Skessuhorn - 26.11.2014, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Allmiklar framkvæmdir hafa stað-
ið yfir síðustu vikur við breyting-
ar á 98 metra langri grjótvörn við
höfnina í Ólafsvík. Verður hún
endurhlaðin, garðurinn hækkaður
og færður utar. Það er fyrirtækið
Stafnafell sem vinnur þessar fram-
kvæmdir og eru verklok áætluð fyr-
ir árslok. Í slæmum veðrum hef-
ur grjót og þari skolast á land og
gert ökumönnum sem eiga þarna
leið um lífið leitt. Við þessar end-
urbætur ætti það vandamál að vera
úr sögunni.
af
Þessi skemmtilega og haustlega
ljósmynd var tekin á dögunum.
Hún sýnir að búið er að mála gamla
skólahús Heiðarskóla í Hvalfjarðar-
sveit sömu litum og nýja skólahús-
ið. Gamla húsið var áður hvítt um
áratuga skeið, en nýja húsið hefur
frá upphafi verið í svörtum og gul-
um lit eins og nú. Nýi skólinn var
formlega vígður í lok ágúst 2011.
Gamla skólabyggingin var seld
einkaaðilum.
mþh
Golfsamband Íslands er nýbúið að
birta mótaskrána fyrir næsta sum-
ar. Íslandsmótið í höggleik, stærsta
mót ársins, verður á Garðavelli
19.-21. júní. Mótið verður haldið af
Golfklúbbunum Leyni í tilefni 50
ára afmælis klúbbsins á næsta ári.
Undirbúningur fyrir mótið er bú-
inn að standa lengi. Miklar fram-
kvæmdir hafa verið á Garðavelli
síðustu ár til að bæta og laga brautir
vallarins svo hann verði í sínu allra
besta standi þegar kemur að stóra
mótinu. Allmörg ár eru frá því síð-
ast var haldið Íslandsmót í högg-
leik á Garðavelli. Eins og í ár verð-
ur fyrsta mótið í unglingamóta-
röðinni, sem kennd er við Íslands-
banka, haldið á Garðavelli 23.-24.
maí. Þá helgi byrjar formlegt
keppnistímabil kylfinga á Íslandi
með fyrsta mótinu í Eimskipsmóta-
röðinni en það fer fram á Hólms-
velli í Leiru og haldið af Golfklúbbi
Suðurnesja.
þá
Heiðarskólahúsin í samræmdum litum
Endurhlaða grjótgarð í Ólafsvík
Íslandsmótið í golfi á
Garðavelli næsta sumar
Maður ársins
VESTURLAND: Hefð er
fyrir því að Skessuhorn kalli
eftir tilnefningum frá íbúum á
Vesturlandi um sæmdarheitið
Vestlendingur ársins. Niður-
staðan verður svo kunngerð í
fyrsta tölublaði nýs árs 7. janú-
ar 2015. Hér með er kallað eft-
ir slíkum ábendingum. Eina
skilyrðið er að viðkomandi sé
búsettur á Vesturlandi. Gott
ef rök um ástæðu tilnefninga
fylgi í einni setningu. Ábend-
ingar óskast sendar á netfangið
skessuhorn@skessuhorn.is fyr-
ir 15. desember nk. -mm
Úr Biskupsbeygju
LBD: Tvö umferðaróhöpp
urðu í umdæmi lögreglunnar
í Borgarfirði og Dölum í vik-
unni. Í öðru þeirra varð bílvelta
á Holtavörðuheiðinni þar sem
jepplingur rann út af veginum í
hálku. Bíllinn fór út úr Biskups-
beygjunni, valt heilan hring og
endaði á hjólunum. Tvennt var
í bílnum og slapp með minni-
háttar skrámur enda í bílbelt-
um. Tólf ökumenn voru tekn-
ir fyrir of hraðan akstur í um-
dæminu í vikunni, einn til við-
bótar var sektaður fyrir að vera
með of marga farþega í bílnum
og tveir ökumenn fengu sekt
fyrir stöðubrot. –þá
Kjörgripir seldir
FLATEY: Hafin er sala á kjör-
gripum fjáröflunarnefndar Flat-
eyjarkirkju fyrir þessi jól. Gunn-
ar Sveinsson í Eyjólfshúsi í Flat-
ey, gjaldkeri nefndarinnar, seg-
ir að salan sé reyndar yfirleitt
nokkuð jöfn allt árið þó að vissu-
lega komi toppur í hana síðustu
vikurnar fyrir jól. „Þessi góða
sala hefur verið mikil fjárhagsleg
lyftistöng fyrir Flateyjarkirkju,
sem hefur staðið í fjárfrekum
framkvæmdum á undanförnum
árum eins og kunnugt er,“ segir
Gunnar. Vefur Reykhóla grein-
ir frá því að vel hafi tekist með
viðgerð á listaverkum kirkjunn-
ar á síðasta ári en að því verkefni
hefur meðal annarra unnið lista-
maðurinn Baltasar Samper. –þá
Stuðningur við
rekstur kvenna
LANDIÐ: Á fundi stjórnar
Byggðastofnunar 14. nóvem-
ber síðastliðinn var samþykkt
að setja á laggirnar sérstakan
lánaflokk fyrir fyrirtækjarekst-
ur kvenna á starfssvæði stofn-
unarinnar í von um að með því
geti stofnunin ýtt undir fjöl-
breyttari atvinnutækifæri fyr-
ir konur í byggðum landsins.
