Skessuhorn - 26.11.2014, Side 62
62 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Gunnhildur segir yndislegt að vera aftur komin heim
Eftir fjögurra ára fjarveru frá
Stykkishólmi við nám í Reykja-
vík er Gunnhildur Gunnarsdóttir
komin heim í Stykkishólm og tek-
in til við að leika körfubolta þar að
nýju með Snæfelli. Gunnhildur er
24 ára, dóttir Gunnars Svanlaugs-
sonar skólastjóra Grunnskólans í
Stykkishólmi og Láru Guðmunds-
dóttur íþróttakennara og nuddara.
Hún er þriðja í röðinni í hópi fjög-
urra barna þeirra hjóna. Í Hólm-
inum býr hún nú með unnusta sín-
um Óskari Hjartarsyni sem er frá
Helgafelli í Helgafellssveit.
Góð ár hjá Haukum
Gunnhildur segist ekki hafa ver-
ið meira en níu ára gömul þeg-
ar hún fór að æfa körfubolta. „Ég
spilaði svo upp alla yngri flokkana
með Snæfelli og var svo í fyrsta
meistaraflokksliðinu sem tók þátt
í fyrstu deild. Við vorum ung-
ar og óreyndar í deild með þeim
fullorðnu og þetta var erfitt. Samt
unnum við okkur þó strax upp í
úrvalsdeild og þar hefur Snæfell
verið síðan.“ Árið 2010 fór hún
til Reykjavíkur í nám. Þegar það
spurðist út í körfuboltaheiminum
hafði þjálfari Hauka samband við
hana og eftir viðræður við Hauka-
fólk skrifaði Gunnhildur und-
ir tveggja ára samning við Hauka.
„Mér leið mjög vel í Haukum og
þegar tveggja ára samningstíminn
var liðinn skrifaði ég aftur undir
tveggja ára saming þannig að þetta
urðu alls fjögur ár sem ég spil-
aði með Haukunum.“ Gunnhild-
ur hefur enn ekki náð því að verða
Íslandsmeistari þrátt fyrir að hafa
spilað með tveimur af sterkustu
liðum efstu deildar síðustu árin.
„Nei, stelpurnar í Snæfelli náðu
Íslandsmeistaratitlinum meðan ég
lék með Haukum en ég varð hins
vegar bikarmeistari með Haukum
eftir harða baráttu við Snæfell.“
Íþróttafræðingur í
uppeldis og
kennslufræðinámi
Þegar heimdraganum sleppti
hóf hún sjúkraliðanám í fyrstu
við Fjölbrautaskólann í Ármúla.
„Helsta ástæðan fyrir því námi hjá
mér var að finna út hvort hjúkrun
eða íþróttakennaranám ætti betur
við mig. Þetta fór þannig að ég tók
svo inntökupróf í íþróttafræði og
byrjaði í því námi haustið 2011 við
Háskólann í Reykjavík og útskrif-
aðist þaðan í vor með BS gráðu í
íþróttafræði.“ Að námi loknu lá leið
Gunnhildar aftur heim í Hólm-
inn og nú starfar hún sem stuðn-
ingsfulltrúi við Grunnskólann í
Stykkishólmi og stundar jafnhliða
því meistaranám í kennslufræðum
við Háskólann á Akureyri. „Þetta
er kallað lotunám en það tek ég
að stórum hluta í fjarnámi og fer
norður eina viku í hverjum mán-
uði. Þetta er tveggja ára nám sem
þarf að bæta við íþróttafræðina til
að öðlast kennararéttindi. Þar sem
ég ætla mér að verða íþróttakenn-
ari þá er þetta nám nauðsynlegt,“
segir hún.
Landsliðið fær
fleiri verkefni
Auk þess að leika með Haukum síð-
ustu ár hefur Gunnhildur átt fast
sæti í landsliði Íslands í körfubolta.
