Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 86

Læknablaðið - 15.04.2002, Page 86
Sertral (sertralín) Öruggt og árangursríkt lyf við þunglyndi, þráhyggju- og áráttusýki Hver tafla inniheldur: Sertralín hýdróklóríð, samsvarandi sertralín 50 mg. Töflurnar innihalda laktósu. Ábendingar: Punglyndi. Þráhyggju- og áráttusýki (obsessive-compulsive dlsorder). Felmtursköst (ofsahræðsla (panlc disorder)), með eða án víðáttufælnl (agoraphobia). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærðir handa fullorðnum: Við þunglyndi og þráhyggju- og áráttusýki: Upphafsskammtur er 50 mg á dag, tekið í einum skammti. Ef þðrf krefur, má auka þennan skammt um 50 mg á dag, í þrepum á nokkrum vikum, í allt að 200 mg á dag. Sé þörf á langtímanotkun lyfsins er venjulegur viðhaldsskammtur 50 mg á dag. Við felmtursköstum (ofsahræflslu) með eða án vífláttufælni: Upphafsskammtur er 25 mg á dag. Skammtur er aukinn í 50 mg á dag eftir eina viku. Ef þörf krefur má auka þennan skammt um 50 mg á dag, í þrepum á nokkrum vikum. Hámarksskammtur sem mælt er með er 200 mg á dag. Skammtastærðir handa öldruðum eru þær sómu og að framan er getið. Árangur meöferðar getur komið fram innan 7 daga, en oftast þarf 2-4 vikna meðferð áður en full verkun næst Sertralín er að mestu leyti umbrobð í lifur. Minni eða færri skammta skal gefa af lyfinu ef sjúklingur er með minnkaða lifrarstarfsemi. Lyfið er tekið einu sinni á dag, annað hvort að morgni eða að kvöldi. Töflurnar má taka ýmist með eða án matar Skammtastærflir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum Frábendingar: Samtímis notkun MAO-hemils. Sérstök varnaflarorð og varúflarreglur við notkun: Ekki skal gefa sjúklingum sertralín, sem notað hafa MAO-hemlandi lyf, fyrr en 2 vikum eftir að slíkri meðferð hefur verið hætt Á sama hátt skal ekki gefa MAO-hemlandi lyf fyrr en 2 vikum eftir að sertralín meðferð hefur verið hætt Eins og hjá öðrum þunglyndistyfjum hefur verið skráð órvun á maníu og hypómaníu hjá nokkrum sjúklingum. Flogaveiki getur hugsanlega versnað við notkun lyfsins og því skal gæta varúðar við gjöf sertalíns hjá sjúklingum með flogaveiki. Meðferð með sertralíni skal hætt ef sjúklingar fá krampaköst. Sertralín er að mestu leyti umbrotið í lifur. Hjá sjúklingum með takmarkaða lifrarstarfsemi minnkar útskilnaðarhraði lyfsins, minni eða færri skammta skal þá gefa af lyfinu. Vegna aukinnar hættu á sjálfsvígstilraunum samfara þunglyndi skal hafa náið eftirlit með sjúklingum í upphafi meðferðar. Gæta ber varúðar við notkun lyfsins hjá sjúkllngum, sem eru með sykursýki og meðhöndlaðir með insúlínl eða sykursýkilyfjum af súlfónýlúreaflokki. Milliverkanir vifl önnur lyf og aflrar milliverkanir: Samtímls gjöf MAO-hemlandi lyfja getur valdið skyndilegum háþrýstlngl og oförvunarástandl. Gæta ber varúðar vlð samtímis gjöf sertralíns og annarra lyfja sem verka á miðtaugkerfið. Neysla áfengis er ekki ráðlögð meðan á sertralín meðferð stendur. Samtímis notkun litíums getur aukið tíðni aukaverkana sertralíns, einkum ógleði, skjálfta og kvíða. Par til frekarl upplýsingar liggja fyrir ætti ekki að nota serótónín virk lyf eins og tryptófan, súmatrlptan eða fenflúramín samtímis sertralíni, vegna hugsanlegrar hættu á milliverkunum. Par sem sertralín er bundið plasmaprótelnum, skal hafa í huga möguleikann á að sertralfn milliverki við ónnur próteinbundin lyf (Ld. warfarín og digitoxín). Samb'mis gjöf sertralíns og címetidíns getur valdið aukningu í blóðstyrk sertralíns. Meflganga og brjöstagjöf: Dýratilraunir benda ekki til að lyfiö hafi áhrif á frjósemi eða hafi fósturskemmandi áhrif, en mjög háir skammtar hafa leitt til aukinnar dánartíðni nýfæddra dýra. Engar tilraunir hafa verið gerðar á barnshafandi konum. Ber því að foröast notkun lyfsins á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Engar uppfýsingar liggja fyrir um hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. þess vegna ættu konur með barn á brjósti ekki að nota lyfið. