomunni.“
Í makríl og svo í IKEA
Þetta skapaði óvissu og jafnvel
kvíða. Það var ekkert grín að þurfa
að breyta öllum framtíðarplönum
með þessum hætti. „Auðvitað hafði
maður áhyggjur af því að fara svona
heim og yfirgefa starfið í New
York. Hér var jú kreppa og allt það.
Ég ákvað bara að fara á makrílver-
tíð í Vestmannaeyjum, fékk vinnu í
frystihúsi Vinnslustöðvarinnar þar í
júní 2013 og vann við það tæpa tvo
mánuði um sumarið. Eftir það fór
ég upp á land aftur.“
Það rættist þó úr málunum.
„Núna vinn ég í útstillingadeild
IKEA. Það hef ég gert síðan nú
í janúar á þessu ári. Ég er mjög
ánægð með það starf. Reyndar byrj-
aði ég sem sölufulltrúi í barna- og
skrifstofudeild. Ég komst svo í út-
stillingadeildina eftir fjóra mánuði
þar sem ég fæ að njóta mín og nýta
mína menntun og reynslu. Mánuði
eftir að ég byrjaði hjá IKEA fékk
ég síðan starfsleyfi hér á Íslandi
sem innanhússarkitekt. Í framhald-
inu hef ég svo tekið að mér verk-
efni og var reyndar að klára mitt
fyrsta núna í október. Það er herra-
fataverslunin Skyrta á Skólavörðu-
stíg í Reykjavík, í gömlu Fatabúð-
inni sem margir kannast sjálfsagt
við. Þar geta viðskiptavinir feng-
ið saumaðar á sig skyrtur eftir máli,
ásamt öðrum herrafatnaði og fylgi-
hlutum. Í þessari búð eru uppruna-
legar innréttingar frá 1947. Við
pússuðum allt upp og lökkuðum
upp á nýtt og breyttum aðeins, að-
allega með því að mála. Það var hins
vegar ekki hróflað við gömlu hönn-
uninni í búðinni. Hún var innrétt-
uð sem fataverslun og fékk að halda
sér í upprunalegri mynd. Þessi and-
litslyfting er talin hafa heppnast
mjög vel og allir afar ánægðir með
útkomuna.“
Líður best á Íslandi
Aðspurð segir Gunnhildur að hún
sé ekki á leið út aftur. Þrátt fyrir að
vera með góða menntum í sínu fagi
frá Flórens og New York hyggst
hún búa áfram á Íslandi. „Ég er
mjög ánægð með að vera komin aft-
ur heim. Satt best að segja þá var ég
komin með mikla heimþrá þegar ég
fékk boð um að yfirgefa Bandarík-
in. Fyrir innanhússhönnuð er það
að búa í New York vissulega Mekka
alheimsins. Þarna er stærsti mark-
aður í heimi fyrir innanhússhönn-
uði. Ég hefði örugglega verið áfram
í þrjú til sex ár hefði ég fengið dval-
arleyfi. En þarna úti vantar vitan-
lega fjölskylduna og þetta öryggis-
net sem maður þarf á að halda. Ég
var farin að sakna þessa mjög mik-
ið, fann það vel þegar ég var kom-
in heim til Íslands að mér leið mik-
ið betur.“
Hún segist fara mikið vest-
ur í sveitina sína úti á Snæfells-
nesi. „Foreldrar mínir búa enn í
Syðri-Knarrartungu og reka þar
sitt kúabú. Ef tækifærið kæmi og
ég gæti sinnt innanhússhönnun hér
vestur á Snæfellsnesi þá myndi ég
örugglega koma heim aftur. Ég er
reyndar komin með tvö verkefni
hér á Vesturlandi,“ segir Gunnhild-
ur Guðnýjardóttir innahússarkitekt
að endingu.
mþh
Gunnhildur Guðnýjardóttir innan-
hússarkitekt frá Syðri-Knarrartungu í
Breiðuvík á Snæfellsnesi er mjög sátt
við að vera komin heim til Íslands eftir
nokkurra ára náms- og starfsdvöl
beggja vegna Atlantshafs.
Aðventumarkaður í sveitinni er tilvalinn staður til
að versla persónulegar jólagjafir í ró og næði
Kaupa jólasteikina beint frá býli
Slaka síðan á, njóta samverunnar og
gæða sér á veitingum hjá Kvenfélaginu
Allt undir sama þaki og nóg af bílastæðum.
Aðventumarkaður
í Kjósinni
www.kjos.is | www.facebook.com/kjos.is
Laugardaginn 6. desember kl. 13.00 – 17.00 verður
hin árlegi aðventumarkaður í Félagsgarði í Kjós
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4