Hún segir heldur fá verkefni vera
fyrir landsliðið en það standi þó til
bóta. „Við fórum á smáþjóðaleik-
ana sem voru í Luxemborg fyrir
tveimur árum en þeir verða haldn-
ir hér á landi næsta sumar þannig
að verkefnin eru að aukast. Annars
hefur þetta bara verið einn og einn
leikur utan þess.“ Hún er mjög
sátt við að vera kominn til Stykk-
ishólms aftur. „Það er yndislegt að
vera komin aftur heim. Þótt mér
hafi alltaf liðið mjög vel í Haukum
og eigi þar marga góða vini. Mót-
ið hefur byrjað mjög vel hjá okkur
Snæfellsstelpum núna en við eig-
um mikið inni ennþá og höfum
ekki enn náð að spila eins góðan
leik og við viljum. Þetta er þó allt
í rétta átt. Þrjár stelpur úr liðinu
búa og æfa í Reykjavík og koma
bara heim í leiki svo við verð-
um núna í fyrstu að nýta leikina
vel til þess að spila okkur saman.“
Hún segist hafa áhuga á flestöllum
íþróttum og útivist sé henni hug-
leikin líka. „Sérstaklega má nefna
snjóbrettaiðkun. Hún er skemmti-
leg. Að auki hef ég mjög gaman af
að ferðast.“
Býst við að búa í
Hólminum áfram
Gunnhildur segist búast við að
vera komin heim í Stykkishólm til
að vera þar áfram en þó sé aldrei
að vita hvort hún fari aftur í frek-
ara nám. „Í framtíðinni stefni ég
þó að því að búa hér. Hér finnst
mér best að vera og vonandi verð-
ur bara nægilega mikið framboð á
vinnumarkaðinum hérna til þess
að unga fólkið sæki aftur heim,“
segir Gunnhildur Gunnarsdótt-
ir körfuboltakona og íþróttafræð-
ingur í Stykkishólmi. Hún og
Óskar, unnusti hennar, hafa kom-
ið sér fyrir hjá foreldrum hennar í
fyrstu en eru að hefja húsbyggingu
í Hólminum.
hb
Gunnhildur ásamt foreldrum sínum og systkinum.
Gunnhildur Gunnarsdóttir við útskrift
sína sem íþróttafræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík í vor.
Í leik með íslenska landsliðinu.
Gamall draumur að rætast í Norrköping
Ein öflugasta körfuboltakona
landsins mörg síðustu árin hefur
verið Sigrún Sjöfn Ámundadótt-
ir úr Borgarnesi. Sigrún spilar í
vetur með Norrköping Dolphins
í sænsku úrvalsdeildinni í körfu-
bolta. Í spjalli við Skessuhorn sagði
Sigrún Sjöfn að liðinu hefði geng-
ið ágætlega í vetur, en það er sem
stendur um miðja deild. „Við vit-
um samt að við getum gert betur.
Allir leikir sem við eigum eftir fyr-
ir jól geta farið á hvorn veginn sem
er og stefnan er tekin á að vinna þá
alla til að koma okkur í betri stöðu
fyrir seinni part tímabilsins,“ segir
Sigrún Sjöfn.
Körfubolti og
hestamennska
Sigrún segir að snemma hafi hún
fengið áhuga fyrir körfubolta.