Til verkefnisins verður varið
allt að 200 milljónum króna. Í
frétt á heimasíðu Byggðstofn-
unar segir m.a. að margt bendi
til að ein helsta ástæða fólks-
fækkunar í brothættum byggð-
um liggi í einhæfu atvinnulífi
og skorti á atvinnutækifærum
við hæfi vel menntaðs fólks af
báðum kynjum. Enginn vafi sé
á því að mati Byggðastofnun-
ar að jafnréttismál í víðu sam-
hengi eru meðal allra brýnustu
byggðamála. Það væri því eitt
af markmiðum Byggðastofn-
unar að fjölga konum sem eru
í viðskiptum við stofnunina.
Nánar má sjá um þessa sam-
þykkt á byggdastofnun.is
–þá
Útvarp Akraness
um næstu helgi
AKRANES: Sumir Skaga-
menn segja að jólaundir-
búningurinn byrji þegar Út-
varp Akraness fer í loftið á
FM 95,0. Sundfélag Akraness
stendur nú fyrir útvarpinu í
27. skipti og safnar fjármunum
fyrir starfseminni með seldum
auglýsingum. Eins og síðustu
ár er Hjördís Hjartardóttir
grunnskólakennari útvarps-
stjóri. Útvarið byrjar núna kl.
13 á föstudag með stúdíó ABC
þar sem Óli Palli og Hjörtur
Hjartar fara á kostum. Síðan
rekur hver dagskrárliðurinn
annan og m.a. verður nú að
nýju spurningakeppni þar sem
tólf lið, flest frá fyrirtækjum á
Akranesi etja kappi. Útsend-
ingar á FM 95,0 standa fram
undir sunnudagskvöld. Meðal
vinsælla og fastra liða eru jóla-
krakkar sem að þessu sinni er
5. bekkur Brekkubæjarskóla
og Rokkþing Jóns Allans og
Tomma Rúnars. Gísli og Hall-
bera rekja sögu Bjarnalaugar í
70 ár, fjölbrautaskólanemar
verða með þáttinn Fjör í fjöl-
braut, Skór með stáltá heitir
þáttur með Samma Þorsteins,
Vatnaskil með Pétri Ottesen
og fleira mætti nefna. Trúlega
verður allt á fullu með „Þrem-
ur á palli“ sem eru Sigrún Ósk,
Hlédís og Óli Palli. Rjómandi
gott úr eldhúsi er frá Hrund
og Möggu, Gísli Einarsson
verður með Súkkulaði með
rjóma og þannig mætti áfram
telja. –þá
Forstjóri hættir
STRÆTÓ: Starfsmenn
Strætó bs fengu eftir helgina
tilkynningu í tölvupósti um að
Reynir Jónsson forstjóri hafi
látið af störfum. Samkomu-
lag hefði náðst milli hans og
stjórnar Strætó bs um starfs-
lok, enda ríkti ekki lengur
traust milli aðila. Styr hef-
ur staðið um störf Reynis að
undanförnu einkum vegna
umdeildrar bílakaupa hans.
Starf forstjóra Strætó bs verð-
ur auglýst á næstunni. –þá