Skessuhorn - 26.11.2014, Side 59
59MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Dagný Hauksdóttir er deildar
stjóri sérdeildar Brekkubæjar
skóla á Akranesi. Hún er bú
sett á EystraSúlunesi í Hval
fjarðarsveit. Auk þess að vera
eiginkona oddvita sveitarstjórn
ar er hún þriggja barna móð
ir sem vinnur hörðum höndum
við að ljúka meistaranámi í sér
kennslufræðum en mætir engu
að síður í mjaltir eftir dagvinnu
heima á búinu á Súlunesi. Þessi
eljusemi og orka fær blaðamann
til að velta fyrir sér hvort ógeril
sneydda mjólkin innihaldi eitt
hvað annað og meira en einung
is mjólk!
„Ég er ótrúlega heppin að búa
eins og ég bý,“ segir Dagný sem
býr í næsta nágrenni við tengdafor-
eldra sína og fær þaðan mikla hjálp,
sem og frá foreldrum sínum. „Það
eru náttúrlega algjör forréttindi að
geta unnið við það sem mann lang-
ar og verið í skóla en að börnin fái
á sama tíma að njóta góðs af ömm-
um og öfum. Ég gæti þetta ekki án
þeirra hjálpar.“ Dagný bætir því við
að það sé fjölskylduverkefni að vera
með búskap, það þekki allir sem
hafi reynt.
Dagný kveðst ekkert hafa vit-
að endilega út í hvað hún væri að
fara þegar hún flutti að kúabúinu á
Eystra-Súlunesi en kveðst þó lesa
Bændablaðið með meiri áhuga í
dag en áður. Hún og eiginmaður-
inn, Björgvin Helgason, hafa nú
búið þar saman í þrettán ár. „Ég
kann þessu mjög vel,“ segir Dagný.
„Það er mér nauðsynlegt að tak-
ast á við ögrandi verkefni og ég á
auðvelt með að aðlagast aðstæðum.
Þessa stundina felst ögrunin í því
að hafa mörg járn í eldinum.“ Hún
segir jafnframt að veturnir séu eins
konar vertíð og þá sé hún bara með
„hornin á undan sér.“ Sumrin hins
vegar séu léttari tími og í því langa
fríi sem hún fær frá vinnunni og
skólanum skapist rými fyrir áhuga-
mál eins og hreyfingu, en Dagný
sækir orku í fjallaklifur og hlaup.
Hún hljóp meðal annars hálfmara-
þon í Reykjavíkurmaraþoninu sum-
arið 2013.
Aukið annríki fylgir því að eiga
mann í sveitarstjórn. Því hef-
ur óneitanlega fylgt meiri fjar-
vera Björgvins frá heimilinu. Þegar
blaðamaður spyr Dagnýju hvernig
börnin sætti sig við annríki foreldr-
anna, svarar hún að það gangi ótrú-
lega vel. Þau búi líka við þau ýmsu
forréttindi sem fylgja því að alast
upp í sveit. Í sveitinni er svo oft
hægt að skottast með pabba þeg-
ar hann er heima við, í traktornum
eða annarri útivinnu og kíkja í fjós-
ið og hjálpa foreldrunum við mjalt-
ir. „En svo er ég líka oft með litla
samviskubitið á öxlinni sem fæðist
með börnunum. Ég held að flest-
ar mæður geti tengt við það,“ seg-
ir hún. Þau Dagný og Björgvin eiga
sem áður sagði þrjú börn. Börnin
heita Eymar Kristinn 5 ára, Arnþór
Máni er 7 ára en elst er Ástdís Birta
11 ára.
Oddvitafrúin útskrifaðist sem
iðjuþjálfi árið 2007. Iðjuþjálfun er
einungis kennd á Akureyri. Dagný
bjó því í fjarbúð á Akureyri í þrjá
vetur og segir að það hafi ver-
ið bæði erfiður en ekki síður lær-
dómsríkur tími að svo mörgu leyti.
„Þá áttum við bara Ástdísi Birtu og
hún þurfti greyið að þeytast þetta
með mömmu sinni og vera í tveim-
ur leikskólum á þessum tíma. Við
fórum heim aðra hverja helgi og
Björgvin kom til okkar norður hin-
ar helgarnar.“ Dagný bætir því við
að annríkið núna sé bara hjómið
eitt í samanburði við þennan tíma.
„Fjölskyldan er bara sterkari fyrir
vikið en þegar ég horfi til baka skil
ég varla hvernig ég fór að þessu,“
segir Dagný.
Að lokum er Dagný spurð hvern-
ig hún sjái framtíðina fyrir sér? „Ég
horfi björtum augum fram á við.
Hér er gott að búa. Hvar sem ég
er hlakka ég til að takast á við þau
verkefni sem upp kunna að koma.
Hversu gott lífið er, er jú alltaf und-
ir manni sjálfum komið. Hver er
sinnar gæfu smiður.“
bs
Dagný við morgunmjaltir í fjósinu á Eystra – Súlunesi.
Ögrun að hafa mörg járn í eldinum
Spjallað við iðjuþjálfann, deildarstjórann og húsmóðurina Dagnýju Hauksdóttur
Dagný og börnin hennar Ástdís Birta, Eymar Kristinn og Arnþór Máni Björgvins-
börn.
Unaðsdagar í Stykkishólmi
Jólagjön í ár fyrir mömmu, pabba, afa, ömmu eða ástina þína
Komdu og láttu okkur dekra við þig á Unaðsdögum í Stykkishólmi
Dagskráin, maturinn og þjónustan á Unaðsdögunum
hafa fengið frábæra dóma gesta okkar
Verð einungis 39.900 kr,-
Unaðsvikur fyrir 60 ára og eldri árið 2015 verða:
16. – 20. mars - 13. – 17. apríl - 27. apríl – 1. maí
Láttu Hólminn heilla þig
Hótel Stykkishólmur er kjörinn staður fyrir árshátíðir og ráðstefnur