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar vfila: Lyfið getur haft áhrif á viðbragðsflýti og ber að hafa það í huga við akstur og stjómun véla. Sjúklingar sem aka bifreiðum eða stjórna öðrum vélknúnum tækjum skal ekki gefið sertralín samtímis bensódíazepínafbrigðum eða öðrum róandi lyfjum. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði, u.þ.b. 20%. Algengar (>1%): Almennar: Aukin svitamyndun, svimi, syfja, höfuðverkur, óróleiki, þyngdartap, lystarleysi (anorexia). Taugakerfi: Vöðvaskjálfti, truflun á sáðláti Meltingarfæri: Úgleði, munnþurrkur, niðurgangur, meltingaróþægindi. Sjaldgæfar (0,1-1%): Geflrænar: Kvíði. Mjðg sjaldgæfar (< 0,1): Efnaskipti: Lækkun natríums í sermi (hyponatremi). Taugakerfi: Rugl, kynlífsóþægindi hjá konum, náladofi, dofi, ofsjónir, árásarhneigð, æsingur, óróleiki. Ofskömmtun: Einkenni eins og lýst er varðandi aukaverkanir. Meflhöndlun: Einkennameðferð. Lyfhrif: Sertralín hindrar upptöku serótóníns (5-HT) á sértækan hátt í taugum, sem leiðir til aukningar á áhrifum 5-HT. Lyfið hefur aðeins mjög væg áhrif á endurupptöku í taugar af noradrenalíni og dópamíni. í lækningalegum skömmtum hemur sertralín endurupptöku serótóníns í blóðflögum. Sertralín hefur engin örvandi, róandi eða andkólínvirk áhrif og hefur ekki eitrunaráhrif á hjarta í dýratilraunum. (rannsóknum á sjálfboðaliðum hafði sertralín hvorki róandi áhrif né áhrlf á hughreyfilegt atferli. í samræmi við hina sértæku hömlun á 5-HT upptöku eykur sertralín ekki katekólamínvirkni. Sertralín hefur ekki sæknl í múskarín (kólínvirka), serótónínvirka, dópamínvirka, adrenvirka, histamínvirka, GABA eða benzódíazepín viðtaka. Ólikt þrihringlaga geðdeyfðarlyfjum, hefur þyngdaraukning ekki sést eftir meðferð með lyfinu. Ekki hefur komiö í Ijós, að sjúklingar verði líkamlega aða andlega háðir lyfinu. lyfjahvörl: Sertralín hefur skammtaháð lyfjahvörf á skammtabilinu 50 - 200 mg á dag. Eftir 50 - 200 mg á dag í 14 daga sést hámarksblóöþéttnl hjá mönnum 4,5 - 8,4 klst. eftir gjöf. Stöðugri blóðþéttni er náð eftir daglega gjöf sertralins í eina viku. Lyfið er nánast allt prótelnbundið (um 9B%). Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að lyfið hefur mjög stórt dreifingarrúmmál. Sertralín umbrotnar mikið í fyrstu umferð í lifur. Sertralín og aðalumbrotsefni þess. N-desmetýlsertralín (sem virðist að mestu óvirkt) umbrotna að mestu leyti í likamanum og umbrotsefnin skiljast út með saur og þvagi. Aðeins lítið magn af sertralíni skilst óbreytt út með þvagi. Helmingunartími í útskilnaðarfasa er u.þ.b. 26 klst. Lyfjahvórf lyfsins eru eins hjá eldri og yngri sjúklingum. Inntaka sertralíns með mat hefur ekki marktæk áhrif á aðgengi lyfsins. Útlit: Hvítar, filmuhúðaðar töflur. ilangar, kúptar (stærð: 10 x 5 mm). með deilistriki. Pakkningar og verð (Lyfjaverðskrá 1. nóvember) Sertral 50 mg, 28 stk 3.377 kr Sertral 50 mg, 98 stk. 10.704 kr Omega Farma www.omega.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.