Skessuhorn - 26.11.2014, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Magnús Darri Sigurðsson frá Hell-
issandi ætlar að verða þriðji ætt-
liður skipstjóra í beinan karllegg.
Undanfarin ár hefur hann sótt sér
úrvals menntun innan sjávarútvegs.
Þegar upp verður staðið mun hann
bæði státa af skipstjóraréttindum
og titlinum sjávarútvegsfræðing-
ur með prófgráðu frá Háskólanum
á Akureyri. Þá ætlar hann að setj-
ast að heima á Hellissandi og byrja
að sækja sjóinn af meira kappi en
nokkru sinni fyrr. Ekki þar fyrir að
hafið sé honum framandi vinnu-
staður. Hann hefur verið viðloð-
andi sjósókn allt sitt líf.
Hélt norður til náms
Við hittum Magnús Darra í húsa-
kynnum gamla Stýrimannaskólans
í Reykjavík sem nú heyrir undir
Tækniskólann. Þar leggur hann nú
stund á skipstjórnarnám. „Undan-
farin ár hef ég stundað nám í sjáv-
arútvegsfræði við Háskólann á Ak-
ureyri og er í raun á síðasta árinu
þar. Á bara eftir að gera lokarit-
gerðina. Sjávarútvegsfræðin er
mjög skemmtilegt nám. Reynd-
ar var ég búinn að vera við nám
á Akureyri í nokkur ár því ég tók
menntaskólann þar líka. Fór norð-
ur eftir grunnskólann 16 ára gam-
all, kaus miklu frekar að fara þang-
að en í Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga í Grundarfirði. Ég bjó bara á
heimavist á Akureyri veturna þeg-
ar ég var þar í menntaskóla. Mig
langaði einfaldlega að prófa eitt-
hvað nýtt, breyta um umhverfi og
að búa á heimavist. Ég kom svo
bara heim í fríum. Þetta var mjög
fínt. Svo þegar ég var búinn með
menntaskólann fór ég beint í sjáv-
arútvegsfræðina.“
Skiptinám á
Nýfundnalandi
Í fyrrahaust, fyrir rúmu ári, fór
Magnús ásamt fimm félögum sín-
um í sjávarútvegsfræðinni á Ak-
ureyri í skiptinám vestur um haf.
„Þetta var í háskóla í St. Johns í
Nýfundnalandi í Kanada. Við fór-
um allir úr sama árgangi í sjávar-
útvegsfræðináminu fyrir norðan.
Við dvöldum þarna í fjóra mánuði,
deildum saman íbúð og það gekk
mjög vel. Þetta var stíft nám þarna
úti. Við tókum fimm eða sex áfanga
við skólann þarna. Síðan vorum við
líka í fjarnámi gegnum tölvurnar í
kúrsum sem voru kenndir við Há-
skólann á Akureyri. Tókum tvo eða
þrjá áfanga þannig. Ég kom svo
heim í desember í fyrra. Eftir ára-
mótin fór ég aftur norður en hætti
í skólanum í febrúar og fór á sjóinn
heima á Hellissandi. Síðan hóf ég
skipstjórnarnámið hér í Reykjavík í
ágúst síðastliðinn.“
Með þessu ákvað Magnús að
hvíla sig aðeins á sjávarútvegsfræð-
inni en nýta tímann í staðinn til að
sækja sér skipstjórnarréttindi.
Á stutt að sækja
áhugann fyrir sjónum
Magnús á ekki langt að sækja áhug-
ann fyrir sjónum og fiskveiðum enda
kominn af landsfrægum sjómönn-
um og útgerðarmönnum. Faðir
hans er Sigurður Valdimar Sigurðs-
son skipstjóri á neta- og dragnóta-
bátnum Magnúsi SH sem gerður er
út frá Hellissandi en róið frá Rifi.
Afi Magnúsar er Sigurður Krist-
jónsson, víðfræg aflakló sem gerði
um árabil út Skarðsvík SH. Í dag á
fjölskyldan og gerir út Magnús SH
þar sem Sigurður faðir Magnúsar er
skipstjóri sem fyrr sagði.
„Ég hef mjög mikinn áhuga
á að leggja sjómennskuna fyr-
ir mig og setjast að heima á Hell-
issandi. Planið er að klára nám-
ið hér í Stýrimannaskólanum. Það
eru tveir vetur. Síðan ætla ég líka
að ljúka við sjávarútvegsfræðina. Þá
verð ég kominn með hvoru tveggja,
skipstjórnarréttindi og útvegs-
fræði. Eftir tvö ár hef ég öll réttindi
á fiskiskip. Þó þarf ég reyndar að-
eins þennan fyrsta vetur sem ég er á
núna til að fá réttindi á bát af stærð
Magnúsar SH. Vonandi get ég leyst
pabba af á bátnum. Hleypt honum
í frí og svona,“ segir Magnús Darri
og brosir í kampinn.
