Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 73

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNALIN D Læknalind opnuð í Kópavogi Skiptir máli fyrir lækna að þetta takist í byrjun mars opnuðu læknarnir Guðbjörn Björns- son og Sverrir Jónsson læknastofu í Kópavogi og nefndu hana Læknalind. Þessi stofa er frábrugðin öðrum einkareknum stofum að því leyti að eigendur hennar hafa ekki gert samning við Tryggingastofnun ríkisins um kostnaðarþátttöku heldur byggist starf- semi stofunnar á því að fólk skráir sig í „áskrift" og greiðir fast mánaðargjald. í staðinn fá sjúkiingar tryggingu fyrir þjónustu læknis samdægurs ef þeir hringja fyrir kl. 14. Læknalind er enn eitt dæmið um þá deiglu sem heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er í um þessar mundir. Eins og kunnugt er hefur hin opinbera heilsugæsla ekki undan að veita almenningi þjónustu, komur í hana haldast ekki í hendur við fólksfjölgun á sama tíma og komum á Læknavaktina fjölgar ört. Heimilislæknar í borginni hafa ekki fengið að opna stofur eins og áður var með samningi við TR um greiðsluþátttöku. Þetta ástand hefur ýtt undir það að læknar reyni að bijótast úr þeim þröngu skorðum sem þeim eru settar og Læknalind er ein þeirra til- rauna. En hvernig hefur þeim félögum, Guðbirni og Sverri, verið tekið? „Viðtökurnar hafa verið mjög jákvæðar, bæði meðal almennings og kolleganna,“ segja þeir þar sem við sitjum yfir kaffibolla í húsakynnum Læknalindar við Bæjarlind í nýjasta hverfi Kópavogs. „Við höfum ekki rekið okkur á aðra veggi en þann að mega ekki auglýsa þjónustu okkar nema mjög takmarkað. Regl- urnar um auglýsingar eru orðnar gamlar og úreltar en við verðum að laga okkur að þeim. Við höfum hins vegar fengið ágætis umfjöllun í fjölmiðlum og fólk hefur tekið við sér. Fólk leitar til okkar þegar það þarf á okkur að halda og allir hafa sína sögu að segja, oftast um bið og tafir í heilbrigðis- kerfinu. Til okkar kemur alls konar fólk og fæstum finnst mikið að greiða 2.850 kr. á mánuði fyrir öruggt aðgengi að lækni. Við finnum ekki fyrir stéttaskipt- ingu því til okkar kemur fólk úr flestum stéttum, þar á meðal þó nokkrir öryrkjar, en mest er um venjulegt fjölskyldufólk." Öll almenn heilbrigöisþjónusta Markmið Læknalindar er að veita alla almenna lækn- isþjónustu og sinna heimilislækningum og heilsu- vernd á hefðbundnum opnunartíma milli 8 og 18 á virkum dögum. Auk þeirra Guðbjörns og Sverris starfar Danfríður Kristjónsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir við stofuna að ógleymdri Lindu Hrönn Magnúsdóttur ritara. „Við sinnum forvörnum með þeim hætti að þeir Sverrír (jyrír miðju) og sem eru skráðir viðskiptavinir okkar og tilheyra Guðbjörn ásamt Lindu ákveðnum aldurs- eða áhættuhópum eru kallaðir inn Hrönn ritara í Lœknalind. til reglubundinnar skoðunar þar sem leitað er að áhættuþáttum sjúkdóma. Þetta hefur mælst vel fyrir, ekki síst meðal karla sem komnir eru á miðjan ald- ur,“ segja þeir félagar. Við þetta má bæta því að mæðravernd og ung- barnaeftirlit er meðal þeirrar þjónustu sem Lækna- lind veitir. Þar er hægt að gera einfaldar blóð- og þvagrannsóknir og sinna bólusetningum, smáaðgerð- um og slysaþjónustu þegar um er að ræða minnihátt- ar áverka. Séu vandamálin stærri í sniðum er viðkom- andi vísað til sjúkrahúsa eða sérfræðinga eftir því sem við á. Guðbjörn og Sverrir vilja benda fólki á að enginn missir neinn rétt í almenna heilbrigðiskerfinu við það að skipta við Læknalind. Þeir taka líka fram að þótt stofan sé í þessu tiltekna hverfi í Kópavogi þá sé hún ekki bundin við íbúa þess hverfis heldur opin öllum sem þurfa á læknisþjónustu að halda. Að auka faglegan metnaö Þeir Guðbjörn og Sverrir vilja fyrirbyggja þann mis- skilning að þeir séu að setja upp einkarekna stofu að bandarískri fyrirmynd. „Svona stofur eru algengar í Svíþjóð og Noregi og víðar í Evrópu. Við erum því ekki að gera neitt nýtt. Við lítum ekki svo á að við sé- um í samkeppni við einn eða neinn, þetta er viðbót- arkostur sem almenningi stendur til boða.“ í ljósi þess að einkarekstur heimilislækna hefur verið takmörkunum háður undanfarin ár er eðlilegt Læknablaðið 2002/88 341
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.