Skessuhorn - 26.11.2014, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Hrefna Daníelsdóttir er ung kona
frá Akranesi sem hefur mikinn
áhuga á tísku og hönnun. Hrefna
rekur bloggsíðu tengda áhuga-
málum sínum, sem notið hefur
mikilla vinsælda. Á síðunni birtir
Hrefna ýmsar myndir úr daglegu
lífi, af hlutum og fatnaði sem hana
dreymir um og af sjálfri sér í „dressi
dagsins“ þar sem hún útlistar hvað-
an hver flík er. Hrefna býr með eig-
inmanni sínum Páli Gísla Jónssyni,
smiði, leikmanni og markmanns-
þjálfara hjá ÍA, og þremur dætr-
um þeirra í fallegri íbúð á Akranesi.
Skessuhorn kíkti í heimsókn til
Hrefnu og fékk að forvitnast meira
um bloggið, fataáhugann, heimilið
og sitthvað fleira.
Blandar saman
gömlu og nýju
Hrefna hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á fötum, tísku og hönnun.
„Ég fékk þetta líklega með nafninu.
Amma mín og alnafna var svona
líka,“ segir hún og brosir. Hrefna
hefur alltaf farið sínar eigin leiðir
í fatavali og það kom fyrir á yngri
árum að vinkonunum þótti hún
frekar hallærisleg en hún lét það
ekki á sig fá. Hún býr til sinn eig-
in fatastíl og blandar mikið sam-
an gömlu og nýju. „Ég versla rosa-
lega mikið í Búkollu hér á Akranesi
og reyni að komast þangað í hverri
viku. Ég panta mjög mikið af vef-
versluninni Asos.com og versla svo-
lítið í Vila, Spúútnik og Zöru og
kíki auðvitað reglulega í búðirnar
á Skaganum. En ég vil samt síður
hitta fólk sem er í alveg eins fötum
og ég og nýti mér því mikið nytja-
markaði,“ útskýrir hún. Hrefna
kíkir einnig reglulega í Kolaportið
og á nytjamarkað á Selfossi. „Hann
er falinn fjársjóður,“ segir hún. „Og
ef það er kílóamarkaður í Spúút-
nik, þá er ég mætt. Svo fæ ég líka
að gramsa aðeins í skápum hjá elsku
mömmu, frænkum og ömmum,“
bætir hún við.
Verslar mest í Búkollu
Að sögn Hrefnu líður ekki mán-
uður án þess að hún kaupi sér ein-
hverja flík. „Ég held að það sé
óhætt að segja að ég kaupi um þrjár
til fjórar flíkur á mánuði. Palli er
reyndar hættur að nöldra í mér eft-
ir að ég byrjaði að versla svona mik-
ið í Búkollu, útgjöldin hafa lækkað
eftir það,“ segir hún og hlær. Yf-
irhafnir eru í miklu uppáhaldi hjá
Hrefnu og segist hún skoða þær
fyrst af öllu þegar hún kemur inn
í verslanir. „Annars er þetta ótrú-
lega mikið bland í poka hjá mér.
Ég kaupi stundum flík og nota
hana í allt öðrum tilgangi en hún
var hönnuð fyrir,“ segir Hrefna og
nefnir að auðvelt sé til dæmis að
breyta kjól í bol ef notað er belti.
En öll þessi föt hljóta að taka mik-
ið pláss. Blaðamaður veltir því fyr-
ir sér hvar Hrefna geymir flíkurn-
ar. „Fataskápurinn er alveg troð-
inn. Svo er ég líka með fataslá og
nota hluta af skápnum hans Páls,
ásamt því að ég geymi eitthvað af
fötum inni í þvottahúsi. En ég er
mjög dugleg að selja fötin sem ég
er hætt að nota,“ segir hún. Hrefna
segist tvímælalaust hafa verið dýr-
ari í rekstri fyrir daga Búkollu. Hún
kaupir þó ekki föt nema henni finn-
ist þau falleg. „Ég kaupi ekki bara
til að kaupa. Ég þreifa á fötunum
og skoða þau vel, fer jafnvel út úr
versluninni og kem aftur seinna.
Ég er ekki endilega að kaupa dýr-
ar flíkur og á enga flík sem ég hef
ekki notað. Eins kaupi ég ekki föt á
stelpurnar mínar nema að þeim líki
við þau. Ég set þær ekki í föt sem
þær vilja ekki nota enda myndi ég
sjálf ekki vilja að aðrir veldu föt á
mig. Þægindin eru númer eitt tvö
og þrjú.“
Viðbrögðin komu
á óvart
Hrefna opnaði bloggsíðuna href-
nadaniels.com fyrir rúmum tveim-
ur árum og hefur heimsóknum á
síðuna stöðugt fjölgað á þeim tíma.
„Ég hafði reyndar aðeins prófað
áður að blogga, þegar ég var yngri -
líkt og margir gerðu á þeim tíma. En
það var bara fikt og ekkert í líkingu
við það sem ég er að gera núna. Ég
hef alveg ótrúlega gaman af þessu,“
segir Hrefna. Á þessum tveim-
ur árum eru heimsóknirnar orðn-
ar ríflega 300 þúsund og vel það.
Aðspurð um hvort hún hafi fengið
skemmtileg viðbrögð við blogginu
segist hún stundum vera stoppuð
í búðum og úti á götu í Reykjavík.
