Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2002, Side 83

Læknablaðið - 15.04.2002, Side 83
UMRÆÐA & FRÉTTIR / RÁÐSTEFNA UM BRÁÐALÆKNINGAR Bráðalækningar eru sérgreín í sókn Alþjóðleg ráðstefna um bráðalækningar haldin í Reykjavík í vor Bráðalækningar eru ung sérgrein innan læknis- fræðinnar. Greinin á uppruna sinn í Bandaríkjunum þar sem læknar á bráðadeildum sjúkrahúsa í Virginíufylki fóru að kalla störf sín bráðalækningar fyrir um það bil þrjátíu árum. Þessi skilgreining breiddist smám saman út og er nú viðurkennd sér- grein í Bandaríkjunum. Allt frá upphafi hefur skilgreining bráðalækninga sem fullgildrar sérgreinar mætt mótspyrnu og víða í Evrópu er hún ekki viðurkennd sem slík. Hér á landi eru bráðalækningar viðurkenndar en ísland er eitt af sex Evrópuríkjum sem það gerir og fyrst Norðurlanda. I júnímánuði verður Reykjavík vettvangur fjölmennr- ar ráðstefnu um bráðalækningar þar sem margir þekktustu sérfræðingar og brautryðjendur greinarinn- ar vestanhafs og austan verða meðal fyrirlesara. Það eru Félag íslenskra bráðalækna, Landspít- alinn-háskólasjúkrahús og læknadeild Háskóla Ís- lands sem standa að ráðstefnunni sem verður haldin í Háskólabíó dagana 9.-13. júní. í undirbúningsnefnd eru þau Brynjólfur Mogensen, Mary Palmer og Theo- dór Friðriksson sem öll starfa á slysa- og bráðasviði Landspítala. Þar hitti blaðamaður Læknablaðsins Mary Palmer að máli og innti hana eftir ráðstefnunni. Mary er bandarískur læknir sem hefur starfað hér undanfarin tvö ár. Hún hefur fylgst með þróun bráðalækninga í heimalandi sínu og starfað við grein- ina í þarlendum sjúkrahúsum. Hún segir að greinin hafi mætt andstöðu, ekki síst hjá öðrum læknum sem telja bráðalækna vera að seilast inn á sitt starfssvið. „Bráðalækningar snerta margar sérfræðigreinar og tengja þær við samfélagið. Við erum ekki bara að búa um brotin bein heldur breiðum við okkur út yfir æ fleiri greinar. Við fáum líka inn á borð hjá okkur alls konar sjúkdóma, svo sem í öndunarfærum, hjarta og fleira. Við erum hér á vakt og greinum vandann þegar hann kemur upp. Mig langaði að stuðla að viðgangi greinarinnar og sýna hvað í henni felst og lagði því til að við efndum til ráðstefnu hér á landi. Ég hef ágætis sambönd við ýmsa forystumenn bráðalækninga og tókst að fá fyrirlesara sem marga eru heimsþekktir innan grein- arinnar. Það reyndist auðveldara en ég hélt því flestir voru spenntir fyrir því að koma hingað til íslands," sagði Mary. Fjögur meginsviö Ráðstefnan verður með hefðbundnum hætti þar sem skiptast á fyrirlestrar og verklegar æfingar. Hún skiptist í fjögur meginþemu sem eru: • Helstu áhættusvið sem bráða- lækningar koma nærri: öndunar- færi, blóðrás, lost og eitranir. • Algengustu viðfangsefni bráða- deilda. • Þörfin fyrir mýkri umönnun, svo sem þegar fórnarlömb nauðg- ana og annars kynferðisofbeldis eiga í hlut. • Þróun bráðalækninga og slysa- varna á alþjóðavísu. Meðal fyrirlesara er fólk frá ýmsum löndum sem mun gefa ráð- stefnugestum innsýn í bráðalækn- ingar í svo ólíkum löndum sem Skotlandi, Eistlandi, Noregi, Frakklandi og Alaska, svo dæmi séu tekin. Þá má ekki gleyma bandarískum sjálfboða- liðum sem vinna við að móta viðbrögð við hryðju- verkum þar sem beitt er lífrænum efnum („bíóterror- ismi“) og öðrum hópi sem sérhæfir sig í tölvunotkun fyrir bráðadeildir. Varpað verður fram ýmsum spurningum um stöðu bráðalækninga, svo sem hvað læknar þurfi að hafa til einkað sér til þess að öðlast sérhæfingu í greininni. Efnt verður til pallborðsumræðna um stöðu bráða- lækninga á íslandi með þátttöku evrópskra og banda- rískra sérfræðinga. Mary sagðist einmitt vera að senda þeim gögn um stöðuna hér á landi svo þeir geti Iagt mat á hana. Mary Palmer undir vegg- spjaldi ráðstefnunnar Bráðalœkningar milli heimsálfa. Bráöalækningar vinsælt viöfangsefni Heiti ráðstefnunnar er Bráðalœkningar milli heims- álfa eða Emergency Medicine Between Continents. Mary sagði að þetta væri draumaráðstefnan hennar og að hún vonaðist til þess að hún leiddi til bættrar almannaheilsu. „Þessi ráðstefna höfðar til lækna úr mörgum sérgreinum og ekki síst til lækna af landsbyggðinni. Vonandi verður þátttakan góð og ef marka má aðsókn að öðrum ráðstefnum um bráða- lækningar sem haldnar hafa verið að undanförnu þá verður hún góð. Ég sótti ráðstefnu á Ítalíu á síðast- liðnu hausti og þar voru þátttakendur hartnær tvöfalt fleiri en upphaflega hafði verið reiknað með. Við vitum ekki hversu margir koma hingað en getum allt eins átt von á hátt í 500 manns,“ sagði Mary Palmer. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast á heimasíðu hennar: www2. landspitali. is/congress/emergency2002/ -ÞH Læknablaðið 2002/88 351
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.