Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2002, Side 87

Læknablaðið - 15.04.2002, Side 87
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 17 Faraldsfræði í dag Fylgni Hugtakið fylgni (correlation) er mikið notað í far- aldsfræðilegum rannsóknum. Hugtakið er í sjálfu sér einfalt og gagnlegt en er stundum ofnotað og jafn-vel misnotað. Almennt er talað um fylgni þegar tvær eða fleiri breytur fylgjast að, þannig að ef breyta A kemur fyrir er líklegt að breyta B komi einnig fyrir. Til dæmis má segja að fylgni sé milli svarts háralitar og brúns augn- litar því almennt er líklegra eða algengara að brúnn augnlitur komi fyrir hjá svarthærðum en til dæmis blár eða grænn augnlitur. Þarna er í raun átt við tengsl (association) en ekki endilega fylgni. Að tengsl séu milli tveggja breyta vísar aðeins til þess að þær komi fyrir saman oftar en svo að tilviljun ein geti ráð- ið því. Slík tengsl segja ekkert um það hvers konar samband er um að ræða. I tölfræðilegum skilningi er fylgni skilgreind á talsvert nákvæmari hátt og vísar þá til línulegs sambands milli tveggja samfelldra breyta (continuous variables), það er að segja að breyting á A hafi í för með sér ákveðna, línulega breytingu á B. Samfelldar breytur eru þær sem byggjast á mælingum á hlutfallskvarða (ratio scale). Dæmi um slíkar breyt- ur eru til dæmis hæð, þyngd og blóðþrýstingur. Mæl- ingar á hlutfallskvarða hafa þrjá grundvallareigin- leika. í fyrsta lagi er miðað við skilgreindan núll- punkt. í öðru lagi eru notaðar einingar sem koma fyrir með jöfnu millibili (það er jafn mikill munur á 3 og 4 eins og á 1280 og 1281, það er ein eining). í þriðja lagi eru hægt að skilgreina jöfn hlutföll á milli mjög misstórra eininga (3/4 er sama stærð og 750/ 1000). Með línulegu sambandi er átt við að skilgreind breyting á stærð einnar breytu tengist skilgreindri (en ekki endilega jafnstórri) breytingu á stærð annarrar breytu. Til að lýsa styrk slíks sambands er notaður fylgnistuðull (correlation coefficient) sem reiknaður er út frá svokölluðu fylgnilíkani (correlation model). Slíkur stuðull og þær tölfræðilegu aðferðir sem hon- um tengjast byggjast algerlega á því að um samfelldar breytur sé að ræða. Fylgnistuðull á því ekki við þegar um annars konar breytur er að ræða, svo sem breytur er byggjast á mælingum á kvörðum öðrum en hlut- fallskvarða. Dæmi um slíkar breytur eru til dæmis hára- og augnlitur, hjúskaparstaða, menntunarstig, blóðflokkur, hvort ákveðinn sjúkdómur eða einkenni er til staðar eða ekki, og svo framvegis. Fylgnistuðull getur verið á bilinu -1 til 1. Gildið -1 sýnir að um fullkomna neikvæða fylgni er að ræða (aukning á A hefur í för með sér línulega minnkun á B), gildið 1 endurspeglar fullkomna jákvæða fylgni (aukning á A hefur í för með sér línulega aukningu á B) og gildið 0 sýnir að ekki er fylgni milli A og B. Rétt er að taka fram að fylgnistuðull lýsir ekki umfangi línulegrar breytingar á einni breytu með til- liti til annarrar. Ef reiknaður er til dæmis fylgnistuð- ull milli líkamsþyngdar og hæðar þá segir hann ekki til um hve mikillar þyngdaraukningar má að meðal- tali vænta fyrir skilgreinda aukningu á hæð. Til þess eru notaðar aðrar aðferðir, til dæmis línuleg að- hvarfsgreining. En hvaða aðferðir má þá nota til að meta tengsl breyta sem byggjast ekki á hlutfallskvarða og þar sem fylgnistuðull á því ekki við? Til eru ýmsar aðferðir til að meta slík tengsl og við val á heppilegustu nálgun- inni er nauðsynlegt að hafa í huga kvarðann sem breyturnar byggjast á og nákvæma skilgreiningu á rannsóknarspurningunni sem liggur fyrir. Ef við vilj- um vita hvort tveir rannsakendur túlka niðurstöður á sama hátt þegar þær eru lagðar fyrir þá hvorn í sínu lagi og þeir beðnir að gefa ákveðið skor, þá má reikna samræmishlutfall á milli þeirra (kappa) og jafnvel taka tillit til þess hve miklar líkur eru á að þeir gefi sama skor af tilviljun einni saman (vegið kappa). Ef kanna á hvort samhengi er milli tekna og þess að búa í ákveðnum borgarhluta má hins vegar nota kí- kvaðrat próf um sjálfstæði þessara tveggja breyta (test of independence). Slíkt próf byggir á kí-kvaðrat dreifingu og hentar því þegar um er að ræða breytur sem fylgja þeirri dreifingu. María Heimisdóttir mariah@decode.is Læknablaðið 2002/88 355
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.