„Það er mjög skemmtilegt þegar
maður fær hrós fyrir það sem mað-
ur er að gera. Það hefur alveg kom-
ið fyrir að stelpur í Reykjavík labba
upp að mér og hrósa mér fyrir fötin
eða bloggið.“ Sjálf skoðar hún ýmis
blogg og tímarit um tísku og hönn-
un. „Ég hef mest fylgst með stelp-
um frá Skandinavíu, svo sem Ange-
licu Blick, Victoriu Törnegren og
Elin Kling. Eins skoða ég Femme
og kíki af og til inn á Trendnet.
Annars nota ég Instagram mjög
mikið og fæ mikinn innblástur það-
an. Ég kíki minna á Facebook og
bloggsíður eftir að ég fór að nota
það,“ útskýrir hún. Að sögn Hrefnu
komu viðbrögðin við bloggsíðunni
henni verulega á óvart og þá sér-
staklega hversu fljótt það bættist
í hóp lesenda. Hún segir lesend-
ur bloggsins koma víða að og ald-
urshópur þeirra er breiður. „Karl-
menn fylgjast líka með og bloggið
nær út fyrir landsteinana. Eins er
að aukast fylgjendahópurinn á In-
stagram, sem er mjög skemmtilegt.
Ég hef fengið skemmtileg tækifæri
í kringum bloggsíðuna og fæ reglu-
lega persónuleg skilaboð eða tölvu-
pósta frá lesendum.“
Vil hafa fínt í
kringum sig
Þrátt fyrir þennan brennandi áhuga
á tísku hefur Hrefnu aldrei langað
til að læra hönnun. „Nei, mig hefur
aldrei langað að hanna neitt. Ég er
líka með tíu þumalputta og sauma
hvorki né föndra. Ég er frekar
svona dúllari. En draumurinn er að
geta verið með verslun með svona
„vintage“ fatnaði, líkt og seldur er
í Spúútnik,“ segir hún dreymin á
svip. Hrefna starfar sem leiðbein-
andi á leikskólanum Akraseli og
hefur mjög gaman af vinnunni með
börnunum. Hún er langt komin
með grunnskólakennaranám en á
eftir að vinna lokaverkefnið. „Ég
hef bara ekki komið mér af stað í
það.“ Hún segir að þrátt fyrir að
hafa gaman af starfinu sem hún
vinnur í dag þá leiti hugurinn ein-
staka sinnum annað. „Kannski að
maður láti verða af því að fara aðr-
ar leiðir þegar Páll hættir í fótbolt-
anum, hver veit? En það er ekkert
á dagskrá á meðan stelpurnar eru
svona ungar og á meðan hann er í
boltanum,“ útskýrir hún. Hrefna
hefur ekki einungis áhuga á tísku
og fatnaði. Hún fylgist líka með
innanhússhönnun og hefur gaman
að því að gera heimilið fallegt. „Ég
hef alltaf viljað hafa fínt í kringum
mig. Er alveg pínu klikkuð stund-
um hvað það varðar því ég vil allt-
af hafa fínt. Ég banna börnunum
samt ekki að leika sér og skamma
þær ekki ef eitthvað brotnar. Þetta
eru bara dauðir hlutir.“
Þarf ekki að kosta mikið
Íbúð Hrefnu og Páls er snyrti-
leg og falleg. Augljóst er að þarna
býr fólk með flottan stíl. Heimil-
ið er hlýlegt, hver hlutur nýtur sín
á sínum stað og hugað er að smá-
atriðunum. Hrefna leggur áherslu
á að það þurfi ekki að kosta mik-
ið að gera fínt í kringum sig. Hún
skoðar tímarit og heimilismyndir
á netinu og segist vera hrifnust af
skandinavískum stíl. „Ég geri ekki
út á að kaupa dýra hönnun og nota
frekar ódýrari búðir. Mér finnst
flott að blanda saman þessu gamla
og nýja og hef stundum fengið gef-
ins hluti og húsgögn. Ég kaupi líka
húsgögn á nytjamörkuðum og upp-
boðum og er mest hrifin af hlut-
um með einhverja sögu,“ segir
hún. Aðspurð um eftirlætis hönn-
uði nefnir hún Tom Dixon og Arne
Jakobsen. „En ég eltist samt ekki
við hönnunarvörur, þó við kaupum
okkur einstaka sinnum einn og einn
hlut. Við erum núna að safna fyrir
Tom Dixon ljósi, sem okkur hefur
lengi dreymt um að eignast,“ seg-
ir Hrefna og horfir í átt að eldhús-
borðinu, þar sem ljósið á líklega að
hanga í framtíðinni. Eldhúsið er
mjög stílhreint, líkt og önnur her-
bergi í íbúðinni. Hrefna segist verja
miklum tíma í eldhúsinu. „Ég elska
að vera í eldhúsinu, að elda og sér-
staklega baka. Ég er mikill sælkeri
og hef mest gaman af því að útbúa
einhver sætindi. Palli eldar oft en
hann er mjög góður kokkur, ég verð
að nota tækifærið og hrósa honum
fyrir það,“ segir Hrefna Dan bros-
andi að endingu.
grþ
Tískuáhuginn fylgir nafninu
Rætt við Hrefnu Daníelsdóttur tískubloggara á Akranesi
Valinn hlutur á hverjum stað. Myndina lengst til hægri málaði Hrefna sjálf þegar
hún var lítil.
Hrefna heima í stofu. Hún er hrifin af húsgögnum með sögu og fékk þennan fallega stól að gjöf frá frændfólki sínu.
Ein af þeim myndum sem sýnir Hrefnu í
dressi dagsins.
Þessa mynd birti Hrefna á bloggsíðu
sinni fyrr á árinu.
Heimili Hrefnu og Páls Gísla er fallegt
og stílhreint og hver hlutur fær að
njóta sín.