Skessuhorn - 26.11.2014, Qupperneq 70
70 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Vildi frekar hætta í keppni en verða eins og farlama gamalmenni
Meðal betri körfuboltamanna á
Vesturlandi síðustu áratugina er
án efa Borgnesingurinn Hafþór
Ingi Gunnarsson. Auk þess að eiga
góð tímabil með sínu uppeldis-
félagi Skallagrími í efstu deild í
körfuboltanum lék Hafþór einn-
ig í nokkur tímabil með Snæfelli í
Stykkishólmi. Hafþór var einmitt
á þriðja vetri á samfelldu tímabili
með Snæfelli í fyrravetur þegar
hann þurfti að leggja skóna á hill-
una. Þrálát meiðsli voru búin að
hrjá þennan snarpa og skemmti-
lega leikstjórnanda í nokkur ár allt
frá því hann sleit krossbönd haust-
ið 2007. Fyrir Vesturlandsslag
Skallagríms og Snæfells í Borg-
arnesi fyrir skömmu var Hafþóri
veitt viðurkenning fyrir gott starf
í þágu körfuboltans í landinu af
Rúnar Gíslasyni stjórnarmanni í
Körfuboltasambandi Íslands. Auk
þess að spila körfubolta hefur Haf-
þór Ingi lagt mikið af mörkum í
þjálfun yngri flokki bæði í Borgar-
nesi og í Stykkishólmi. „Þetta var
mjög skemmtilega gert og ég met
það mikils að hafa fengið þessa
viðurkenningu,“ sagði Hafþór Ingi
þegar blaðamaður Skessuhorns
hitti hann í spjalli í Geirabakaríi í
Borgarnesi á dögunum.
Vildi halda göngulaginu
Hafþór sagði að það hafi verið
þrælfúlt að þurfa að leggja skóna
á hilluna, enda það skemmtileg-
asta sem hægt er að hugsa sér að
spila körfubolta. „Þetta fór versn-
andi eftir tímabilið með Snæfelli
2012-2013. Það var hundleiðin-
legt að þurfa stöðugt að biðja um
nudd, hitakrem eða kælikrem og
vera eins og aumingi. Mér leið
ekkert orðið vel inni á vellinum.
Læknarnir sögðu að það væri ekk-
ert hægt að gera fyrir mig og ég sá
að það var þýðingarlaust að halda
þessu áfram. Það væri betra fyr-
ir mig að hætta en verða eins og
farlama gamalmenni. Ég hef nú
svo skemmtilegt göngulag að ég
vildi frekar halda því,“ segir Haf-
þór Ingi og hlær. Spurður um
hvort hann geti þó ekki stund-
að einhverjar íþróttir segist hann
ennþá aðeins vera að spila körfu-
bolta. Skreppi upp á Varmaland og
spili þar með vinum og kunningj-
um. „Svo er íþrótt sem snýst um
Hafþór Ingi Gunnarsson neyddist til að leggja körfuboltaskóna á hilluna
að slá litla hvíta kúlu. Ég er skít-
sæmilegur í golfinu. Var reyndar
betri áður en farið var að skipta sér
af tækninni hjá mér. Ég var komin
með ágæta forgjöf og vann meira
að segja keppnina í 3. flokki einu
sinni hjá Golfklúbbi Borgarnesi.
Þá fóru alltof margir að skipta sér
af mér og síðan hefur árangrinum
frekar hrakað en hitt,“ segir Haf-
þór Ingi og brosir.
Körfuboltinn hentaði
betur en fótboltinn
Það er með Hafþór Inga eins og
Gunnar Jónsson föður hans og
fleiri góða íþróttamenn að fleiri
boltagreinar leika við þá og jafn-
vel fleiri íþróttir. „Ég var líka í fót-
boltanum upp í 16 ára aldur þeg-
ar ég hætti í honum. Var meira að
segja einu sinni valinn í landsliðs-
úrtak í fótboltanum og hef reynd-
ar aldrei náð svo langt í körfubolt-
anum. Körfuboltinn virtist samt
henta mér betur og ég hafði miklu
meiri áhuga á honum. Þegar ég var
gutti í kringum tíu ára aldurinn var
körfuboltinn vinsælasta sjónvarps-
íþróttin hjá strákum. Það var þegar
stjörnur eins og Jordan voru upp á
sitt besta og allir strákar að skipta á
körfuboltamyndum. Ég var í mjög
öflugum körfuboltaárgangi hérna
í Borganesi. Á þessum tíma voru
Tómas Holton og Jón Páll Har-
aldsson að þjálfa okkur. Tómas
var mikil fengur fannst mér þegar
hann kom hingað að þjálfa. Mikil
þekking í honum. Tíundi flokkar
Skallagríms voru gjarnan sendir á
Ammerud Open í Ósló. Minn ár-
gangur var svo fjölmennur að það
voru send þangað bæði a- og b-lið
og við náðum fínum árangri.“
Eins og klaufskur
skítapjakkur
Hafþór fékk snemma tækifæri
með meistaraflokki Skallagríms,
en hann segist svo sem ekkert hafa
verið að slá í gagn strax í fyrsta
leik. „Nei, blessaður góði ég var
bara eins og einhver skítapjakkur
og vissi ekkert hvað ég var að gera
á vellinum. Dripplandi boltanum í
hnén og virkaði ábyggilega frekar
klaufskur á köflum. En svo náðum
við að mynda hörkulið. Það var
þegar Ermolinski, Warren Peep-
les, Hlynur Bærings, Sigmar Egils
og ég vorum í liðinu. Við komumst
alla leið í úrslit á móti Njarðvík-
ingum en töpuðum fyrir þeim. Svo
kom lægð hjá okkur í Skallagrími
og liðið féll í 1. deildina. Þá fór ég
einn vetur í Hólminn og var þá í
íbúð með Hlyni og Sigga Þorvalds.
