Skessuhorn - 26.11.2014, Page 63
63MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Mikið úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin
Bráðum koma blessuð jólin...
Apótek Vesturlands verður með fjölbreytt
úrval af allskyns gjafavöru fyrir jólin.
Mikið úrval af bað- og ilmvöru auk ýmissa
annarra góðra kosta.
Komdu og kannaðu úrvalið.
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Afgreiðslutímar:Virka daga 9–18Laugardaga 10–14Sunnudaga 12–14
2014
20157
12.
Hljómsveitin Festival í Borgarnesi
hefur sent frá sér plötuna Brenna
brýr. Á plötunni er að finna tólf
frumsamin lög eftir þá félaga. Þar
gæla þeir við hinar ýmsu tónlist-
arstefnur og má þar finna; kántrý,
fönk ballöður, sól, rokk og hefð-
bundna sveitaballatónlist. Jóna Est-
er Kristjánsdóttir hannaði umslag
plötunnar og um masteringu sá
Bjarni Bragi Kjartansson. Í janú-
ar byrjun mun sveitin síðan halda
tónleika víða um land til að fylgja
plötunni eftir áður en haldið verð-
ur inn í hefðbundna þorrablóta-
spilamennsku.
Festival var stofnuð árið 2008
af þeim Sigurþóri Kristjánssyni,
Guðjóni Guðmundssyni, Gústav
Smára Guðmundssyni, Jóni Frið-
riki Birgissyni og Indriða Jósafats-
syni og hóf sveitin fljótlega æfing-
ar í Borgarnesi sem allar götur síð-
an hefur verið aðsetur sveitarinn-
ar. Sveitin byrjaði síðan að leika á
dansleikjum í lok ágúst 2008. Indr-
iði hljómborðsleikari hætti í sveit-
inni sama haust og hófst þá leit að
nýjum hljómborðsleikara. Sú leit
bar fljótlega árangur og Birgir Jó-
hann Birgisson hljómborðsleik-
ari og hljóðupptökumaður gekk til
liðs við sveitina. Hljómsveitin setti
sér strax það markmið að hljóðrita
eigið efni til útgáfu enda með þrjá
lærða upptökumenn innanborðs
og tveir af þeim reka eigin hljóð-
ver. Upptökur hófust síðan í hljóð-
verinu Gott hljóð í Borgarnesi þar
sem gripnir voru lausir tímar og af
þeim sökum hefur verkefnið tekið
lengri tíma en áætlað var í fyrstu. Í
lok árs 2012 hætti Gústav Smári í
sveitinni. Það var svo í ársbyrjun árs
2013 sem Sigurgeir Sigmundsson
gítarleikari gekk til liðs við sveitina
og hefur hún verið þannig skipuð
allar götur síðan. -fréttatilkynning
Festival sendir frá sér
plötuna Brenna brýr