Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2002, Síða 78

Læknablaðið - 15.04.2002, Síða 78
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KÆRUR VEGNA LÆKNAMISTAKA Mikil fjölgun á kærum vegna mistaka heilbrigðisstarfsmanna Almenn sátt ríkir um meðferð kærumála Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra upplýsti það á Alþingi fyrir skömmu í svari við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur alþingismanns að kærum vegna meintra læknamistaka hefði fjölgað umtalsvert á undanförnum árum. Birti hann tölur fyrir fjögur ár sem voru á þessa leið: 1990 188 kærur 1995 261 kæra 2000 373 kærur 2001 356 kærur Jafnframt kom fram í máli ráðherra að við meðferð Landlæknisembættisins á kærunum kæmi í ljós að um þriðjungur þeirra er talinn eiga við rök að styðjast og af þeim tilvikum flokkast um helmingur sem læknamistök en tíundi hluti telst eiga rót sína í samskiptaörðugleikum. Þarna er um mikla fjölgun að ræða, tilvikin tvö- faldast á rúmum áratug. Ástæður þess taldi ráðherra einkum vera aukin réttindi sjúklinga sem fest hafa verið í lög og í framhaldi af því aukin vitund almenn- ings og heilbrigðisstétta um rétt sjúklinga. Lækna- blaðinu lék forvitni á að vita hvernig embætti land- læknis tekur á þessum kærum. Sá sem ber hitann og þungann af því starfi er Haukur Valdimarsson að- stoðarlandlæknir. Haukur staðfesti að annir embættisins vegna kærumála hefðu aukist verulega undanfarin ár. „Okkur finnst við þurfa meira fé og mannafla til þess að takast á við þessi mál en nú fer mest af tíma mínum í þau og ég hef ekki undan. Enda ber nokkuð á því að fólki finnist afgreiðsla mála taka langan tíma. Á þessu þarf að taka því þetta kemur niður á öðrum verkefnum sem embættinu er ætlað að sinna,“ segir Haukur. Málsmeðferðin Haukur benti á að þeim sem telja sig hafa orðið fyrir barðinu á mistökum heilbrigðisstarfsmanna (ekki bara lækna því innan heilbrigðiskerfisins starfa 30 löggildar starfsstéttir) séu ýmsar leiðir opnar. Auk þess að kæra til landlæknis geta menn leitað til þriggja manna nefndar sem skipuð er af Hæstarétti. Sum mál fara fyrir læknaráð, einkum þau sem erfið- ari eru og alvarlegri. Vilji menn ekki una úrskurði þessara aðila er hægt að fara dómstólaleiðina. „Þegar okkur berst kæra á hendur heilbrigðis- starfsmanni byrjum við oft á að ganga úr skugga um það hvort kærandi hafi rætt málið við yfirstjórn þeirr- ar stofnunar þar sem atvikið varð. Það gerum við vegna þess að lögin um réttindi sjúklinga kveða á um að það skuli gert. Að því loknu skoðum við málið, köllum eftir upp- lýsingum frá þeim sem kærður er, biðjum um sjúkra- skýrslur og/eða greinargerð og reynum að leggja fag- legt mat á atvikið. Þegar fagþekkingu okkar hjá emb- ættinu þrýtur leitum við aðstoðar óháðra sérfræð- inga. Við reynum fyrst og fremst að greina á milli hvort um sé að ræða slys eða mistök. Á grundvelli þessa semjum við drög að álitsgerð sem send er aðil- um málsins en þeir hafa fjögurra vikna andmælarétt. Að honum liðnum sendum við frá okkur endanlegt álit. Niðurstaða okkar getur orðið á þann veg að kær- an sé ekki staðfest. Eins getur kæran verið staðfest að hluta eða í heild. Sé það niðurstaða okkar að kæran sé staðfest getum við veitt viðkomandi ábendingu eða aðfinnslu. Einnig formlega áminningu eða tillögu til ráðherra um sviptingu starfsleyfis." Dómsmál sjaldgæf Landlæknir getur veitt heilbrigðisstarfsmönnum áminningu eða lagt til við heilbrigðisráðherra að læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður sé sviptur leyfi sínu. „Margir halda líka að við getum úrskurðað um bótaskyldu og dæmt sjúklingum bætur en það er mesti misskilningur. Við getum einungis bent fólki á lög um réttindi sjúklinga og sjúkratryggingar og vísað því til Tryggingastofnunar ríkisins. Fái menn ekki úr- lausn sinna mála þar geta þeir leitað til dómstóla. Við bendum fólki líka á að þótt það velji eina leið til að ná rétti sínum þá lokast aðrar leiðir ekki við það.“ Landlæknisembættið gaf út rit um kvartanir og kærur á hendur heilbrigðisstarfsmönnum sem bárust embættinu á árunum 1991-1997 og segir Haukur að þótt nokkur fjölgun hafi orðið síðan hafi kærumálin ekki breyst mikið. í ritinu kemur fram að af rúmlega 1.500 kærum sem bárust á þessum árum hafi helm- ingurinn verið vegna meintra mistaka. Næst komu samskiptaerfiðleikar, þá kvartanir vegna aðgengi að þjónustu og fjórði stærsti flokkurinn var vegna lækn- isvottorða. Af 750 kærum vegna meintra mistaka taldi emb- ættið staðfest að 200 kærur ættu við rök að styðjast og 63 til viðbótar voru staðfestar að hluta. Þetta gerir um þriðjung og svipað hlutfall af kærum vegna sam- 346 Læknablaðið 2002/88
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.