Það var mjög skemmtilegur vetur,
vorum deildarmeistarar og unnum
fræga sigra á Njarðvík og komumst
í úrslit. Töpuðum á móti Keflavík.
En síðan fór ég aftur í Skallagrím
þegar Borgnesingar voru komnir á
ný í efstu deild. Þá voru að koma í
liðið Axel Kárason, Pétur Már Sig-
urðsson og fleiri. Valur Ingimund-
ar þjálfaði og við vorum að verða
betri með hverju árinu. Við vorum
líka með skemmtilega Makidóna
í liðinu á þessum tíma. Tímabilið
2005-2006 var til dæmis hörkugott
hjá okkur. Þá slógum við út í úr-
slitakeppninni fyrst Grindavík og
svo Keflavík. Við komust í úrslitin
aftur á móti Njarðvík og urðum að
sætta okkur við 1:3 tap.
Hyggur á ferðalög
og nám
Hafþór Ingi kveðst hafa ætlað að
hvíla sig á þjálfun þennan vetur-
inn enda búinn að þjálfa í 17-18
ár í röð. „Ég komst ekki upp með
það og er núna að þjálfa drengja-
flokkinn hjá Skallagrími. Það lið
lítur mjög vel út og er greinilega
efniviður í meistaraflokk með tíð
og tíma,“ segir Hafþór. Aðspurður
segist vera í þremur störfum. Auk
körfuboltans smíðar hann hjá Nes-
afli og er vert í Egils Guesthouse.
Spurður hvort að nú sé hann far-
inn að safna peningum til að kaupa
sér hús og stofna heimili, svarar
hann að það sé ekki alveg á dag-
skránni. „Mig langar meira til að
ferðast og skoða heiminn og svo er
ég líka að spá í nám. Það er ferða-
málafræði og nám í leiðsögn sem
mér finnst spennandi og líka lang-
ar mig að læra spænsku. Það er
svolítið af Böskum hérna í Borg-
arnesi sem hafa vakið áhuga minn
fyrir tungumálinu,“ segir Hafþór
og hlær. „Ég er búinn að fara í tvö
mjög skemmtileg ferðalög núna
seinni árin. Sumarið 2011 fór ég
með bróður mínum og félaga í
lestarferð í sex vikur um Evrópu.
Við gistum á farfuglaheimilum
og þetta var gríðarlega skemmti-
leg ferð. Síðasta sumar fór ég svo
í ferðalag um Suðaustur-Asíu: Ví-
etnam, Kambodíu, Tæland, Mal-
asíu og Bali. Ég hef áhuga fyrir því
að fara í fleiri svona skemmtilegar
ferðir,“ sagði Hafþór Ingi að end-
ingu. þá
Hafþór staddur í Geirabakaríi þar hann fær sér gjarnan kaffi og kruðerí á
morgnana. Ljósm. þá.
Þrír leikmenn úr meistaraflokki
UMFG í blaki voru valdir í lands-
liðin í blaki á dögunum. Þær Al-
dís Ásgeirsdóttir, Anna Kara Ei-
ríksdóttir og Svana Björk Stein-
arsdóttir voru valdar í U-17 ára
landslið Íslands en þær fóru til
Kettering í Englandi og stóðu sig
vel. Einnig var Aldís Ásgeirsdótt-
ir uppspilari og fyrirliði UMFG
kvenna í blaki valin í U-19 ára
landslið Íslands og fór hún til Ik-
ast í Danmörku að keppa á dögun-
um og stóð sig einnig með mikilli
prýði á danskri grund. Þess má svo
geta að lið UMFG er sem stend-
ur í 2. sæti í 1. deild en stelpurn-
ar hafa halað inn 10 stigum eft-
ir fimm leiki. Stelpurnar eiga leik
gegn Bresa á Akranesi sunnudag-
inn 30. nóvember og svo heimaleik
gegn Aftureldingu fimmtudaginn
4. desember.
tfk
Þrjár grundfirskar blakkonur í landslið
Blakkonurnar þrjár spila allar með meistaraflokki UMFG.
Hafþór Ingi með viðurkenninguna sem hann fékk fyrir Vesturlandslaginn í
körfuboltanum í vetur. Ljósmynd Ómar Örn Ragnarsson.