Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 68

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ A að auglýsa allar stöður lækna? Jón Snædal Höfundur er varaformaður Læknafélags íslands. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar eru höfundar hverju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjórnar LÍ. Fram að þessu hefur það ekki þótt sýna mikla stétt- vísi að varpa þessari spurningu fram enda lengi verið baráttumál lækna að allar stöður séu auglýstar og af hverju að breyta því? í 17. grein laga Læknafélags íslands segir m.a.: „Enginn félagsmaður má sækja um eða taka við stöðu eða embætti nema þau hafi verið auglýst til umsóknar með minnst fjögurrra vikna fyrirvara. Með stöðu er hér átt við, að stöðugildi sé a.m.k. 25%, ráðningartími a.m.k. 3 mánuðir og að staðan falli utan kanditatsárs ungra lækna. f>að telst einnig staða sé stöðuhlutfall aukið þannig, að það nái 25% stöðu- gildi.“ Hér er enginn greinarmunur gerður á því hver er vinnuveitandi eða hvers eðlis starfið er. Það hefur þó verið skilningur þeirra sem að þessari lagagrein stóðu á sínum tíma að átt væri við lækningastöður hjá sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum enda fáum öðr- um stöðum til að dreifa. Þessar ráðningar voru að jafnaði til frambúðar og því þótti skipta máli að allir til þess bærir læknar fengju jöfn tækifæri. Lagagreinin var svar Læknafélagsins við þeirri tilhneigingu vinnu- veitenda að ráða lækna í afleysingastöður um skamman tíma en framlengja ráðninguna hvað eftir annað og dæmi voru um lækna sem voru þannig ráðnir árum saman. Það voru ekki síst íslenskir lækn- ar erlendis sem höfðu af þessu áhyggjur enda voru tækifæri hvers og eins til að fá starf heima ekki mörg, einkum í fámennum sérgreinum. Það er einkum frá þeim komið að fyrirvarinn verði að minnsta kosti fjórar vikur svo þeim gæfist tími til að safna gögnum og senda inn með umsókn. Starfsvettvangur lækna er hins vegar breytilegri í dag og nú er svo komið að fjölmargir læknar eru ráðnir til ýmissa starfa án aug- lýsingar og virðast fáir kippa sér upp við það. Rétt er vekja athygli á því að lög félagsins leggja þá kvöð á lækna að taka ekki við stöðum nema þær hafi verið auglýstar en þó er virðing manna fyrir þessari grein ekki meiri en svo að margir þeirra hafa frumkvæði að því að leita eftir ráðningu hjá fyrirtækjum án þess að nokkuð hafi verið auglýst og eru í sumum tilvikum ráðnir í kjölfarið. Þetta eru einkum rannsóknarstöð- ur til afmarkaðra verkefna hjá einkafyrirtækjum en þeim hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Þó má finna ótímabundnar ráðningar á þeim vettvangi sem eru að því er virðist ígildi ráðningar á opinberum vettvangi. Annað svið sem hefur stundum valdið deilum er þegar læknar stofna fyrirtæki til lækninga og starfa þar sjálfir án þess að til auglýsinga hafi kom- ið. Sem dæmi má nefna heilsugæslustöðvar á eftir- sóknarverðum svæðum og hefur það aftur leitt til þess að hið opinbera hefur ekki stofnað stöð á því svæði. í þessum tilvikum hafa rekist á tvö sjónarmið Læknafélagsins, annars vegar að allar stöður skuli auglýstar, samanber ofannefnda lagagrein, og hins vegar að gera öllum rekstarformum jafn hátt undir höfði. Það þýðir í reynd að Læknafélagið hefur stutt sérstaklega einkaframtakið því það hefur átt undir högg að sækja innan heilbrigðiskerfisins. Það hefur ekki þótt viðeigandi að hvetja lækna til að hefja eigin rekstur og jafnframt leggja á þá kvöð að stöðurnar sem þeir hafa búið til sjálfum sér til handa verði aug- lýstar! Tímabært er að endurskoða lagagreinina enda ófært að í lögum Læknafélagsins séu ákvæði sem eng- inn virðir. Ekki er óeðlilegt að gera misjafnar kröfur til ráðninga eftir eðli starfans. Kennslustöður við Há- skólann og lækningastöður á sjúkrahúsum og heilsu- gæslustöðvum eiga að lúta áfram sama ákvæði um auglýsingar enda um það sátt meðal lækna og opin- berra aðila núorðið. Öðru máli gegnir um hinn al- menna vinnumarkað. Ef horft er til þess sem gildir á því sviði fyrir háskólamenn virðist sem hverjum vinnuveitanda sé látið það eftir að ákveða hvernig hann hagar ráðningum. Stöður geta verið auglýstar, ráðningarskrifstofu falið að velja einn eða fleiri sem komið geti til greina eða hreinlega að ákveðnum ein- staklingum er boðið starf milliliðalaust. Eðlilegt er að læknar ræði þetta innan félagsins og ef vilji stendur til þess er hægt að breyta ákvæðinu um auglýsingar á næsta aðalfundi í haust. 336 Læknablaðið 2002/88
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.