„Já, það er körfuboltinn og hesta-
mennskan sem ég hef alltaf haft
mestan áhuga fyrir. Ég æfði nán-
ast allar íþróttir sem í boði voru í
Borgarnesi. Auk körfuboltans; fót-
bolta, badminton og sund, ásamt
píanónámi og hestamennsku. Það
var oft erfitt að púsla þessu öllu
saman með náminu en samt sem
áður lét ég þetta ganga upp. Minn
uppháhaldstími var eftir skóla þeg-
ar ég gat komist í íþróttahúsið eða
hesthúsið og stundað mínar íþrótt-
ir,“ segir Sigrún Sjöfn. „Ég byrjaði
að æfa körfubolta með Skallagrími
í kringum tólf ára aldurinn og var
heima í Borgarnesi þangað til ég
fluttist til Reykjavíkur 16 ára gömul
og byrjaði í framhaldsskóla. Þá fór
ég að æfa með Haukum og komst í
U-18 ára landslið Íslands. Um leið
byrjaði ég að banka á dyrnar hjá A-
liðinu. Síðan spilaði ég með KR og
seinna Hamri í Hveragerði. Það-
an lá leiðin út til Frakklands í eitt
ár haustið 2010 og þegar ég kom
heim að nýju kláraði ég námið í
kennslufræðum. Ég spilaði svo aft-
ur með KR í þrjú ár áður en ég fór
í haust í atvinnumennsku til Sví-
þjóðar.“
Svíarnir líkamlega
sterkari en Íslendingar
Sigrún Sjöfn segir að sig hafi lang-
að til að fara út aftur eftir að hún
kom heim frá Frakklandi. Þar var
hún að spila með liði í annarri deild
en vildi gjarnan komast til liðs í
sterkari deild. „Ég spilaði með
landsliði Íslands í Austurríki í sum-
ar á Evrópukeppni smáþjóða þar
sem ég stóð mig með prýði. Þjálf-
ari Norrköping Dolphins var á því
móti og sá mig spila. Stuttu eftir að
ég kom heim setti hann sig í sam-
band við umboðsmann minn og þar
með lá leiðin hingað.“ Þegar Sig-
rún Sjöfn er spurð um hvort mun-
ur sé á körfuboltanum í Svíþjóð og
á Íslandi, svarar hún að kannski sé
ekki svo mikill munur á leiknum
sjálfum en leikmenn séu líkamlega
sterkari og spili agaðri leik. „Mér
finnst þróunin líka verða orðin
meiri hérna en heima. Hér hef ég
meiri tíma til að vinna í mínum leik
og bæta mig. Þjálfarinn sinnir okk-
ur líka meira sem einstaklingum en
gert er heima. Við förum hver og
ein á videófundi og þar sýnir þjálf-
arinn hvað við erum að gera vel og
hvað þurfi að laga.“
Kann vel við sig
í Norrköping
Sigrún hefur verið í Norrköping á
fjórða mánuð. Hún segir að sér líði
eins og hún hafi þekkt marga liðs-
félaga sína lengi. „Ég kann mjög
vel við mig hérna og allir hafa verið
virkilega hjálpsamir við mig. Mér
hefur verið komið inn í hlutina
eins fljótt og mögulegt er.“ Sigrún
Sjöfn segir dæmigerðan dag þann-
ig að hann byrji á morgunæfingu.
„Þar vinn ég í mínum leik ásamt
því að fara á lyftingaæfingu þrjá
morgna í viku. Síðan liggur leiðin
í hádegismat þar sem liðið borð-
ar saman. Eftir matinn er frjáls
tími þar sem ég reyni að æfa mig
í sænskunni eða slappa af. Liðs-
fundir eru svo yfirleitt fyrir æfing-
ar á kvöldin þar sem farið er yfir
síðasta leik eða næstu andstæðing-
ar greindir áður en seinni æfingin
hefst.“ Aðspurð um félagsskap við
Íslendinga í Norrköping segist hún
ekki hafa ennþá hitt Íslendinga þar
búsetta. „Ég er ekki með heimþrá
en að sjálfsögðu sakna ég fjölskyldu
og vina heima. Mér líður mjög vel
hérna og ég get eiginlega ekki
kvartað undan neinu. Ég er að fá
tækifæri til að upplifa draum minn
frá æsku svo ég er virkilega að njóta
augnabliksins,“ segir Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir.
þá
Spjallað við Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur körfuboltakonu úr Borgarnesi
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.
Sigrún Sjöfn í búningi Norrköping Dolphins sem hún spilar nú með í sænsku
úrvalsdeildinni.