Er alltaf á sjó
þegar færi gefst
Hann var ungur þegar hann fór
fyrst á sjó í fylgd með föður sínum.
„Við Gils Þorri bróðir minn vorum
ekki gamlir þegar við fengum að
fara með í fyrstu skiptin. Það var nú
svona bara til að fylgjast með í byrj-
un. Sitja uppi í brúarstól með pabba
og horfa yfir þetta. Ætli ég hafi ekki
verið svona 15 ára þegar ég fór svo
með sem messagutti. Síðan fór
maður að gera aðeins meira 16 – 17
ára gamall. Vinna á þilfari með hin-
um og taka fullan þátt í veiðunum.
Gils bróðir er að læra kokkinn og
klárar nú í desember.“
Magnús hefur verið mikið á sjó
á Magnúsi SH samhliða mennta-
skóla- og háskólanámi. „Ég er á sjó
á sumrin, í jólafríum og eiginlega í
hvert sinn sem ég hef færi á. Ef það
er róið um helgar, ég á frí og það
vantar mann, þá skelli ég mér hik-
laust. Nú eru þeir að byrja á net-
unum eftir að hafa verið á dragnót-
inni. Það er farið út á morgnana
og komið inn um miðjan dag eða
seinna. Það fer eftir fiskiríi, veðri
og hve langt er á miðin og heim
aftur. Heilt yfir er þetta þægilegur
veiðiskapur. Nú í sumar vorum við
á dragnótinni. Það gekk mjög vel.“
Magnús SH kom í vor sem leið
úr miklum breytingum sem gerðar
voru hjá skipasmíðastöð Þorgeirs
& Ellerts á Akranesi. Þær gengu
ekki þrautalaust fyrir sig. Eins og
lesendum Skessuhorns rekur ef-
laust minni til þá kviknaði í bátn-
um inni í skipasmíðastöðinni sum-
arið 2013. Tjónið var mikið. Um
tíma leit jafnvel út fyrir að bátur-
inn yrði dæmdur ónýtur. Menn létu
þó ekki deigan síga heldur var gert
við skipið og síðan lokið við end-
urbæturnar. „Báturinn er alveg frá-
bær í alla staði eftir þessar breyting-
ar. Það er allt eins og það á að vera.
Þetta er allt annar og betri bátur í
sjó en hann var áður. Þessar endur-
bætur eru gríðarlega vel heppnað-
ar,“ segir Magnús.
Ungir menn munu
mæta sterkir til leiks
Aðspurður segir hann að það sé
ekki algengt að þeir sem eru í
sjávarútvegsfræðinni við Háskól-
ann á Akureyri taki svona hliðar-
spor á námstímanum, fari í skip-
stjórnarnám og sæki sér þau rétt-
indi. „Enginn annar af þeim sem
eru á mínu reki hafa gert það.
Frekar var það svo að fullorðnir
menn sem voru búnir með skip-
stjórnarnám og kannski einhver
ár á sjó settust á skólabekk og
færu í sjávarútvegsfræðina,“ svar-
ar Magnús.
Hann segir að það séu þó-
nokkrir af Snæfellsnesinu sem
stundi nú skipstjórnarnámið við
Tækniskólann í Reykjavík. „Ætli
það séu ekki allavega fimm eða
sex. Jafnvel fleiri. Það koma kyn-
slóðaskipti í skipstjórninni í fiski-
skipaflotanum eins og öðru. Sjálf-
ur stefni ég á að klára bæði skip-
stjórnarnámið og svo sjávarút-
vegsfræðina árið 2017. Við sem
erum nú að mennta okkur eigum
eftir að koma sterkir inn,“ segir
Magnús að endingu. mþh
Magnús Darri um borð í Magnúsi SH ásamt skipsfélögum sínum þeim Sigurði Hallgrímssyni og Ingólfi Áka Þorleifssyni.
Í hópi ungra Snæfellinga sem eru að afla
sér skipstjórnarréttinda
Magnús Darri Sigurðsson verður skipstjóri og háskólamenntaður sjávarútvegsfræðingur
Magnús Darri Sigurðsson við gamla ratsjá sem stendur á gangi Stýrimannaskólahússins í Reykjavík.
Hann á ekki langt að sækja áhugann á sjónum. Hér eru skipstjórarnir og
aflaklærnar afi Magnúsar, Sigurður Kristjónsson og faðir, Sigurður V. Sigurðarson
í brúnni á Magnúsi SH.
Magnús SH 205 kemur í fyrsta sinni til heimahafnar eftir breytingarnar á Akranesi
fyrr á þessu ári.